Vikan - 05.09.1985, Qupperneq 27
Ástalíf
Þar er ekki verið að rasa aö
neinu. Þeir sem fæddir eru þennan
dag eru yfirleitt nokkuð til-
finningaríkir en um leið heftir.
Þeir eru einnig nokkuö fyrir gagn-
rýni og geta jafnvel átt það til að
skipta um skoðun í ástamálum
þegar allt virðist klappað og klárt.
Hjónaband, ef af því verður, er
yfirleitt hamingjusamt.
Heilsufar
Stærsta vandamálið er aö
afmælisbörnin eiga það til að
hugsa um of um heilsu sína. Sjálf-
sagt er að huga vel að henni en það
má þó ekki ná út yfir allt. Það er
líka nauðsynlegt að njóta lífsins.
Innyflasjúkdómar eru þeir sjúk-
dómar sem afmælisbörn dagsins
eru viðkvæmust fyrir.
7.
SEPTEMBER
Skapferli
Þeir eru fjörhestar sem eiga
afmæli þennan dag. Ástæðan er sú
að þeir eru undir áhrifum frá
stjörnunni Merkúr og meyjar-
merkinu. Hagsýnir þykja þeir og
eiga auðvelt meö að flokka og
kerfa viðfangsefni sín og koma
þeim í framkvæmd.
Lífsstarf
Líf afmælisbarnsins einkennist
af talsverðum þeytingi. Það fer
mikið utan í verslunarerindum en
einnig sér til ánægju. Skrifstofu-
störf, bústjórn og matreiðsla eru
meðal þeirra starfa sem liggja vel
fyrir þeim sem eiga afmæli
þennan dag.
Ástalíf
Tilfinningasemi er ekki meöal
þeirra orða sem hægt er aö nota
sem einkunnarorð um afmælis-
börnin. Líkur eru því á að í hjóna-
bandi verði það ofan á sem hag-
kvæmt þykir fremur en að ástin
ráði ríkjum.
Heilsufar
Þaö er gott. Hið eina sem
angrar suma sem fæddir eru
þennan dag eru ástæðulausar
áhyggjur vegna heilsunnar.
8.
SEPTEMBER
Skapferli
Þeir sem afmæli eiga þennan
dag eru alltaf síúðrandi. Þeir eru
hagsýnir, smámunasamir og
sumir myndu lýsa þeim sem
dálítlum ólíkindatólum. Venju-
lega berast þeir einnig mikið á í
klæðnaði og öðru því er snertir
hinn ytri búnað.
Lífsstarf
Embættisstörf af ýmsu tagi
verða oft hlutskipti þeirra sem
fæddir eru þennan dag. Nokkuð er
einnig um presta eða aðra sem
sinna trúarmálefnum.
Ástalíf
1 ástalífi er sama trúnaðar-
traustið. Mjög oft hengir fólk, sem
er fætt þennan dag, sig á eina per-
sónu. Tilfinningarnar lúta gjarnan
í lægra haldi fyrir skynseminni.
Þrátt fyrir að líkur séu á því að
afmælisbarnið eigi einn maka eru
nokkrir möguleikar á því að þau
hlaupi út undan sér á ástarferlin-
um.
Heilsufar
Þeir sem eiga afmæli þennan
dag eru oft mikið fyrir útiveru og
líkamsrækt. Þeir þurfa því
sjaldnast aö kvíöa heilsuleysinu.
9.
SEPTEMBER
Skapferli
Eins og margir aðrir sem
fæddir eru í meyjarmerkinu eru
þeir sem eru fæddir þennan dag
nákvæmir og jafnvel smámuna-
samir í eðli sínu. Engin ævintýri.
Lífsstarf
Þetta er dagur gáfumannanna.
Allt í sambandi við stærðfræði og
tölur er afmælisbarninu við hæfi.
Það er þó aðallega á fræðilega
sviðinu og ekki er víst að viðskipti
liggi fyrir þeim sem á afmæli
þennan dag.
Ástalíf
Ekki er afmælisbarniö við-
kvæmt í lund og því ekki yfir-
gnæfandi líkur til þess að hjóna-
bandið verði neitt ástríðufullt.
Afmælisbarn dagsins er kannski
frekar gift vegna þess að þaö er
heppilegt heldur en að stóra ástin
sé í spilinu.
Heilsufar
Heilsan er ekkert vandamál,
sérstaklega ekki ef afmælisbarniö
gætir aö þvi hvað það lætur ofan í
sig.
Skapferli
Sumir í meyjarmerkinu eru
duttlungafullir og eiga jafnvel til
að hlaupa út undan sér. Samt er
óreglulegt líf þeim ekki að skapi.
Lífsstarf
Afmælisbarnið er í essinu sínu í
starfi þar sem er mikill erill án
þess að nýstárlegar uppákomur
séu hversdagsviðburður. Fram-
kvæmdasemi og skipulag er með
besta móti og er því upplagt fyrir
þá sem eiga afmæli þennan dag að
reyna fyrir sér við ýmiss konar
smárekstur í þjónustugeiranum.
Ástalíf
Vixunargur er sá sem á afmæli
þennan dag og getur yfirleitt valið
úr á hjónabandsmarkaðnum.
Algengt er að afmælisbarnið
giftist ungt, flytji oft búferlum en
farnist vel í hjónabandi.
Heilsufar
Afmælisbarnið er fremur næmt
fyrir ýmsum smákvillum en með
réttum lifnaðarháttum ætti
heilsan ekki að vera neitt vanda-
mál.
11.
SEPTEMBER
Skapferli
I dag er afmælisdagur járn-
karlsins. Sá sem er fæddur þennan
dag er oft kaldranalegur í viðmóti
og getur jafnvel reynst hrotta-
fenginn en er samt, ef vel er gáð,
nokkuð réttsýnn. Undir harðri
skelinni glittir jafnvel í pínulítinn
ótta við umhverfið sem birtist á
þennan hátt.
Lífsstarf
Verkstjóm, blaðamennska og
ýmis störf, sem krefjast hörku og
nákvæmni, eiga við afmælis-
barnið. Oft blundar listagáfa með
þeim sem á afmæli þennan dag en
sjaldgæft er að hún fái notið sín.
Ástalíf
Fágætt er að afmælisbamið
beinlínis slái í gegn hjá hinu
kyninu. Samt hefst það gjarnan
með seiglunni og yfirleitt eru þeir
sem fæddir eru þennan dag
hamingjusamir í hjónabandi.
Heilsufar
Afmælisbömin eru oft fremur
heilsuveil í æsku. Þegar þau
fullorðnast eru þau með hraustara
fólki.
36. tbl. Vikan 27