Vikan - 05.09.1985, Síða 34
samnorrænu
óléttustandi
Önnur er norsk, hin er sænsk,
önnur er átján, hin er 46 ára,
báðar eru óléttar og allir, sem
áhuga hafa á, mega vita það. Sú
norska er Liv Ullmann, leikkonan
sem starfað hefur vestan hafs á
vegum Sameinuðu þjóðanna um
nokkurt skeið. Hún á dóttur fyrir,
með Ingmar Bergman hinum
fræga. Sú dóttir, Linn, er á aldur
við Janniku, vinkonu Björns
tennishetju Borg. Báðum hinum
verðandi mæðrum mun heilsast
vel og Liv ætlar sér að giftast
Donald Sauders, barnsfööur
sínum, viö tækifæri (kannski á
meðan hún er í tækifæris-
fötunum). Hvað þau Jannika og
Björn ætla sér er óljóst, en í sumar
hafa þau dundaö sér við að sigla á
nýja bátnum sínum um vatna-
svæði Svíþjóðar.
Heilsusamleg á svipinn: Liv
Ullmann.
Jannika og Björn. Hún œtti ekki að reykja svona kasóléttl
Litli Ijúfurinn hennarMöggu og uppnefnin hans
Þeir kalla hann strákinn hennar
Möggu í Bretlandi en réttu nafni
heitir hann Sir Geoffrey Howe og
er utanríkisráðherra Breta. Þeir
eiga líka annað nafn yfir hann:
„Mogadon man”, og í því sam-
bandi er rétt að geta þess að
mogadon er þekkt svefnlyf. Hann
er landsfrægur vinnuþjarkur svo
þeim bregst greinilega ekki
húmorinn, blessuðum Bretunum.
Viðurnefnið mun til komiö vegna
þess að hann sýnir aldrei svip-
brigði. Hann á að baki langa
starfsreynslu sem þingmaður og
hefur komið við í nokkrum
ráðherraembættum. Þegar hann
var fjármálaráðherra var hann
kallaður „feiti Geoff” og ef honum
tekst einhvern tíma að komast í
forsætisráðuneytið fær hann án
efa nýtt nafn. En þar situr Magga,
Margaret Thatcher, og hann
segist vera ánægður með hana
þar, þau rífist sjaldan og ef þau
geri það komist þau að sam-
komulagi sem bæði geti sætt sig
við og yfirleitt sé allt í sómanum.
Hann er tvíburapabbi og á eina
dóttur að auki, velskur að uppruna
og býr nú meö konunni sinni í
London, kannski eins gott af því að
hann vinnur þar. Af helstu
hneykshsmálum fjölskyldunnar
hans má nefna að sonur hans er á
móti kjarnorkuvígbúnaði og það
þótti svo merkilegt að það varð að
blaðamáli enda stjórnin, sem
pabbinn situr í, fræg fyrir ýmis-
legt annað en friðarstefnu.
Geoffrey segir að þeir feðgar taki
þessum málum með mestu
vinsemd þrátt fyrir blaðaumtalið.
Slúður
I }■' & í' U % '
I ; R j Í8TL Bb
34 Vikan 36. tbl.