Vikan - 13.05.1982, Page 2
Margt smátt
Saga dómarans
- //. hluti
Lögfræðingurinn: Ég vildi að ég hefði
getaðgert meira fyrir þig.
Fanginn: Þakka þér, en mér finnst alveg
nóg að fá tíu ár. *
Hafið þið heyrt um fangann sem átti svo
erfitt með að muna tölur að hann gat
ekki einu sinni munað nafnið sitt?
★
Lögreglumaðurinn kom að manni sem
lá i götunni á bilastæði. „Ertu veikur?
Get ég nokkuð gert fyrir þig?" spurði
lögregluþjónninn. „Það er allt i lagi með
mig,” sagði maðurinn, „ég fann bara
þetta stæði og sendi konuna i búð að
kaupa bíl. ★
Dómarinn: Herra Fantus, þú varst hand-
tekinn við þá þokkalegu iðju að stela fil.
Hvers vegna varstu að því?
Ákærði: Pabbi gamli sagði alltaf við mig
að ef ég ætlaði að stela þá skyldi ég stela
stórt.
★
Þegar mótorhjólalöggan stöðvaði
manninn fyrir of hraðan akstur sagði
eiginkonan: Hann keyrði ekkert hraðar
en venjulega.
★
Fangi nr. 6583198: Meinarðu það aö
löggan hafi stoppað þig á 30 km hraða?
Fangi nr. 7805407: Já, ég var reyndar
kominn inn í stofu á einu húsi þá. ★
Dómarinn: Hvað eruð þér gömul?
Konan: 21 árs og nokkurra mánaða.
Dómarinn: Hvað margra mánaða?
Mundu að þú ert eiðsvarin.
Konan: 127 mánaða.
★
Dómarinn: Herra minn, ertu sekur um
þennan glæp?
Ákærði: Ég veit það nú ekki. Ég er ekki
l'arinn að heyra ræðu saksóknarans.
frjálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 1982.
Enginn þjóf-
urfinnstá
Seyðisfirði
Heyrst hefur að aðrir bæir hafi farið
fram á sams konar siðferðisvottorð!
Willy Breinholst
LEIGJANDINN í KÚLUNNI
Má ég vera í friði!
Ég get bara ekki þolað þegar
mamma fer með mig á þessar
kerlingasamkomur. Nima var hún
hjá einhverju sem þær kölluðu
SL ÖKUNA RFRÆÐING. Mér verður
alltaf um og ó þegar þessar heimsku
kerlingar eru að segja eitthvað
svona merkilegar og láta mömmu
gera einhver heimskupör i staðinn
fyrir að láta mig og mömmu i friði og
leyfa okkur að hafa það gott saman.
Þessi nýja kerling sagði mömmu
að leggjast fyrir og æfa algera
slökun. Hún átti að draga andann
djúpt inn um nefið og anda svo hægt
frá sér gegnum eyrun (eða munninn
— það var að minnsta kosti eitthvað
sem hún átti að anda h-æ-g-t frá sér
gegnum). Svo átti mamma að losa
um alla ónauðsynlega spennu, loka
allt óviðkomandi úti og einbeita sér
að likama sinum. Sagði slökunar-
fræðikonan. Ef mamma vildi nú
reyna í alvöru að skilja samstarf
öndunar og vöðva og þýðingu þess,
sagði slökunarfræðikonan, yrði það
mömmu að miklu gagni.
Bla bla bla bla!
Hið skrifaða orð
Jóhannes og Júlía eru í Álftamýrarskóla og voru i þrjá daga í
starfskynningu hér á VIKUNNI. Þau hafa bæði mikinn áhuga á
blaðamennsku og vildu því kynna sér nánar hvernig slík starfsemi
færi raunverulega fram. Þau voru ómyrk í máli er þau töluðu við
okkur um jafnaldra sína. Þeim finnst lítið gert til þess að skapa
spennandi viðfangsefni fyrir þessa aldurshópa og því lítið annað að
gera fyrir þá en að hanga í hópum á spilastöðum og Hallærisplaninu.
Það sem vantar sérstaklega að þeirra mati eru litlir staðir þar sem
unglingar mega skemmta sér, án þess að hafa haukfrán augu hinna
eldri yfir sér.
Jóhannes og Júlía stefna bæði á menntaskólanám í haust og töldu
sig stórum fróðari um alla vinnslu blaðsins eftir dvölina á
VIKUNNI.________________________________________i
Það kostarekki nema 1500 krónui
að auki að taka„sólargeislann"
með sér til Mexico
... en hvað skyldi kosta að koma með hann heim?
Það getur vafist fyrir fólki að barnaleikur að kaupa nýjan
kaupa nýjan bíl — en það er Skoda.
„Ég hefði betur verið í bomsum”
Þannig scgir í sjónvarps- maður að gcra cf maður vill nú samt
auglýsingunni frá Jöfri. En hvað á ckki hætta við að kaupa nýjan bil?
Vikan, sniffið og Rokkið í Reykjavík
Fjórtán ára og yngri meinaður aðgangur
að íslenskri rokkkvikmynd vegna þess að
fjallað er um eitthvað sem máli skiptir.
Það er alveg óskiljanlegt. Sniff hefur
verið vandamál hér á landi og er stórt
vandamál i nágrannalöndunum. Þess
vegna þýðir ekkert að fara að banna
umtal um það. Það hverfur ekki með
þögninni. Ef hlegið er að þvi að fólk geti
orðið meira og minna brenglað af notkun
sniffs, þá er það áreiðanlega blendinn
hlátur, einhvers konar útrás fyrir tauga-
veiklun. Vikan hefur ekki tekið þátt i
þögninni um sniffið og í byrjun október
var itarleg umfjöllun um málið í blaðinu
(41. tbl. 1981). Friðrik Þór Friðriksson
taldi að hann hefði í desember verið að
vekja máls á einhverju sem ekki hefði
verið talað um i fjölmiðlum. Það vita
unglingarnir sem lesa Vikuna að er ekki
rétt. Og er hér með leiðrétt.
★
2 Vikan 19. tbl,