Vikan - 05.09.1985, Síða 40
Popp
Á
Einn merkilegasti tónlistarmaður síðasta áratugar og
allt fram á þennan dag er án efa David Bowie. Áhrif
hans á þá ungu menn, sem nú eru í fremstu víglínu
poppsins, eru óvefengjanleg og hann er einn af fáum
tónlistarmönnum sem tekist hefur að hasla sér völl í
DAMlO^OfliE
— maður breytinga
Fyrrihluti 1947-1973
kvikmyndaheiminum með
góðum árangri. I þessari
og næstu Viku munum
við renna yfir feril Bowies í
stórum dráttum og von-
um að þið hafið gaman af
því ferill Bowies er geysi-
lega fjölbreyttur og
síbreytilegur.
Bowie fæddist 8. janúar áriö
1947 í London og var skírður David
Robert Jones. David var eina barn
foreldra sinna en faðir hans og
móðir komu með í hjónabandið
sitt barnið hvort úr fyrri hjúskap,
Terry og Anette. Terry var sjö
árum eldri en David og voru þeir
bræður mjög samrýndir og það
var einmitt Terry sem vakti fyrst
tónlistaráhuga Davids til lífsins
með því að kynna honum helstu
gullkorn jassins.
DaVia
fZovJie-
Fimmtán ára gamall fór Bowie
að læra á saxófón og um svipað
leyti lék hann í sinni fyrstu hljóm-
sveit sem hét George and the
Dragons. George þessi og David
voru miklir mátar en eitthvað
slettist upp á vinskapinn út af ein-
hverri stelpu og slagsmálin
enduðu með því að Bowie skadd-
aðist á vinstra auga og er auga-
steinninn í því auga alltaf stærri
en hinn, auk þess sem annað aug-
að er grænt en hitt grátt.
Upphaf ferilsins
Þegar Bítlarnir komu til
sögunnar breytti Bowie yfir í
poppið og stofnaði sína eigin
hljómsveit sem hann kallaði
Davie Jones and the King Bees og
spilaði hún talsvert á krám í
London. Þeir félagar komust á
plötusamning hjá Decca fyrir-
tækinu en eftir tvær misheppn-
aðar smáskífur misstu bæði
hljómsveitin og Decca áhugann
svo hljómsveitin hætti. Næst var
það The Manish Boys sem
störfuðu í sex mánuði og gáfu út
eina smáskífu sem hlaut sömu illu
örlögin og plötur King Bees.
Árið 1965 stofnaði David hljóm-
sveitina Davy Jones and the
Lower Third og á meðan hún
starfaði kynntist David Ken Pitt
sem gerðist umboðsmaður hans.
í tvö ár. Var þetta einn besti skóli
sem hann gat fengið enda nýtti
hann látbragðið sér til fulls á tón-
leikum sínum þegar fram liðu
stundir.
Fyrsta „hit"-lagið og nýtt
fólk
Eitt af því fyrsta sem hann
ráðlagði drengnum var að skipta
um nafn og David Bowie varð til.
Frá lokum ársins ’65 má segja að
Bowie sé sólóisti og sem slíkum
tókst Pitt að fá hljómplötu-
samning fyrir Bowie. Hann tók
upp á annan tug laga og voru flest
þeirra gefin út árið 1967 á stórri
plötu sem hét því frumlega nafni
David Bowie. Allar þessar
upptökur voru síðan gefnar út árið
1973, þegar Bowie var orðinn
frægur, undir nafninu Images
66/67. Tónlist þessi er geysilega
skemmtileg á að hlýða enda þótt
hún sé í engu lík því sem Bowie
varð svo vinsæll fyrir síðar.
Árið 1968 kynntist Bowie lát-
bragðsleikaranum Lindsay Kemp
og stundaði Bowie nám hjá honum
LS&Vfd
Kvikmyndin 2001, A Space
Oddity, var frumsýnd árið 1968
og hafði þau áhrif á Bowie að hann
samdi eitt sitt albesta lag, Space
Oddity, sem vakti á honum
þónokkra athygli og komst hátt á
lista. BBC-sjónvarpsstöðin notaði
lagið þegar sýnd var fyrsta
lending mannaðrar tunglferju á
tunglinu. Tony Visconti heitir
maðurinn sem spilar á bassa í
þessu lagi og hann átti eftir að
koma mikið við sögu á ferli
Bowies. Það skal tekið fram að
Space Oddity kom ekki út fyrr en
ári eftir að Bowie samdi það, eða í
júlí 1969. Skömmu áður hafði
Bowie hitt unga, bandaríska
stúlku, að nafni Angela (Angie)
Barnett. Angie var lífsglöð og ver-
aldarvön og er óhætt að segja að
hún hafi haft mikil áhrif á þroska
hans sem listamanns. Þau giftu
sig1971.
Árið 1970 hafði Bowie stofnað
nýja hljómsveit sem hann kallaði
The Hype. Visconti lék á bassa,
John Cambridge á trommur og á
gítar ungur maður að nafni Mick
Ronson sem með tímanum varð
- hægri hönd Bowies og stoð hans og
stytta.
Mér láðist að geta þess að í
nóvember 1969 kom út stór plata
sem bar nafnið Space Oddity en
Ziggy búinn til.
40 Vikan 36. tbl.