Vikan


Vikan - 13.08.1981, Blaðsíða 62

Vikan - 13.08.1981, Blaðsíða 62
Pennaiinir Ruth Örnólfsdóttir, Hofslundi 15, 210 Garðabæ, óskar eftir pennavinum á aldrinum 12-14 ára. Er sjálf 13 ára. Áhugamál margvísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Svarar öllum bréfum. Ásdis Ósk Valsdóttir, Svarfaðarbraut 9, 620 Dalvík, og Kristin Gunnþórsdóttir, Svarfaðarbraut 10, 620 Dalvik, óska eftir að skrifast á við stráka og stelpur á aldrinum 11-14 ára. Áhugamál ýmisleg. Ásdís er 12 ára og Kristín 13. Þær svara báðar öllum bréfum og óska eftir að mynd fylgi fyrsta bréfi, sé það hægt. Helga M. Sigurjónsdóttir, Birkilundi 6, 600 Akureyri, óskar eftir að skrifast á við 12-14 ára stráka og stelpur. Áhugamál: skiði, sund, íþróttir, partí og strákar. Helga lofar að svara öllum bréfum. Kolbrún M. Katarinusdóttir, Hvassa- hrauni 7, 240 Grindavik, óskar eftir að skrifast á við stelpur á aldrinum 11-13 ára. Sjálf er hún 12 ára og hefur marg- vísleg áhugamál. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Guðriður B. Kristinsdóttir, Borgar- hrauni 18, 240 Grindavik, langar til þess að eignast pennavini (stelpur) á aldr- inum 11-13 ára. Guðríður er rétt að verða 12 ára og áhugamálin eru marg- vísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi. John Jones, Faculty of Mechanical Eng., Asuansl. Technical Institude, Post Office Box 162, Cape Coast, Ghana. Þessi náungi er 17 ára og skrifar á ensku. Áhugamálin eru borðtennis, garðyrkja og gjafa- og myndaskipti. Terry Lorsenn, Box 240, Chalmette, LA. 70044, USA. Terry er tvítugur og hefur áhuga á sögu, myntsöfnun, tónlist og listum yfirleitt. Elfn Jónsdóttir, Reynivöllum 14, 700 Egilsstöðum. Hún vill gjarnan skrifast á við stráka á aldrinum 17-19 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Erla Baldursdóttir, Bæ, Miðdölum, 371 Búðardal, óskar aö skrifast á við krakka á aldrinum 14-16 ára, sjálf er hún 14 ára. Áhugamál eru margvísleg. Svarar öllum bréfum. Elaine Zdenek, 55 Oakwood Drive, Bletchley, Milton Keynes, MK2, England. Þessi stúlka er 15 ára gömul og hefur áhuga á eldamennsku. Gillian Warman, 85 Baccara Grove, Bletchley, Milton Keynes, MK2 3AS, England. Hér er einn 15 ára sem safnar póstkortum og frímerkjum. Timo Pynttári, Kailiojárvi, SF69820 Ráyrinki, Finland. Hann Timo er 15 ára og alveg óður í að eignast pennavini á tslandi, stráka eöa stelpur. Áhugamálin eru margvísleg, frimerkja- og mynt- söfnun, veiði og skrift. Þybbin en vill verða söngkona Hæ, kæri Póstur! Mín heitasta ósk er sú að verða söngkona. Og ég ætla að athuga hvort þú getur vísað mér á eitthvað í því sambandi. Svo er annað vandamál. Ég hef reynt að fara í megrun en það helst svona í 1-2 daga, þá byrja ég aftur að éta. Getur þú ekki ráðlagt mér eitthvað? Geta reykingar haft áhrif á þroska manns? E P.S. Hvernig væri að birta viðtal við Bubba Morthens og láta plakat fylgja með? Ekki getur Pósturinn séð á bréfi þinu hvers konar söngkona þú vilt verða, dægurlaga eða það sem á vondu máli er kallað óperusöngkona. Líklega áttu við að þú viljir læra söng eða þannig skal þetta skilið. Vitanlega er engin dans á rósum að fara út í svona nám, frekar en svo margt annað. Það krefst mikillar ögunar og svo verða að vera einhverjir hæfi- leikar fyrir hendi, þá hefurðu sjálfsagt. En þú verður bara að komast til söngkennara, það er eina leiðin. Þá er um að velja einkakennara eða þá að fara í tónlistarskóla. í Reykjavík er líka starfandi söngskóli með miklum ágætum. Þú verður bara að velja á milli. Svo er þetta með megrunina. Pósturinn samþykkir ekki að þú hafir reynt að fara í megrun. Að gefast upp eftir 1-2 daga er alveg fáránlegt. Svo sannarlega er erfitt að fara í megrun og það skaltu gera þér ljóst. Þú þarft að taka á öllu þínu og reyndu nú! Má annars skilja það svo á bréfinu að þú hafir alveg hætt að borða? Sé svo ferðu algjör- lega rangt að. Allir þurfa að borða, vandinn er bara að borða ekki mat sem fer beint í spikið! Reykingarnar hafa tvímæla- laust áhrif á þroska hvers og eins. Það er löngu viðurkennd staðreynd og þvi furðulegt að enn skuli vera til fólk sem sogar ofan í sig þennan óþverra sem nikótíntjaran er. Sértu eitthvað að fikta við sigarettuna getur Pósturinn ráðlagt þér einn hlut: Steinhættu nú þegar! Þú bjargar því sem mest er um vert, heilsu þinni, og svo geturðu notað peningana í annað en líkkistu- naglana! P.S. Allar góðar hugmyndir eru vel þegnar. Þessi er ekki sú versta. Fyrirsæta Kæri Póstur. Ég hef aldrei skrifað þér áður en hef frétt að Pósturinn sé mjög góður að hjálpa manni úr mörgum vandræðum. Þess vegna datt mér í hug að skrifa þér. Mitt vandamál er það að mig langar að verða fyrirsæta. Þarf maður að vera vel vaxinn og laglegur? Á hvaða aldri verður maður að vera til þess að geta orðið fyrirsæta? Hvert á maður að snúa sér? Ég er frekar ung ennþá, kannski eru þetta einhverjir draumar en mér er alveg sama hvað fólk segir, þetta er minn stóri draumur, að verða fyrirsæta. Álft. P.S. Getur Pósturinn nokkuð botnað hjá mér hvað ég sé gömul. Það er ljóst að margir eiga sér þann draum að verða fyrir- sætur. Eitthvað er það við starfið sem heillar, það getur verið fjölbreytt og spennandi en það er ekki bara dans á rósum og bros í sviðsljósinu. Starfið getur líka verið erfitt, þreytandi, innantómt og einhæft. Til dæmis getur ljósmyndafyrirsætu verið uppálagt að ganga berleggjuð út í miðja á snemma að vori og húka þar meðan verið er að mynda. Það getur tekið allnokkra stund og þegar fyrir- sætan er orðin blánefjuð og farin að hnerra það oft að fyrir- sjáanlegt er að allar myndirnar verði hreyfðar þá er hætt við allt saman og ákveðið að endurtaka það næsta dag. Fyrirsætur af báðum kynjum verða víst að vera vel af guði gerðar, aðal- Skop 62 Vikan 33. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.