Vikan


Vikan - 12.08.1982, Side 42

Vikan - 12.08.1982, Side 42
gleymt, hvernig áhrif borgin haföi á manneskjurnar, þær lokuöust og settu upp grímu til að halda öör- um frá sér. Þaö rann upp fyrir henni, hversu vel henni geðjaðist að lífinu á Hedinge. Fyrsta verk Tessu var að heim- sækja Haus lækni, sem hafði stofu þarna rétt hjá. Hún varð að bíða í tíu langar mínútuf, áður en hann gaf sér tíma til að ræða viö hana. Hann varð bæði undrandi og glaður að sjá hana. — Mikiö er ég búinn að velta vöngum yfir því, hvað orðið hafi af svarta englinum okkar, sagði hann. — Og presturinn var engu fróðari en ég. Presturinn hafði greinilega þagað yfir óláni hennar, og fyrir þaö var Tessa afar þakklát. — Doktor Haus, sagði hún. — Þér eruö besti læknirinn, sem ég þekki. Ég á vin, sem ég hef miklar áhyggjur af. — Einn fátæklinganna þinna? — Nei. Því miöur hef ég ekki haft tök á að líta til þeirra nú um langt skeið. Nei, í þetta skipti er um dálítið annað aö ræða. Hún lýsti nú, eins vel og henni frekast var unnt, meinum höfuðs- mannsins, bæði út frá hryggnum og andlitslýtum hans. Að frásögn hennar lokinni var læknirinn hugsi um stund. — Samkvæmt lýsingunni gæti þarna verið um aö ræða eitthvað, sem þrýstir á einhverja af stóru taugunum í hryggnum, sagði hann. — Sennilegast er, að kúlan sitjiþarna ennþá. — Er það rétt, aö hann muni lamast smám saman? — Já, hægt og samfara miklum sársauka. Tessa stundi lágt. — En deyr hann? — Þaö er erfitt að segja, nema að undangenginni rannsókn. En ekki virðist þaö óhugsandi. — Er þá útilokað að hjálpa hon- um? spurði hún full örvæntingar. Haus læknir tók fram blað og penna. Hann fitlaði við pennann og hrukkaði ennið. Svo tók hann ákvörðun. — Ég ætla að vísa ykkur á starfsbróður minn, doktor Svedin. Hann er okkar fremsti skurðlækn- ir, og ef hann getur ekki hjálpað vini þínum, getur það enginn. Hann getur einnig litið á andlit hans, því Svedin er ákaflega fær, langt á undan sinni samtíö að mínu áliti. Gjörðu svo vel! Ég skal senda honum orð um, að þið séuð væntanleg. Hvaö er annars aö frétta af þínu fólki? Mér hefur allt- af skilist, aö þú kæmir frá vel stæðri fjölskyldu. Tessa laut höfði, meðan hún kom tilvísuninni fyrir í tösku sinni. — Ég held ég megi segja, að af þeim sé allt gott að frétta, sagði hún svo lágt, aö varla heyrðist. Læknirinn vildi enga greiöslu taka, sem var eins gott, þar eö hún hafði ekkert slíkt að bjóða. Þegar hún kom aftur út á göt- una, fannst henni óróleikinn hafa magnast, og hún hraðaði sér á næsta áfangastað. Lágstéttar- fólkið var áberandi á götunum, og spenna var í loftinu. Hálftíma síöar kom Tessa aftur á torgið, enn meö myndirnar sínar undir handleggnum. Höfuðsmað- urinn stóð og beið hjá vagninum. Og enda þótt Tessa væri niður- dregin, fann hún gleðina yfir aö sjá hann gagntaka sig. Hann var sem vin í þessari eyðimörk, sem borgin var orðin henni. — Nú, við erum bæði jafnstund- vís, sagði hann meö uppgerðar glaðværð. — Blomberg vék sér frá INNRÉTTINGA ÞJÓNUSTAN SKÚLATÚN 6-124 REYKJAVÍK SÍMAR 2 98 40 & 2 98 55 Franskir úrvals arnar frá kr. 7.000-40.000.- Uppsetning innifalin. Komiö og skoðið í sýningarsal okkar eða hringið eftir myndalista. yýr C 1| K M I N K ^ RICHARD LE DROFF Yfir22000gerðirfrá stærsta og virtasta arinframleiðanda Frakklands 42 VlKati Jl.tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.