Vikan - 12.08.1982, Page 25
,, Jtjg var að ljúka
Menntaskólanum við
Hamrahlíð nú um síðast-
liðin jól. Hvað svo tekur
við veit ég ekki, býst jafn-
vel við að fara í Háskólann
í haust.” Þetta sagði
Margrét Gunnlaugsdóttir
í viðtali við Vikuna. En
hver er þessi Margrét?
Svona okkar á milli (í hita
og þunga dagsins) leikur
hún í nýju myndinni hans
Hrafns Gunnlaugssonar.
Þessi geðuga Reykjavíkur-
stúlka á því eftir að birtast
á tjöldum flestra kvik-
myndahúsa landsins
næstu vikur og mánuði.
Hver veit líka nema hún
geri víðreist um heiminn.
Efnivið í góðar íslenskar
kvikmyndir vantar ekki né
hæfileikafólk til að leika.
Galdurinn er að hafa upp
á því. En Margrét fannst
og vel er það.
„Ég var á málasviði í Hamrahlíðinni og
lafði þar leiklist líka. Hún er valgrein í eitt og
íálft ár, eða þrjár annir. Svo var ég með leik-’
istarfélaginu sem setur upp eina til tvær sýn-
ingar á ári.” Það leynir sér ekki að hugurinn
stendur til leiklistarinnar meira en nokkurs
annars, þótt þessar háskólaþenkingar séu.
Með leiklistarfélaginu lék Margrét meðal
annarra leikrita í Sköllóttu söngkonunni og Vatz-
laf. Ekki lét hún þar við sitja heldur var aö-
stoöarleikstjóri í Andorra. „Þetta er það eina
sem mig langar í raun og veru til að gera,”
segir hún um leiklistina og bætir við að allt í
kringum þá listgrein sé „alveg hræðilega
skemmtilegt.”
32. tbl. Vikan 2$