Vikan


Vikan - 13.05.1982, Page 43

Vikan - 13.05.1982, Page 43
maður, hann hét Pétur, há- vaxinn og herðabreiður og mjög glæsilegur. Hann hafði allt það til að bera sem dugði til að tendra glóð í hjarta hennar. En hann hafði aldrei sýnt Lottu svo mikið sem fimm aura virði af áhuga. Þar til dag nokkurn eftir seinasta tímann, þegar hún var að leggja af stað heim á hjólinu sinu. — Heyrðu, Lotta, sagði hann, ertu að gera eitthvað í kvöld? — Ég þarf að skrifa ritgerð og læra frönskuna og... — Skítt með frönskuna! Ég var ekki að tala urn það. Má ég ekki koma til þin urn áttaleytið? Lotta var næstum búin að fá slag. Hún gat ekki mælt orð af vörum. — Þú ert með sérherbergi, er þaðekki? Lotta kinkaði kolli, ölvuð af hamingju, ljómandi af kæti. Honum virtist vera alvara. — Ókei, elskan! Ég kem þá um átta! Þar með var hann þotinn. Ef það var eitthvað sem Lottu tókst ekki þennan dag þá var það að skrifa ritgerð og læra frönskuna sína. Hins vegar gerði hún allsherjarhreingerningu i herberginu sínu og mamma hennar fékk næstum slag þegar hún sá til hennar. — Ég vil ekki láta trufla mig I kvöld, sagði Lotta, ég á von á gestum. — Það er meira, megum við vera í húsinu, eða hvað? svaraði mamma hennar dálítið móðguð. Það er merkilegt með þessar mæður, þeim er svo sem nógu mikið kappsmál að koma dætrunum út en vilja helst ekki að neinn komi og líti á gripinn. — Kvöldið! sagði Pétur. — Komdu inn, sagði Lotta. Svo fór hún með hann upp í herbergið sitt. Hann skellti sér i sófann. Síðan úðuðu þau I sig heilmiklu súkkulaði og Pési tæmdi sex kókflöskur. Fyrst í stað hlustuðu þau á plötur en horfðu svo á sjónvarpið smástund. Það var mjög spennandi landsleikur. Pétur var mjög áhugasamur fót- boltaleikari og var í liðinu á staðnum. Þegar leikurinn var búinn í sjónvarpinu stóð Pétur á Þýð.: Anna fætur. Hann þurfti að fara heim að læra. — Þú ert velkominn aftur ef þú vilt, sagði Lotta. — Það væri fínt, sagði Pétur. Svofór hann. Hálfum mánuði seinna sendi Pési henni miða I stærðfræði- tímanum, reyndar beint í hnakkann á henni. Lotta tók hann upp af gólfinu og fletti honum sundur. „Lít inn hjá þér I kvöld, ókei?” stóð. Lotta leit til hans og kinkaði kolli í ákafa. Rétt fyrir átta kom hann. Fyrst hlustuðu þau á nokkrar plötur, svo drakk hann sex kók og hámaði í sig tvær plötur af sú' kulaði og þá var orðið svo framc ðið að kominn var hörku- spennandi leikur í sjónvarpið. Þau settust full áhuga að horfa á baráttuna og leikurinn var ekki búinn fyrr en klukkan að ganga tólf. — Það var svei mér orðið áliðið þegar ungi maðurinn fór, sagði mamma hennar Lottu. — Ertu fávi, eða hvað, manneskja? sagði Lotta. Það er ekkert seint að fara rúmlega ellefu, sagði Lotta hneyksluð. — , Ég er ekki níu ára lengur! Svona tala nú dæturnar við mömmur sínar nú á dögum. Næstu mánuði heimsótti Pési Lottu reglubundið. Vin- konur hennar voru gular og grænar af öfund. Pési var sætasti strákurinn I bekknum. Svo það var kannski von. Lotta var alsæl. En svo var það kvöld nokkurt, þegar þau voru búin að horfa á landsleik I sjónvarpinu og Pétur stóð upp til að slökkva á kassanum, að veröld hennar hrundi til grunna og hjartað brast eins og sápukúla. Margar vikur liðu þar til hún komst til sjálfrar sín á ný. Og allt var þetta Pétri að kenna, þeirri heimsku geit! — Þú þarna, Lotta, sagði hann. Nú sleppur þú við að hafa mig hangandi hér yfir þér í hvert sinn sem er góður landsleikur í sjónvarpinu. Gömlu hjónin heima eru loksins búin að drífa I að gefa mér gamlan imba í her- bergið mitt. Stjörnuspá Ki.'Sihiim 22. jiini 2.\. jiili Nú er tækifæri til að láta gott af sér leiða. Reyndu að hafa hemil á sl' , - unum þínum og láta ekki smámuni hafa áhrif á þig. Þú finnur fyrir lasleika, en það mun líða hjá fljótlega. \oiiiii 21.>C|>I. 2.Voki. Deilumál veldur þér miklu hugarangri og hefur talsverð áhrif á framtíðarákvarðanir þinar. Þú skalt ekki flana að neinu. þvi það gæti orðið afdrifaríkt. Þér býðst óvæntur glaðningur, sem þú ættir að þiggja. Slcingeilin 22. dcs. 20. jan. Þú færð fréttir sem koma þér algerlega í opna skjöldu. Þó þér finnist allt vera svart framundan þá birtir um síðir. Það verður mikil röskun á heimilishögum og þú verður að skipu- leggja vinnu þina upp á nýtt. Ilruiurinn 2l.in;irs 20.afiril Heimilislífið getur orðið sérstaklega ánægjulegt þessa vikuna, ef þú kærir þig um að taka þátt í því. Bjóddu heim fólki sem þú hefur ekki hitt lengi, en hefur alltaf ætlað að hitta. Yngra fólkið á von á óvæntum glaðningi. \;iiilirt 21. tipriI 2l.ni;ii Skortur á reiðufé kemur i veg fyrir að þú getir framkvæmt áætlanir, sem þú hefur verið lengi að skipuleggja. Um stundarsakir finnst þér þetta vera ólýsanleg vonbrigði, en tíminn læknar öll sár. I. jónio 24. juli 24. .Íijii‘1 Það er mikið annríki framundan og þú verður að taka á honum stóra þinum til að allir endar nái saman. Láttu það samt ekki koma i veg í j. .r að þú heimsækir vini, sem hafa hlakkað mikið til að sjá þig. Þú teflir á tvær hættur í vikunni og endalokin verða mjög tvísýn. Atburðir sem þessi eru ætlaðir til að þroska manninn svo þú ættir að reyna að læra af þessum mistökum. Óvænt símtal verður þér ihugunarefni. \;ilnsl>crinn 2l.j;in. W.fchr. Þú lendir i rifrildi við einhvern sem er þér ná- kominn. Þú lætur mörg þung orð falla sem þú getur engan veginn staðið við. Þú verður að brjóta odd af oflæti þínu og biðjast afsökunar áður en að er of seint. 1\ihur;irnir 22.m;ii 21. júni Þú ferð í langt ferðalag á næstunni. Þó þú sért búinn að gera ferða- áætlun, þá mun hún riðlast út af óvæntum atburði. Það kemur á engan hátt i veg fyrir að ferðalagið verði mjög ánægjulegt. Þú vekur óvænta athygli, sem á eftir að hjálpa þér við úrlausn verkefnis sem þú vinnur að. Þér hættir til að verða feiminn og hlé- drægur við aðstæður sem þessar, en þú yfir- stígur þaö. Ho]fm;ióiiriiin 24.no\. 2!.ilcs Þessi vika er hagstæð til að taka ákvarðanir um fjárfestingu. Þú hefur unnið lengi að þvi að láta þennan draum rætast og nú er rétti tíminn. Kvöldin eru happadrjúg þeim sem vilja sinna ástarmálum. Fiskurnir 20.íchr. 20.mar\ Ef þú dvelur fjarri þeim sem eru þér nákomnir þá skaltu drífa í því að afla þér frétta af þeim. Það eru miklar hræringar i einkamálum framundan. Vertu varkár i fjármálum. 19. tbl. Vikan 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.