Vikan - 03.04.1986, Page 16
r
Helgartilboð
A Stór nautavorrúlla, súrsæt sósa, kryddhrísgrjón og salat
aðeinskr. 180,-
B Stór lambavorrúlla með karrísósu, kryddhrísgrjónum og salati.
aðeins kr. 180,-
C Stór pitsuvorrúlla með oreganosósu, kryddhrísgrjónum og salati
aðeinskr. 180,-
D Rækjubitar m/súrsætri sósu, kryddhrísgrjónum og salati
aðeinskr. 185,-
E Steiktýsa m/sellerísósu, hrísgrjónum og salati
aðeinskr. 185,-
F Steiktur karfi m/sveppasósu, hrísgrjónum og salati
aðeins kr. 185,-
G Svínakjöt sweet and sour m/hrísgrjónum og salati
aðeins kr. 285,-
H Steiktir kjúklingabitar m/indverskri karrísósu, hrísgrjónum og salati
aðeins kr. 290,-
Það þarf ekki að vera dýrt að
borða góðan mat.
Allt gos í flöskum á búðarverði.
Kipptu með þér Kínamat
Reynið viðskiptin
Sími 68 74 55
r r y
Urval
. vid allra hœfi
Hér á síðunni birtast svör læknanna Gests Þorgeirssonar, Helga Krist-
bjarnarsonar. Jóhanns Ágústs Sigurðssonar, Leifs Bárðarsonar, Óttars
Guðmundssonar og Sigurðar Guðmundssonar við spurningum lesenda
og mun þetta verða reglulegur þáttur hér á síðum Vikunnar á næstu
mánuðum.
Við bjóðum lesendum bæði að senda bréf með vandamálum sínum
og hringja. Hringja má á þriðjudags- og miðvikudagsmorgnum frá níu
til tólf. Bréfin, sem við fáum, verða að vera stutt, skýr og málefnaleg.
Við birtum þau gjarnan undir dulnefni en nafn og heimilisfang verður
að fylgja.
Utanáskriftin er: Læknisvitjun
Vikan
Frjálsfjölmiðlun hf.
Pósthólf 5380
125 Reykjavík
Haia oer í huga að hjá einstakling-
um með óþægindi við þvaglát er
aðeins hægtað sýna fram á bakteríur
í þvaginu í um 60-70% tilvika.
Úþægindin geta oft verið af öðrum
orsökum. Sem dæmi má nefna að í
kringum tiðahvörfin fá konur oft
óþægindi frá þvagfærum. Þærkvarta
undan þvi að þær séu ..bara alltaf á
klósettinu". i slíkum tilvikum getur
skýringin verið sú að slimhúðarþekj-
an i leggöngum, þvagrás og blöðru-
botni þynnist vegna minnkandi
framleiðslu kvenhormóna. Ræktun á
þvagi er þá neikvæð og lækning oft
fólgin i hormónalyfjum.
HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Æskilegast er að fólk með ein-
kenni um þvagfærasýkingu hafi
samband við heimilislækni sinn.
Hægt er að gera einfaldar athuganir
á þvaginu og taka ákvörðun um það
hvaða lyfjameðferð á best við í hvert
skipti. Hægt er að afgreiða slík mál
gegnum síma þótt slikt sé ekki venj-
an. Við einfaldar sýkingar nægir
meðferð frá einum og upp i fimm
daga. Ef þessar sýkingar endurtaka
sig 3-5 sinnum á eins árs tímabili
eru itarlegar rannsóknir taldar nauð-
synlegar. svo sem blöðruspeglun
eða röntgenmyndir. Allt aðrar reglur
gilda þó ef um börn er að ræða.
Nánari upplýsingar um þessi mál
má fá i tímaritinu Heilbrigðismál, I.
tbl. 1984. bls. 23-24.
BLÖÐRUBÓLGA
SPURNING:
Ég fæ oft blöðrubólgu og þá þarf
að fá lyf við henni. Er ekki nóg að
fá lyf símsend frá heimilislækninum?
SVAR:
HVAÐ ER BLÖÐRUBÚLGA?
Úþægindi. svo sem sviði við að pissa
og tíð þvaglát. eru algeng sjúk-
dómseinkenni. sérstaklega hjá kon-
um á aldrinum 15-35. Hér er i flest-
um tilvikum um þvagfærasýkingu að
ræða sem i daglegu tali er nefnd
blöðrubólga. Ef slíkum einkennum
fylgir verkur aftur í bak eða hár hiti
er liklegt að sýkingin sé komin upp
I nýrun.
ORSÖK
Bakteriur frá meltingarfærum eru
langalgengasta orsök þvagfærasýk-
inga. Þvagrásin hjá konum er stutt
og bakteríur eiga oft tiltölulega auð-
velt með að komast upp i gegnum
þvagrásaropið og upp í blöðruna.
Það gerist þá helst ef mótstöðukraft-
ur slimhúðarinnar minnkar um
stundarsakir. til dæmis ef komur
klæða sig illa eða verður kalt. Einnig
getur hnjask. svo sem við samfarir,
stuðlað að blöðrubólgu. Útferð
vegna sveppasýkinga eða annarra
sýkla frá leggöngum eykur einnig
líkur á þvagfærasýkingu.
16 VIKAN 14. TBL.