Vikan - 03.04.1986, Blaðsíða 50
VIK A N
D R A U M A R
ELDUR í ÚLPU
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja þig að
ráða fyrir mig eftirfarandi draum
sem mig hefur dreymt tvisvar til
þrisvarsinnum. Hann var þannig:
Mér fannst ég vera inni í B. Það
var kvöld, ég var með S og K, vin-
konum mínum. Þá kemur H inn og
fer að stríða mér. tg svara fyrir mig
og við vinkonurnar förum út og
göngum upp T-götu. Þá tek ég eftir
því að H eltir okkur. Síðan mundi
ég að ég var allt í einu með hey í
fanginu og H kveikti í því. Ég hendi
heyinu á jörðina og slekk eldinn.
Þegar ég var búin að því sá ég aó
H var reiður. Hann gekk að mér og
kveikti í bakinu á úlpunni sem ég
var í. Þá fleygði ég mér á jörðina
og reyndi að slökkva eldinn i úlp-
unni. Ég kallaði í S og K og bað
þær að hjálpa mér en þær stóðu
bara og horfðu á. Mér tókst að
slökkva eldinn og stóð upp. Þá sá
ég K ganga til H og kyssa hann. Á
meðan þetta gerðist byrjaði ég að
hlaupa í burtu. H tók eftir því og
náði mér og þá kveikti hann aftur
í mér, I bakinu á úlpunni og líka í
buxunum sem ég var í. Úlpan og
buxurnar fuðruðu strax upp og ég
féll fram fyrir mig en þá vaknaði ég.
Þessi draumur var mjög óskýr.
Með fyrirfram þökk ef þú reynir
að ráða þetta.
Ein 14ára og forvitin.
Þessi draumur er á mörkum þess
að vera martröð og sem betur fer
eru martraðir yfirleitt fullkomlega
marklausir tákndraumar. Efþú hefur
vaknað sveitt og hrædd skaltu ekki
taka mark á ráðningunni. Ruglings-
legir og óskýrir draumar eru oft
martraðir. En draumatáknin eru
prýðilega skýr og auðvelt að lesa
úr þeim þannig að hér fær ráðning
að fljóta með með þessum fyrirvara.
Þú munt lenda i ítrekuðu og heiftar-
legu rifrildi við einhvern þér kæran,
ef til vill strákinn i draumnum. Það
er eins og ekki sé allt sagt sem í
rauninni ætti að segjast og þess
vegna verður alltaf r/frildi úr ykkar
á milli. Þau ágerast fremur en hitt
og þú kennir öllum nema sjálfri þér
um, enda muntu nú ekki eiga
upptökin en hins vegar virðist þú
ekki megna að þæta ástandið.
UNGBARN í
ÍSSKÁPOG
NIÝS í BANDI
Mig dreymdi að ég væri stödd í
ibúð dætra minna. Mér fannst ég
%
X
vera að hjálpa þeim að flytja úr
þessari risíbúð en þegar ég kom á
staðinn var íbúðin tóm nema ís-
skápurinn var eftir. Ég fann nýfætt,
nakið barn þarna i reiðileysi, tók það
og stakk því í frysti, en hann frysti
svo mikið að ég hafði ekki undan
að skafa af honum klakann (frystir-
inn var opinn að aftan). Ég skóf
og skóf en hafði ekki undan. Þá tók
ég barnið og setti það í snjóskafl
og mér fannst það hressast aó
mun. Síðan fór ég út að labba. Þá
var enginn snjór. Þá fannst mér ég
vera úti á labbi með 16 mýs í bandi.
Þær voru í fimm til sex mismunandi
litum kápum, mest bar þó á græn-
um og rauðum lit. Þær voru þægar
eins og rakkar en mér fannst ég
vera ánægð og glöð þegar ég vakn-
aði.
Ein sem dreymir mjög mikið.
Þetta er óvenjuskemmtilegur
draumur, ber vott um lifandi hug-
myndaflug og frjótt imyndunarafl.
Þvi miður er ráðning draumsins
ekkert sérlega skemmtileg. Svo
virðist sem þú lendir i einhverri
heldur óskemmtilegri reynslu sem
fer heldur illa með þig. Þú reynir
eftir megni að haida öllu í horfinu
og öllu eðlilegu í kringum þig og
gefst loks upp á að eiga við þessi
leiðindi og tekur mikilvæga á-
kvörðun sem horfir til hins betra.
Þá tekurannað við, sennilega þessu
máli tengt. Þú lendir sem sagt í
heldur lítilsigldum félagsskap (ætla
má að það séu um það bil 16 manns
sem um ræðir). Það fólk er vist tii
að baknaga þig og þú veist ekki
hvað þú átt að gera og gerir þér
kannski ekki grein fyrir öllu. Fólkið
er misjafnt, sumir sýna friðsemd,
aðrir hörku. En það er nú eins og
þú náir einhverjum tökum á þvj
teymir í bandi með öðrum orðum,
og það er nokkuð til bóta.
POSTKORT OG
BÖRN
Kæri draumráðandi.
Fyrsti draumur:
Ég fékk póstkort frá strák,
mamma lét mig fá það (hún sá
ekki frá hverjum þaó var). Það var
allt i flekkjum að aftan svo maður
sá ógreinilega hvaó stóð á því nema
ég sá að hann hafði skrifað að hann
saknaði mín mjög mikið og ég gat
svo rétt greint nafn hans undir.
Þetta fékk svolítió á mig.
Svo er hér annar stuttur:
Systir mín er aó fara að eiga sitt
fyrsta barn, systir mágkonu minnar
líka og systurdóttir fósturbróður
míns líka, allar sitt fyrsta barn. En
fósturbróðir minn tók þau öll að sér
og gerði þau að börnum sínum.
Þær eru allar að fara aó eiga á
næstunni í raunveruleikanum. Mig
minnir að öll börnin hafi verið
stúlkubörn.
Takk fyrir.
R.A.
Fyrri draumurinn bendir til þess
að þú farirað taka á erfiðum vanda-
málum fjárhagslegs eðlis og takist
að ráða bót á þeim að einhverju
leyti. Þetta reynist þér auðveldara
en þú hafðir vænst. Seinni draum-
urinn ersennilega ekki tákndraumur
þar eð hann þræðir raunveruleikann
að nokkru leyti eins og hann er.
Það er i sjálfu sér ekki viðburóur
að dreyma einhvern barnshafandi
ef hann er það. Það að fósturbróðir
þinn tekur börnin að sér i draumn-
um gæti bent til þess að þú myndir
í náinni framtið gjarnan vilja leita
hjálpar hans i e/nhverjum málum
en það kemur ekki fram hvernig
hann tekur þvi. Hins vegar er tákn-
ræn ráðning draumsins fremur nei-
kvæð fyrir þig og boðar varla gott.
Þú þarft þó ekki að hafa áhyggjur
afað hún standi.
ÍSSKÁPUR
Kæri draumráóandi.
Mig dreymdi að ég væri nývökn-
uð og kæmi fram í mjallahvítt her-
bergi og þaó væri einn ísskápur
(hvítur) og hvítt borð þar inni,
enginn gluggi en á gólfinu var
kassi. i kassanum voru hvít kerti í
pakka og is, sælgæti og matur. Ég
tók þetta upp og lét þetta inn í
isskápinn. Ég vaknaði við að ég var
að verða of sein í skólann.
Bless, bless. Þakka þér kærlega
fyrir.
Þin H.J.
P.S. Ég er 1,50 á hæð, hvað á ég
að vera þung? Ég hef ekki skrifað
áður. Ég á hrikalega öfundsjúka
vinkonu, hvað á ég að gera?
Bless, bless, bless.
Draumráðandi hefur nú lítið vit á
mannlegum samskiptum umfram
aðra en ráóleggur þér eindregið að
gera það upp við þig hvort þú
nennir yfirleitt að vera að dragnast
með öfundsjúka vinkonu. Ef ekki
slittu þá vinskapnum án þess að
vera harkaleg. Hæð og æskileg
þyngd eru alltaf matsatriði en I
uppflettibókum er oft mælt með
sömu þyngd og sentímetrarnir
umfram einn metra eru, i þínu til-
felli þá 50 kíló.
Og þá er það draumurinn. Hann
bendir til þess að framundan séu
betri timar en verið hafa. Þú gerir
eitthvað sem verður þér til góðs og
mátt búast við jákvæðu andrúms-
lofti i kringum þig og velsæld eftir
að hafa verið að eiga við eitthvað
sem þér fannst erfitt.
50 VIKAN 14. TBL.