Vikan

Tölublað

Vikan - 26.06.1986, Blaðsíða 7

Vikan - 26.06.1986, Blaðsíða 7
UMBERTO ECO. mberto Eco: „Ég fer mjög sjaldan í bíó núorðið. Einu sinni varð ég að sjá minnst tvær myndir á dag, ég nenni því ekki lengur. I dag bíð ég yfirleitt í nokkur ár áður en ég les J nýja bók eða sé nýja bíómynd. Ég á vin sem les glænýtt sex mánaða gam- alt dagblað á hverjum morgni. Sama geri ég með kvikmyndir og bækur. Ég held að það sé mikilvægt að dæma ekki undir áhrifum dagblaða eða eftir tísku. Þess vegna bíð ég, svo ég hafi hlutlaust sjónarhorn á verkið. Ég get lítið sagt um kvikmyndagerð An- nauds eftir bók minni. Ég næ alls ekki að fylgjast með öllum þessum tæknilega undir- búningi og ég held að höfundur ætti heldur ekki að flækjast of mikið í handrit sem gert er eftir verki hans, sérstaklega þegar stytta þarf 550 síðna bók niður í rúmlega tveggja tíma bíómynd eins og í þessu tilviki. Þetta er eins og þegar skurðlæknir þarf að krukka í son sinn. Hann leitar frekar til starfs- bróður en að gera það sjálfur. Hann gæti orðið skjálfhentur. Við Annaud höfum hist á tveggja til þriggja mánaða fresti síðastliðin þrjú ár. Hann kemur til Ítalíu eða ég skrepp til París- ar. Við skreppum út að borða og tölum án þess að stoppa, en aldrei um tæknilegu hlið- ina. Við einbeitum okkur frekar að hug- myndum hans um verkið. Ég kýs að sjá kvikmyndina þróast í rólegheitum af sjálfu sér. Ég sá til dæmis aðeins tvær útgáfur af fjórtán á meðan handritið var að mótast, þá tólftu og þrettándu minnir mig. Jafnvel þá bætti ég aðeins fáeinum athugasemdum við. Við ætlum að kvikmynda megnið af mynd- inni í stúdíói í Róm. Sömuleiðis verður „skotið“ í Ambruzzi- fjöllunum og við tvö þýsk klaustur, Maulbronn og Eberbach. Hermann Hesse lærði guðfræði í öðru þeirra, man ekki í hvoru það var. Annaud ferðaðist frá Portúgal til Ítalíu í leit að sviðsmyndum og hann safnaði ótrúlegu magni mynda af rómversk-gotneskum kirkjum og bygging- um. Síðan heimsótti hann mig með þetta hrikalega safn sitt og auðvitað voru flestar byggingarnar annaðhvort of hrörlegar eða of endurbyggðar. Til viðbótar bættist svo auðvitað þetta sígilda sviðsvandamál, ef það færi að rigna einhvers staðar í langan tíma þurftum við að hafa svið fyrir innitökur nálægt til að halda fjölmennu starfsliði og rándýrum leikurum uppteknum í starfi. Ég hafði ímyndað mér að Rocca di San Leo væri frábær staður fyrir útitökur og Annaud fór þangað aftur og aftur í mynda- tökur og rannsóknir við öll hugsanleg birtuskilyrði, í þoku á nóvembermorgni eða við sólarlag að sumri. Þarna voru stórkost- legir möguleikar fyrir útitökur en möguleik- ar fyrir innitökur voru hvergi þar nálægt. Við gerðum okkur því ljóst að það myndi vera ódýrara að kvikmynda í stúdíói. Reynd- ar held ég að sögutíminn skili sér betur í tilbúinni sviðsmynd en einhverju gömlu klaustri. Kirkjudyrnar voru til dæmis alltaf sterkmálaðar. Nú eru þær drungalegar og máðar af tímans tönn. Það gerir þær að vísu rómantískari en endurskapar ekki rétta stemmningu. Á elleftu öldinni var algengt að segja: „Evrópa er að breytast í hvíta kirkjubreiðu.“ í dag hafa þær fengið gráan elliblæ. Myr.din verður trúverðugri ef við leyfum okkur að svíkja svolít.ið þann lit. Undirbúningurinn tók mjög langan tíma að viðbættri allri textafræðivinnu Ánnauds sjálfs. Hann vildi endurskapa tímabilið í smáatriðum. Einn félaga minna hafði stofn- að vinnuhóp við miðaldarannsóknir en Annaud fékk þau til að roðna þegar hann mætti með miklu nákvæmari upplýsingar sem þau vissu ekkert um. Samt vantar heil- mikið. Það er eitt að segja: Munkarnir átu af viðarbrettum, en þegar leikstjórinn spyr hversu stór þau hafi verið.. ? Eða: Þeir báð- ust fyrir með ennið liggjandi við gólfið. En hvar höfðu þeir rassinn? Vísaði hann út í loftið eða var hann pressaður niður á milli fótanna? Enginn sögulegur texti eða mál- verk svarar þessum spurningum. 26. TBL VI KAN 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.