Vikan - 26.06.1986, Blaðsíða 58
SARDINÍA
Þar sem dagurinn kostar eins og sólarlandaferö
Sameiginlegir salir í hótelinu eru rúmgóðir og Þessi mynd er fengin úr auglýsingabækl-
bjartir, í björtum litum og íburður mjög fínlegur. ingi hótelsins en engu lakari fyrir það. Það
^ j svona loftslagi er ekki rétt að tala um hlýleg er notalegur spölur frá húsinu niður að
húsakynni, miklu fremur svalandi og notaleg. lauginni og fyrir bragðið er friðurinn þar
ennþá meiri.
Það er yndislegt og óvanalegt að koma út
úr flugvél á framandi flugvelli og fylla vitin
af blómaangan í stað olíustybbu og útblásturs-
fnyks. Þetta gerist þegar maður lendir að
kvöldlagi á Olbiaflugvelli á Sardiníu. Þar að
auki er þægilegt að koma út í kvöldsvalann,
eitthvað um tuttugu stig.
Það gefur augaleið að í myrkri er ekki hægt
að gera sér mikla grein fyrir nýju eylandi, en
strax í myrkrinu sjást landslagseinkenni eyjar-
innar: háir, gnæfandi fjallatindar, klettar og
lítill skógur. En strax að morgni koma gróður-
einkennin í ljós, kjarr (fljótt á litið líkast túju)
og granítklettar og klappir á milli. Einmitt
þessir klettar gefa landinu sérkennilegt yfir-
bragð sem er öðruvísi en ég hef séð við
Miðjarðarhafið, vindsorfnir í alls konar óvenju-
legar og fallegar myndanir. Landið sjálft virðist
einkum vera mismunandi háir hálsar með döl-
um og bollum á milli, sléttur fáar og ekki stórar
og svo þessir gnæfandi tindar. Sá hæsti þeirra
mun skaga 1835 metra yfir sjó, sem er ekki svo
lítil mishæð fyrir eyju sem er aðeins 24 þúsund
ferkílómetrar að stærð.
Þarna býr samt ríflega ein og hálf milljón
manna. Helmingurinn eða þar um bil lifir af
landbúnaði, sem sagður er heldur gamaldags,
og helmingurinn þar af eingöngu á kvikfjár-
rækt, einkum fjárbúskap. Margir hafa líka
geitur og vinsældir kúabúskapar fara vaxandi.
Þeir sem ekki hafa búskap að atvinnu grafa
málma úr jörðu, sink, blý, kopar og fleiri
málma, nokkuð af kolum - eða stunda iðnað
af ýmsu tagi, leðuriðju og skipasmíðar. Og nú
hin síðari ár hefur ferðaþjónusta bæst við því
Sardinía laðar sífellt til sín fleiri sem kunna
að meta kyrrð og frið við sand og sjó. Þar eru
nú í smíðum ógrynni sumarhúsaþyrpinga sem
hver og einn getur keypt sér íbúð í og leigt
öðrum þegar hann þarf ekki sjálfur á að halda,
og ávaxtað þannig sitt pund. Vogar og víkur
með ströndum landsins tryggja skjólsæla staði
að njóta sólarinnar á og enn er ásóknin í þenn-
an edensgarð ekki meiri en svo að kyrrðin situr
í fyrirrúmi. Og Miðjarðarhafið er engu síður
hlýtt við Sardiníu en Spán, Mallorku eða móð-
urlandið Ítalíu, enda er Sardinía svo að segja
á sömu breiddargráðu og Mallorka.
_ Ég sveif þarna ofan úr skýjunum eitt kvöldið
síðla í maí og var fluttur beina leið á hótel
Romazzino á Costa Smeralda, sem er eitt fín-
asta strandhéraðið á eynni. Það einkennist af
þessum litlu, friðsælu víkum þar sem ekki rúm-
ast nema tiltölulega fáir og er yfir háls að sækja
til næstu víkur. Okkur var sagt að Aga Khan
ætti hótel Romazzino, sem um leið væri fínasta
hótelið á allri Sméröldu. Hótelið sjálft er byggt
í sérkennilegum stíl, ekki háreist og þar sem
því verður komið við er reynt að líkja eftir
hellum eða gömlum höllum í bogastíl. Það er
58 VIKAN 26, TBL