Vikan - 03.04.1986, Qupperneq 10
KAUPLEIGA
Þarftu að fjárfesta á næstunni í vélum, tækjum, innréttingum,
bílum, flutningatækjum, lyfturum, dráttarvélum eða öðru slíku?
Gengur illa að fá lán í viðskipta-
bankanum til þessara fjárfestinga vegna
þess aðþað skerðir möguleika þína á
rekstrarlánum?
Getur viðskiptabankinn aðeins lánað
þér fé til skamms tíma, t.d. nokkurra
mánaða?
VIÐAR EGGERTSSON .... . æjá, hvernig á
maður að halda það út nema maður sé þá alveg
stjörnugalin, að vera innanum vitleysinga með
rykkdans eða þá í floga svona flogaveikisköstum
og svoleiðis alveg, maður ringlast bara, skal ég
segja þér, að horfa upp á þetta svona þannegin
skilurðu..." Svona hefst viðtal llluga Jökulssonar
við Viðar Eggertsson sem birtist í næstu Viku.
Þetta mun vera uppáhaldssetning Viðars Eggerts-
sonar í leikritinu Ellu sem hann leikur í um þessar
mundir.
KARLAKLÚBBAR. Til hvers eru þeir? Hver er
fínastur? Um það erfjallað í grein i næstu Viku.
DRAUMUR OKKAR BEGGJA. Fyrir nokkr-
um vikum birtum við fyrstu greinina í flokki þar
sem talað er við íslenska poppara sem reynt hafa
að slá í gegn erlendis. Framhaldið, gjörið þið svo
vel.
LÁGRÓMA PRESTUR VELDUR UPP-
ÞOTUM OG RITSKOÐUN nefnist grein í
flokkinum Reykjavík 200 ára sem birtist í næsta
blaði. Þessi grein segir frá Þjóðólfi, Hljóðólfi og
fyrstu blaðabrennu á íslandi.
SÆLKERI I PARÍS er eftir Óttar Guðmunds-
son. Hann segir frá einum besta veitingastað
Parísar sem nefnist Jules Verne: ,,Á Jules Verne
mótaðist þjónustan af þessari taugaveiklun sem
einkennir alla sem leita fullkomnunarinnar. Þjón-
arnir voru hraðfara og á eilífu spani með matseðla,
veitingar, vín, vatn og servíettur og á þeim hvíldi
stöðugt vakandi auga yfirþjónsins sem hafði á
þeim gát eins og taugaveiklaður þjálfari á óhlýðn-
um og lélegum leikmönnum."
PAN-KLÚBBURINN hefur hlotið vægast sagt
misjafnar undirtektir með tilþrifum sínum á veit-
ingastöðum bæjarins. Tíðindamaður Vikunnar
fórnaði sér, leit á fyrirbrigðið og miðlar því til
lesenda næstu Viku.
Getur viöskiptabankinn aöeins lánað
þer hluta afTjárfestingarupphæðinni?
Ef svariö við þessum spurningum er já, því revnirðu þá ekki
nýja fjármögunarleið KAUl’LEIGUt
Samvinnusjöður Islands hf. er reiðubúinn að ræða við þig um
lán til slíkra fjárfestinga að fullu til nokkurra ára.
INNFLYTJENDUR OG UMBODSMENN' Kaupleiga er
ein algengasta aðferðin við fjármögnun véla og tækja til
nokkurra ára.
Hafðu samband við hórð Ingva Guðmundsson, framkvæmda-
stjóra, í síma 6H 68 58 og leitaðu upplýsinga.
SAMVINNUSJÓÐUR ÍSLANDS HF.
Lindargötu 9A (Edduhús) -sími 622602