Vikan


Vikan - 10.07.1980, Side 62

Vikan - 10.07.1980, Side 62
Pósturinn ... en ég reyni að stilla mig Kæri Póstur! Mig langar að biðja þig að bjálpa mér. Þannig er mál með vexti að ég er ofsalega hrifin af strák sem er 5 árum eldri en ég. Ég fer oft niður I bæ og sé hann því mjög oft. Þegar ég sé hann þá langar mig svo mikið að rjúka á hann og kyssa hann en ég reyni að stilla mig. Hann brosir oft til mín þegar hann sér mig. Stundum ligg ég and- vaka uppi í rúmi og hugsa um hann, svo heitt elska ég hann. Þegar hann keyrir fram hjá mér flautar hann alltaf á mig. Elsku Póstur, hvernig á ég að reyna að krækja í hann? Ekki segja mér að gleyma honum því ég get það ekki. Hvað heitir aðalsöngvarinn I Queen? Er hægt að fá plakat með hljómsveitinni? Ég bið að heilsa öllum á Vik- unni. Frábært blað. Ég vonast eftir góðu svari. Með kæru þakklœti fyrir birtinguna. Bless Ein ástsjúk. P.S. Ef Helga er mjög svöng þá má hún eiga umslagið og frí- merkið. Það er fjarri Póstinum að segja þér að gleyma honum, þetta hlýtur að vera alveg framúrskar- andi skemmtilegt. Lífið væri ólíkt litlausara ef þú hefðir ekki þessa ást til drengsins til að kvelja sjálfa þig með og njóta svo sársaukans alveg fram í fing- urgóma. Hvort það væri hins vegar til bóta að krækja í hann er svo allt annað mál því það er ennþá í fullu gildi að fjarlægðin geri fjöllin blá og mennina mikla. Njóttu þess enn um stund að dást að drengnum úr fjarlægð en svo ætti ekki að saka að láta til skarar skríða þegar fram líða stundir. Hafir þú ekki gleymt honum þá og hann ekki fram- kvæmt neitt af sjálfsdáðum ann- að en að flauta á þig ætti ekki að saka að ýta ofurlítið við forlög- unum. í þvi efni gæti komið að gagni að kynnast einhverjum sem hann þekkir vel, flækjast sem mest fyrir hinum útvalda á förnum vegi og flauti hann ennþá ætti að vera óhætt að flauta á móti eða veifa og brosa út að eyrum. En láttu alveg vera að rjúka á hann og kyssa hann á götu, það gæti haft sömu áhrif og að stíga á rófuna á heimilis- kettinum. Plakat af þeim félögum í Queen og upplýsingar birtust í 25. tbl. Vikunnar einmitt nú í vor. Helgu er vandlega haldið frá frímerkjum og umslögum, enda ýmislegt annað gert við slíka hluti hérá blaðinu. Aðdáandi Hæ Póstur. Ég er einn af mörgum aðdá- endum Vikunnar. Ég sá að ykkur voru send nokkur heimilisföng klúbba. Ég veit um[ nokkur heimilisföng til viðbótar svo mér datt í hug að senda þau. Ég er meðlimur í einum af þessum klúbbum, Thin Lizzy Ean Club, og er mjög skemmtilegt að vera í svona klúbbum. Og svona í lokin, hvernig væri að koma með mynd af Thin Lizzy I Vikunni? Vona að Helga sé Bless, bless. Thin Lizzy aðdáandi. Heimilisföngin: Bee Gees Fan Club, Louis Bakens, Lampionsraat 10 A, N1-3202 BP Sprkenisse, Germany. Enginn trúir mér og þú verður að hjálpa! Kæri Póstur! í fyrra í skólanum varð ég þess vör að verið var að njósna um mig. Ég er með eins konar sjúkdóm, ég held að þau hafi fengið áhuga þess vegna. Ég heyrði krakkana tala um mig, það sem ég hafði gert inni og enginn gat séð. Systir mtn heyrði það lika. Það var í mars sem það byrjaði. Alveg þar til skólanum lauk heyrði ég þau tala um það sem ég hafði gert daginn áður. Þau njósnuðu um mig með sjónaukum. Fólk útfrá heyrði ég oft tala um mig. Um miðjan júní byrjaði ég að heyra mjög lágt I þeim alls staðar. Ég fór til Englands og hélt ég væri með ofskynjanir en svo reyndist ekki. Þeim hafði tekist að festa við mig, notuðu aðferð svo þau gátu séð mig alls staðar. Þegar ég var lítil dreymdi mig að verið væri að njósna um mig. Ég get verið draumspök. Mig dreymdi að þelta væri I sambandi við rafmagnskerfið Þegar ég opnaði það heyrði égþau segja: Ætli hún haft fattað það. Ég er búin að vera á hælum því enginn trúir mér og ■ margt er gert til að hjálpa mér. Mér hefur oft liðið ömur- lega og verið langt niðri út af þessu. Þú verður að hjálpa mér. Getur þú, Póstur góður, aflað upplýsinga um hvernig þetta er hægt? Ég hef orðið að hætta öllu, til dæmis í jassballett — ég sem éíska að dansa. Efþettafer ekki að hœttafrem ég sjálfsmorð. Ég sé enga leið til frelsis sem allir í heiminum hafa nema ég. Einhver verður að trúa mér og hjálpa. Ef þér finnst bréftð of langtgeturþú bara birtsvarið. Þú verður að hjálpa mér, trúðu mér! Það ótrúlegasta er oft satt, ekki útiloka það. Ég get ekki lært út af þessu lengur, ég séfram á að ég verði að hœtta í skólanum. Ég hef reynt margt til að losna við þetta en ekkert dugar. Ég treysti á þig. Ein á báti. P.S. Hvað erað vera varið í manneskju? Þitt vandamál er ekkert smávandamál og því skaltu forðast að reyna að leysa það ein og án utanaðkomandi hjálpar. Þú getur treyst því að á þeim stöðum, sem þú hefur verið lögð inn vegna þessa sjúkdóms, er einmitt rétta fólkið til að að- stoða þig og gæta þín fyrir öllum utanaðkomandi hættum. Sjálfsmorð er engin lausn á vandamáli þínu og þú skalt ekki einu sinni hugleiða þann möguleika. Með tímanum batnar þér örugglega og þá getur þú farið aftur í skólann og jassballettinn eins og ekkert hafi í skorist. Allir eiga ein- hvern tíma ævinnar við vandamál að stríða, mismunandi mikil að vísu og nú stendur þú einmitt andspænis slíku tímabili á þinni ævi. En þar sem þú hefur svo marga til að styðjast við og leita aðstoðar hjá í þessu efni er ekki ástæða til að óttast að ekki birti til um síðir. Draumar eru oftlega afleiðing hugsana fólks í vökunni og því liklegt að það sem þú óttast á daginn valdi slæmum draumförum á nóttunni. Því skaltu lítið mark taka á draumum þínum þar til fullum bata er náð. Og þar sem þú hefur örugglega ekkert að fela skaltu láta þér í léttu rúmi liggja hvort einhver er að njósna um þig eða ekki. Efastu ekki um að fólk trúi þér því enginn efast um að þú segir það sem þér raunverulega finnst sjálfri. Og þegar þér líður reglulega illa skaltu ekki hika við að skrifa Póstin- um aftur, því þú getur treyst því að fá svar við fyrsta tæki- færi. Gleymdu því bara ekki að allir eru af vilja gerðir til að hjálpa þér, bæði starfsfólkið þar sem þú ert núna, ættingjar og vinir — og að sjálfsögðu Pósturinn. Þegar talað er um að það sé varið í einhvern er átt við að hann sé einhvers virði. Sem sagt, manngildið er þar til um- ræðu og venjulega í jákvæðri merkingu. 62 Vikan 28. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.