Vikan - 13.05.1982, Blaðsíða 16
Fjölskyldumál
getur veriö erfitt fyrir margar konur sem
hafa gaman af að fá sér i glas, án þess þó
að teljast alkóhólistar.
Þegar rætt er um áfengisneyslu á
meðgöngutima er yfirleitt sagt að mikil
og jöfn dagleg notkun sé skaðleg. Oft er
nefnt að 30-50 cl hreint alkóhól, sem
samsvarar unt það bil einni rauðvins-
flösku á dag, sé tvimælalaust skaðlegt.
Hversu mikið magnið þarf nákvæmlega
að vera til að skadda fóstrið er ekki
vitað. Það liggja ekki fyrir rannsóknir
um hvort litilsháttar magn af áfengi af
og til á meðgöngutima geti skaddað
fóstrið. Það er hins vegar staðhæft um
áfengisneyslu eins og reykingar: þvi
meira magn, þeim mun meiri likur á
sköddun.
Áfcngi oft
ckki cina vandamálið
Þegar áfengi er misnotað kemur oft i
Ijós að sá sem neytir þess á við ýmis
önnur vandamál að stríða. Áfengið er
bara eitt af mörgum þáttum sem gera
einstaklingnum lifið leitt. Ýmiss konar
fjölskyldu- eða sambúðarerfiðleikar geta
komið til, fjárhagsvandræði og
húsnæðisvandræði eru einnig algengir
fylgifiskar. Geðræn vandkvæði og
óánægja á vinnustað eru ekki óalgeng
fyrirbrigði hjá þeim sem ofnota áfengi.
Allir þessir þættir geta verið fyrir hendi
samfara áfengisneyslu á meðgöngutíma
og þvi þarf oft að vera hægt að aðstoða
einstaklinginn á fleiri vegu en bara í
sambandi viðáfengisvandann.
Áfcngi í líkama
móður og barns
Hér áður fyrr héldu margir að áfengi i
líkama móður hefði engin áhrif á barnið.
Nú telja menn að sannað sé að áfengis-
magnið sé nokkuð það sama í fóstrinu
og hjá móðurinni. í Bandarikjunum
hafa margar tilraunir verið gerðar á
dýrum til að komast að þvi hvaða áhrif
áfengi hefur á fóstur. 1 einni af þessum
tilraunum var sprautað alkóhólupplausn
í dýr. Miðað var við að kona um
fimmtiu kiló að þyngd drykki um eina
flösku af borðvini á tveim timum. Siðan
var heilastarfsemi fóstursins mæld.
Rannsóknin sýndi að fóstrið varð
meðvitundarlaust í lok innsprautunar og
i talsverðan tima þar á eftir. Þetta þótti
r©trmg
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2 Simi 13271
viðurkenndir úrvals p jennar fyrir
atvinnumenn, kennara og námsfólk.
Rotring téiknipennar og teiknláhöt d
fást 1 þægilegum einingum fyrir
skóla og teiknistofur.
meðal annars sanna að fóstur verður
fyrir sömu áhrifum af áfengisneyslu og
móðir — og sist minni.
Niðurstöður
Oft eru nefndar fjórar umfangsmiklar
rannsóknir sem hafa verið gerðar á
börnum áfengissjúkra mæðra. Þessar
rannsóknir hafa verið framkvæmdar í
Frakklandi, Bandaríkjunum, Vestur-
Þýskalandi og Gautaborg í Sviþjóð.
Niðurstöður þessara rannsókna gefa
allar svipaða mynd. Ef móðir er áfengis-
sjúk á meðgöngutima eru 40-50% líkur
á þvi að fóstrið verði alvarlega skaddað.
Svíþjóð er það Norðurlandanna sem
stendur einna fremst i rannsóknum á
þessu sviði. Þar sýna niðurstöður að um
hundrað börn fæðast árlega alvarlega
sködduð vegna áfengisneyslu og um tvö
hundruð börn eru talin hafa ýmsa
minniháttar skaða. I Sviþjóð er einnig
talið að um fimmtán til tuttugu börn
fæðist árlega með hjartagalla vegna
áfengisneyslu móður.
Hvað Ísland snertir eru ekki dl
nákvæmar rannsóknir á þessu sviði en
oft er vitað um verðandi mæður sem
hafa misnotað áfengi á meðgöngutima.
Hversu umfangsmiklir skaðar eru af
þessum völdum er ekki vitað. Það er
hins vegar ekki að efa að menn láta þessi
mál sig æ meira varða hér á landi þegar
fram í sækir. Aukin áfengisneysla
kvenna og kannski sérstaklega ungra
kvenna og sókn i alls kyns vímugjafa
hlýtur að kalla á viðbrögð í sambandi
við hugsanlegar fósturskemmdir.
veítk’ augtýsendum
góða þjönustu
á skynsamlegu verði
og hver augtýsing
nær til allra lesenda
VIKUNNAR.
Auglýsingasími:
85320
Spennum beltin
ALLTAF
- ekki stundum
V - V
|—
16 Vikan 19. tbl