Vikan - 05.09.1985, Page 26
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar:
rnar
afmælisbarnið?
Séra Árelíus Níelsson
verður 75 ára í þessari viku.
Hann fæddist í Flatey á
Breiðafirði þann 7.
september 1910. Árelíus
stundaði kennslustörf í
fjöldamörg ár en þekktastur
er hann sjálfsagt fyrir starf
sitt sem sóknarprestur. Hann
gegndi prestsþjónustu í
Fnjóskadal, Reykhólasveit, á
Stokkseyri og seinast í Lang-
holtsprestakalli í Reykjavík
á árunum 1952—1980. Vikan
sendir séra Árelíusi árnaðar-
óskir í tilefni af þessu merkis-
afmæli.
Séra Árelíus
á stórafmæli
enda er hann
maður
vikunnar
Aðrir sem eiga afmœli í
þessari viku eru til dæmis:
Raquel Welch leikkona,
verður háiffimmtug þann 5.
september.
Gisli Jóhannsson frá Dals-
garði, fæddur árið 1958 sama
dag og séra Árelius (enda
ættaður úr Breiðafjarðareyjum
eins og hann).
Katrín Lilja Ævarsdóttir nemi,
fædd 8. september 1971.
Jónas E. Svafár skáld verður
sextugur þann 8. september.
Einar Björnsson á Litlalandi i
Mosfellssveit á afmæli 9.
september. Hann verður 98 ára
gamall.
Allt þetta fólk fær innilegar
afmælishveðjur frá Vikunni.
5.
SEPTEMBER
Skapferli
Þeir sem eru fæddir þennan
dag eru venjulega vinnuþjarkar
og fjörmiklir í lund. Fremur eru
þeir leiðitamir og lausir í rásinni.
Merkúr og meyjarmerkið hafa
áhrif á lífsferilinn. Framkoma
þeirra sem fæddir eru þennan dag
er því nokkuð tvískipt. Á annan
bóginn eru þeir óráðnir og ráð-
villtir en á hinn bóginn eru þeir
geðfelldir og geta auðveldlega
heillað aðra.
Lífsstarf
Hæfileikar þeirra sem fæddir
eru í dag njóta sín betur á skrif-
stofu en í verksmiðju. Rík skipu-
lagsgáfa og reglusemi valda því
aö þeir hafna gjarnan í valda-
miklum stööum. Þaö þykir ráölegt
fyrir framann að skipta sem oftast
um störf og vinna á fjölmörgum
stöðum.
Ástalif
Vinsældir afmælisbarnsins eru
talsverðar hjá hinu kyninu. Hjóna-
bönd eru yfirleitt gifturík. Þó ber
að hlúa vel að fjölskyldu- og hjóna-
lífi ef vel á aö takast því að með
nokkurra ára millibili geta komið
upp tímabundnir erfiðleikar.
Heilsufar
Heilsufar er í flestum tilvikum
þokkalegt. Taugar og meltingar-
færi eru viðkvæmust.
Skapferli
Framtakssemi og jafnvel
stjórnsemi og metorðagirnd eru
einkenni á skapferli þeirra sem
fæddir eru þennan dag. Fæðingar-
deginum er stjórnað af meyjar-
merkinu í dýrahringnum.
Lífsstarf
Störf viö sölumennsku eða
kennslu henta einkar vel þeim
sem fæddir eru í dag. Aðhlynning
sjúkra á vel viö þá og sumir veröa
læknar.
Zb Vikan 36. tþl.