Vikan - 25.09.1980, Blaðsíða 17
Við Borghese-garða: Al Fogher
Erlent
Og hér ar inngangurinn i Al Fogher.
(Ljósm. KH)
borð af margvíslegu, fersku grænmeti,
forréttum og ferskum ávöxtum. Gólfið
var fllsalagt. Tréstólarnir voru með tága-
setum, en konum var boðin sessa að sitja
á. Logandi kerti voru á öllum borðum,
tandurhvítir dúkar og handþurrkur, sem
minntu á tóbaksklúta.
Veggir voru ýmist úr Ijósrauðum
múrsteini eða málaðir hvítir. Á þeim
voru beislismél, vog og margvísleg
koparáhöld, pottar, pönnur og ausur.
Veitingahúsinu er skipt i þrjú herbergi
og tekur það samtals um 90 manns i
sæti. Við sátum þarna langa kvöldstund
og nutum góðrar umönnunar.
Sykurhúðaðir ávextir
Við völdum okkur Cabernet 1979
rauðvín frá Bertilo i Friuli. Það kostaði
3.500 lírur og var gott dæmi um þann
árangur, sem ltalir hafa á síðustu árum
náð í að flytja inn franskan vínvið og
framleiða vín að frönskum hætti. En
þetta var í eina sinnið á ttalíu, að við
drukkum vin, sem ekki var úr berjum af
itölskum ættum.
Ein sérgreina A1 Fogher er „Asparagi
di giardino” eða ferskur spergill, beint úr
garðinum. Sá forréttur kostaði 3.500
lírur og reyndist okkur Ijómandi góður.
Hann var borinn fram í sítrónubland-
aðri olíu.
Hinn forrétturinn var einnig ein af
sérgreinum hússins. Það var „Prosciutto
Affumicato di Sauris" eða reykt skinka
frá Sauris, mild og góð, borin fram á tré-
bretti með hörðu, soðnu brauði. 3.500
lírur.
Aðalrétturinn „Agnello al Fogher”
var mikið soðið en bragðgott lambakjöt.
borið fram á salatblaði og í fylgd með
kartöflustöppu og grilluðu brauði. Hinn
aðalrétturinn var ekki merkilegur og
minnti helst á gúllas, en hét hinu
virðulega nafni „Prosciutto alla Grappa
di Ginepro". Fyrri rétturinn kostaði
8.000 lirur og hinn siðari 7.000 lírur.
Með þessu fengum við ágætt blaðsalat
með gulrótum og tómötum í olíu og
ediki á 3.000 lírur.
Þá kom röðin að einu mesta stolti A1
Fogher, hinum mikla vagni eftirrétta.
Þar tróndu hæst langir trépinnar með
sykurhúðuðum, ferskum ávöxtum, það
er að segja banana-bitum, kirsuberjum,
jarðarberjum og hnetum. Þetta var gott.
Minna varið þótti mér í búðingana og
Hnallþóruterturnar, hlaðnar rjóma og
jukki og jóðlandi í koniaki og líkjör.
Valið af þessum eftirréttavagni heitir
„Dolci della Casa alcarello” og kostar
2.000 lírur á mann.
Gönguferö um garðana
Eftir 11.000 króna veislumáltíð á
mann I A1 Fogher er ágætt að rölta
gegnum Borghese garða, annaðhvort út
að ferðamannalífinu á Via Veneto eða
að útsýningu á Pincio.
Jónas Kristjánsson
(A1 Fogher, Via Tevere 13, sími 85 70
32, lokað á sunnudögum).
Inæstu Viku:
Severino
#
I
Líf, verustaður og dauði Reza
Palavi, fyrrum lranskeisara, hefur
verið mjög í fréttum undanfarið eitt
og hálft ár, og reyndar hefur maður-
inn sjálfur verið beint eða óbeint
valdur að ýmsum þeim atburðum
sem fréttnæmastir hafa talist. Og nú
er hann fallinn frá og ýmsir hefðu
vist óskað þess að dauði hans yrði til
þess að fleira gerðist en raun varð á.
A. m. k. ættingjar Bandaríkjamann-
anna sem hafa verið í gíslingu blóm-
ann af siðasta ári.
Ferill Iranskeisara var mjög
litskrúðugur og hefur verið marg-
rakinn og varla ástæða til að tína
það til hér. Mörgum þótti þó faðir
hans litskrúðugri maður, ævintýra-
persóna sem um lék nokkur dýrðar-
Ijómi. Sonur hans tók við völdum
af honum en missti þau um hrið
aftur, á 6. áratugnum, er Mosadegh
varvið völd.
Lífshlaup fyrrum Iranskeisara
hefur oft verið í fréttum, kvennamál
hans vinsæl i slúðurdálkum og nú
síðast hefur hann verið mjög í sviðs-
Ijósinu, svo mjög að mörgum hefur
þótt nóg um að maðurinn skuli ekki
hafa fengið að deyja í friði, sem ætti
þó að vera réttur hvers einasta
manns.
Og nú, þegar Reza Palavi er
genginn til feðra sinna, eru ótal
myndir úr fortiðinni dregnar fram og
ein þeirra er einmitt þessi: af honum
á knjám föður síns, fjögurra ára
gamall og hjá standa systurnar
Shams og Ashraf.
Hver svo sem dómur sögunnar
verður um keisarann í Iran sem
hrakinn var frá völdum og hvort sá
dómur verður sanngjarn eða ekki —
e.t.v. verður hann of harður, ef
rikjandi skoðun á keisaradæminu I
veldi ajatollans verður ofan á, e.t.v.
of mildur, ef illvirki Savakleyniþjón-
ustu keisarans falla I skuggann af
enn harðari stjórn erkiklerkaveldis-
ins — þá er víst að fréttaljós keisar-
ans er ekki slokknað og hætt er við
að fjölskylda hans verði lögð í einelti
af áhugasömum blaðamönnum
uppfyllingadálka blaðanna. „Það er
jú þetta sem fólkið vill lesa um," er
viðkvæðið og það er vist margt til i
þvi.
En þvi verður ekki á móti mælt að
margt fólk hefur verið þaulsætið í
slúðurdálkum af minna tilefni en
keisarafjölskyldan, sem eitt sinn sat í
Iran, og litlu virðist varða þó hún sé
nú farin frá völdum og Reza Palavi
kominn á slóðir föður sins.
39. tbl. Vikan 17