Vikan - 10.07.1980, Side 29
Ljósm.: K.H.
Veitingasalurinn er á annarri hæð hins 300 ára gamla húss.
eggjum og kryddi, steiktar í olífuoliu.
þéttar í sér og vel heitar, bornar fram
með tómatbátum, salatblaði, sýrðri
gúrku og áðurnefndu heitu „pita”.
Homus á 21 krónu var enn einn for-
rétturinn. Það var baunasalat með
kryddi, steinselju og olífuoliu og borið
fram með heitu „pita”. Þetta minnti dá-
lítið á hið gríska taramosalata, sem þó er
búið til úr hrognum, en ekki baunum.
Tahiná 21 krónu var forréttur. gerður
úr blöndu sesamfræja, olífuolíu. hvít-
lauk og öðru kryddi, borinn i'ram með
heitu „pita".
Falaffel á 21 krónu var siðasti forrétt
urinn, sem ég prófaði. Það voru bauna-
bollur, steiktar I olífuolíu. bornar fram
með heitu „pita”. Þetta voru allt góðir
forréttir. en best var þó kuftan.
Persa-
bollur
Lamba-shislik á 41,59 krónur var einn
aðalréttanna. Það voru kjötbitar og
laukgeirar á tveim teinum, borið fram
meb blaðsalati og hóteismjöri. bakaðri
kartöflu og heitu snittubrauði.
Svína-shislik á sama verði var ná
kvæmlega eins réttur, nema svinakjöt i
stað lambakjöts.
Kebab á 41,50 krónur eða Persabollur
voru aflangir. þéttir sköndlar úr nauta-
hakki, bragðsterkir vel, bornir frani með
salatblöðum, rauðurn hrisgrjónum og ís
bergssalati.
Hægt er að fá eitt spjót af lambakjöti.
annað af svínakjöti og einn nautahakks-
sköndul á 56 krónur. ef menn vilja prófa
sem flest. Það heitir „mixed grill” á mat-
seðlinum. Mér fannst svínashislik og
kebab gott, en lambashislik miður.
Grænar fíkjur á 23,50 krónur voru
meðal eftirrétta. Þær voru ferskar. born
ar fram með vanilluís. þeyttum rjóma.
hnetum og rommsirópi. mjög góðar á
bragðið.
Rauðar plómur á 23.50 krónur eru
einnig meðal eftirrétta. Þær voru fersk-
ar, bornar fram með sama meðlæli og
fíkjurnar og jafngóðar á bragðið.
Fyllt epli á 17 krónur var þó besti
eftirrétturinn. Það var fyllt rúsínum og
hnetum. bakað og borið fram með
blöndu af sýrðum rjónta og þeyttum
rjóma.
Flest vín Jacob's eru frá Ísrael. Hálf
flaska af hálfsætu C'armel Hock hvitvini
kostaði 28 krónur. heil fiaska af þurru
C'abernet Sauvignon rauðvíni kostaði 67
krónur og hálf flaska af hálfsætu Carmel
Adom Atic rauðvini kostaði 28 krónur.
Glas af sætu Muscatel eftirréttavini
kostaði 10 krónur. Þetta voru sæmilegir
drykkir. en ekkert sérstakir.
Helstu kostir Jacob's BarBQ eru tveir.
Í fyrsta lagi fæst þar ekta Ísraelsmatur
eða eins og hann gerist við Miðjarðarhaf
austanvert. Og í öðru lagi er skemmti
lega notalegt andrúntsloft i þessu 300
árágamla húsi mitt i hringiðu nútimans
I Árósum.
Samsæri
gegn Struense
Að lokum fylgja hér þrjú vers, sem
letruð eru á plötu í áðurnefndum undir
gangi. Þau eru svo sem ekki merkileg. en
sýna þó. að Danir hafa lag á aó vera
frumlegir, þegar þeir þurfa að setja upp
minningarskjöld:
„Gak under portens stokværk
— i Vestergade 3
og lyt til seklers tale
— luköjetopogse
man rejstedisse mure
— af btndingsværk dengang
da Frederik den fjerde
— var drot i Dannevang.
Og her har rört sig mere
— end munter tidsfordriv
da Struense i sin tid
— blev skilt fra hals og liv
var rænker mod ham smeded
— om brug af öksens vold
hos herskabshusets ejer,
grev Magnus Beringskjöld.
Han byggede i gaarden
— den kolde dybe brönd
hvor muligvis hans fjender
— har tvættet deres synd
men du kan roligt komme
— og se hans brönd i fred
thi ingen bliver ombragt
— af gaardens klokkesmed.'
Jónas Kristjánsson.
(Jacob's BarBQ. Vestergade 3, simi 12
20 42, opiðalla daga vikunnar.l
í næstu Viku:
Kellers Gaard
28. tbl. Vikan 29