Vikan - 05.09.1985, Page 19
„Ég tók þá stefnu strax i upphafi að það skyldi aidrei bitna ð störfum
mínum sem fréttamaður að ég væri kona með heimili. Hvort það hefur
bitnað á heimilinu að ég var fréttamaður, það er önnur saga."
slæmt. Þaö hefur sýnt sig í skoöana-
könnunum að fólk vill innlent efni. Mér
finnst að í þessari væntanlegu
samkeppni eigum viö þar okkar
tromp.”
— Heldurðu að einhver breyting verði
6 sjónvarpinu þegar nýju lögin ganga i
gildi?
„Þaö er alveg ljóst. Þessi stofnun er
aö tæmast. Mér finrist alveg óþarfi aö
Ríkisútvarpið sé útungunarstöö fyrir
aöra fjölmiðla sem eiga eftir aö koma.
Mér finnst þetta síðasta ár á
sjónvarpinu hafa veriö öðruvísi en árin
á undan — allt annar andi. Fólk er
óánægt meö launin sín. Ég hef verið í
þeirri draumaaðstöðu aö maöurinn
minn haföi sín laun frá
Bandaríkjunum þannig aö viö höfum
verið fjárhagslega vel sett. Ég hef ekki
þurft aö hafa áhyggjur af því hvort ég
ætti salt í grautinn minn á morgun. Ég
finn það núna hvaö maður nýtur sín
miklu betur þegar maöur þarf ekki aö
hafa áhyggjur af því. Og ég vildi ekki
þurfa að lifa á þeim launum sem ég
hef. Ég skil vel fólk sem er aö gefast
upp á því að reyna aö lifa á þessum
launum. Þaö var einhvern daginn aö
ég kom heim meö launaseöil og
tryggingarnar af húsinu, bílnum og
hitaveitureikningur, þetta kom allt
saman. Ég held að ég hafi átt 2—3
þúsund eftir af fastalaununum þegar
ég var búin aö borga þaö.”
— Þig hefur ekki dreymt um að
komast í fréttamannastarf erlendis?
„Ég er fremur raunsæ yfirleitt og
hef heyrt utan aö mér hvernig um
þessar stööur er talað. Þaö er svo
brjáluö samkeppni um þessar stööur
innan f jölmiöla aö þaö hvarflar ekki aö
mér aö kona á mínum aldri, talandi
ensku meö mínum hreim, hafi nokkra
möguleika. Ég hef heyrt á tal
krakkanna í skólanum, sem ég er í, aö
þeir eiga ekki orö yfir vitleysuna í mér
aö vera meö fasta stööu sem frétta-
maður og vera í skóla. Þaö er fjar-
lægur draumur þeirra að komast í
stööu.”
— Á hvaða aldri eru krakkarnir sam þú
ert með i skólanum?
„Meðan ég var í B.A. námi voru þeir
flestir á bilinu 20—25 en ég á marga
jafnaldra í náminu sem ég er í núna.
Þeir eru á bilinu 25—50.”
Átti barn í jólafríinu
— Er ekki geysileg endurnýjun að fara
í svona nám?
„Jú, og ég heföi ekki trúaö því fyrir-
fram. Þetta er náttúrlega erfitt.
Mér finnst gaman aö vera í skóla
aftur og hafa starfsreynslu aö baki.
Maöur lærir á allt annan hátt og kann
aö vinna. Vinnuálagiö í sjónvarpinu
hefur komiö mér aö mjög miklu gagni.
Ég get bæöi unnið undir pressu og
mjög mikið. Maöur sér hlutina í ööru
ljósi. Égheld ég geti fullyrt aö núna er
ég aö gera hluti í skólanum sem ég
heföi ekki getaö gert þegar ég var
tvítug. Hins vegar mæli ég ekkert meö
því aö konur og karlar bíöi svona lengi
meö aö fara í skóla. En betra er seint
en aldrei.”
— Komu ekki einhvern tímann hlé út
af barneignum þar sem þú varðst að
vera heima?
„Ég var heima í tvo mánuöi þegar ég
átti eldri strákinn minn og þá var
hringt af Mogganum og spurt hvort ég
gæti ekki fariö aö koma. Ég fór. I
seinna skiptiö var ég ritstjóri á
Islendingi á Akureyri og ég skipulagði
jólablaöiö, gekk frá því og var búin aö
semja viö lækni á Akureyri um aö
framkalla fæöingu svo ég gæti notað
jólafríið til aö jafna mig. Svo fór ég
aftur aö vinna 2. janúar og kom aftur
út blaöi fyrstu vikuna eftir áramót.
Strákurinn fæddist 15. des. Mér fannst
þetta ekkert mál — honum ekki heldur.
Hann virtist dafna vel.”
— Hefurðu notað dagvistarstofnanir?
„Ég hef veriö meö dagmömmur og
fékk svo stelpur frá Noregi einhvern
tímann. Þær pössuðu fyrir mig. Svo
var ég meö yngri strákinn minn á dag-
heimili og þurfti svo aö hafa stelpu
búandi hjá mér til aö passa hann frá
5—9 á daginn, þannig aö þaö er ekki
gott starf fyrir einstæða móöur aö vera
hjásjónvarpi.”
— En þér hefur tekist að halda góðu
sambandi við börnin. Nú er þetta mál
sem margar konur glíma viö — það
virðist bitna á þeim. Hvað myndiröu ráð-
leggja þeim: reyna að eiga börnin í jóla-
fríinu, taka sér hlé frá vinnu eða....?
„Þaö geta ekki allir átt börnin í jóla-
fríinu,” segir Sigrún brosandi. „Ég
vildi ekki vera án þess aö eiga þessi
börn. Þaö er einn hlutur sem ég vildi
ekki vera án í lífinu. Hins vegar vildi
ég hafa haft meiri tíma meö þeim. Ég
væri aö ljúga ef ég segði annað. En
mér hefur tekist aö vera góöur vinur
sona minna. Þeim finnst jafnsjálfsagt
að ég sé útivinnandi eins og sjálfsagt
mörgum krökkum finnst aö pabbi
þeirra sé útivinnandi. Þeir virða mig
sem slíka. Ég tók sérstaklega eftir því,
þegar ég var í skólanum, aö minn tími
var virtur. Ég held að ef krakkar geta
lært aö viröa tíma mæöra sinna séum
viö komin ákveöið skref fram á viö.
Yrði leiðinleg heimavinn-
andi húsmóðir
Ég er svo heppin aö ég hef í mörgum
tilfellum getað haft barniö mitt með
mér. Hann kemur oft meö mér í túra
og er meö mér í vinnunni. Hann veit
hvaö ég er aö gera. Hann getur leikiö
sér með bækur eöa eitthvað og á
marga góða vini niöri í sjónvarpi.
Þetta gengur þannig. Oft hefur þetta
hins vegar veriö puö og sérstaklega
náttúrlega þegar hann var yngri og ég
þurfti jafnvel aö fara til vinkvenna
minna og fá pössun á jóladag. Þaö er
ekkert gaman. Þá átti ég vakt og
enginn var tilbúinn aö skipta og fórna
eigin jólum fyrir einstæöan frétta-
mann.
En ég held aö ég yröi leiðinleg
heimavinnandi húsmóðir.”
— Ertu allt of rösk og frek?
„Ég held aö strákunum mínum þyki
ég ekki leiðinleg en ég hugsa aö þeim
þætti þaö ef ég væri alltaf heima. Ég
hugsa aö ég fengi þrifnaðarbrjálæði
eöa eitthvaö til þess aö hafa nóg aö
gera.”
— En hvað um önnur áhugamál.
Tekur starfið og heimilið kannski allan
tímann?
„Nei, nei. Ég hef gaman af því aö
feröast og hef gert mikið að því. Ég
prjóna mikið og eins hef ég mjög
gaman af íþróttum, manneskjulegum
íþróttum. Ég er litiö gefin fyrir
keppnisíþróttir en ég hef gaman af
skíöum og sundi og almenningsí-
þróttum. Ég trimma á hverjum degi.”
— Hvað tekur það langan tíma?
„Þaö tekur svona 35 mínútur.”
— Gerirðu það alltaf á sama tíma?
„Ég byrja alltaf daginn á því —
hleyp fjóra hringi í kringum Mikla-
tiiniö. Þaö er dálítið drjúgt.”
— Þér finnst þeim tima vel varið?
„Mér finnst þaö. Og ég held að sá
tími sem fer í trimmið skili sér marg-
falt. Ég fann þaö úti, þegar ég var í
skólanum, aö heföi ég ekki verið
hraust og í góöu formi heföi ég aldrei
getað gert það sem ég gerði því þaö er
ekki síður líkamlegt púl aö vera í skóla
heldur en andlegt. Ég held ég geti leyft
mér aö segja þaö aö ég geti unnið
flesta kollega mína af mér og ég þakka
þaö trimmi. Ég hef ekki alltaf haft þaö
auðvelt. Þegar ég hef átt þaö erfiðast
hefur trimmið b jargaö. ”
„Lít á þetta sem
alvörustarf"
Þú hefur aldrei velt því fyrir þór aö
fara út i pólitík eins og sumir aðrir sem
sést hafa í sjónvarpi?
„Nei, ég hef aldrei gert þaö.”
— Hefurðu engan áhuga á því?
„Ég hef veriö ánægö þar sem
ég hef verið og þaö er mitt fag.
Hins vegar lofa ég engu um framtíðina
en ég stefni ekki aö því. Alls ekki. Og
ég ímynda mér aö þetta sé miklu
skemmtilegra starf sem ég er í. Ég hef
stundum verið aö þvælast þarna niðri á
þingi og hef hálfvorkennt fólkinu þar.
Ég geng ekki með pólitíkus í
maganum.”
— Það hefur ekki verið reynt viö þig
af stjórnmálaflokkum eins og af sjón-
varpsstöðvum?
„Nei, það hefur ekki verið falast
eftir mér. Ég þyki ekki vænlegur
kostur í þeirra augum. Enda verö ég
að segja þaö aö ég hálflít niöur á þessa
tilhneigingu hjá flokkum aö fá þekkt
andlit. Mér finnst þetta lélegt sölu-
trix.”
— Hvað finnst þór um pólitik og
fróttamennsku? Finnst þór fróttamenn
geta verið í stjórnmálaflokkum og
starfað?
„Mér finnst þaö náttúrlega sjálf-
sögð mannréttindi að mega vera í
stjórnmálaflokki. Mér finnst hins
vegar þægilegast að vera þaö ekki.
Þaö hefur veriö mín stefna að vera
ekki í neinum flokki á meðan ég er í
þessu starfi. Ég er miklu frjálsari. Mér
finnst ekki veita af því frelsi. Þaö er
nóg af fjötrum samt.
Þaö hafa gilt reglur í sjónvarpi sem
mér finnast skynsamlegar. Þegar fólk
er í framboði þá má það ekki koma
fram.
En þaö eru svo margir búnir að fara
þessa leiö að ég verð pirruö þegar ég er
spurö að því hvort ég ætli ekki út í póli-
tík því þaö er eins og þaö sé yfirskin
fyrir veröandi pólitíkusa aö vera
fréttamaður. Ég lít á þaö sem alvöru-
starf en ekki sem einhvern stökkpall.”
36. tbl. Vikan 19