Vikan - 26.06.1986, Blaðsíða 56
S T J Ö R N U S P Á
Á
HRÚTURINN 21. mars - 20. apríl
Þú hittir fólk sem er gjörólíkt þér
hvað lífsviðhorf snertir. Ef þú stillir
þig um að láta það fara í taugarnar
á þér geturðu haft af því hina bestu
skemmtun. Mundu að ekki er
heppilegt að allir séu sem steyptir
í sama mótið.
TVÍBURARNIR 22. maí - 21. júní
Haltu þeirri stefnu sem þú hefur
þegar markað og láttu óviðkomandi
fólk ekki hafa áhrif á þig. Eins og
málum er háttað ert þú best fær um
að sjá hvað er heppilegast og haf-
irðu ekki of mörg járn í eldinum
fer allt vel.
LJÓNIÐ 24. júlí - 23. ágúst
Hafðu eigin velferð í fyrirrúmi og
láttu eitthvað eftir þér sem til til-
breytingar telst. Það er í þér þreyta
og þú átt sannarlega skilið að hvíla
þig rækilega. Að því loknu gæti
verið ráð að huga lítið eitt að fram-
tíðinni.
VOGIN 24. sept. - 23. okt.
Þú hefðir gott af að vera sem mest
úti og skalt láta eitthvað af skyldu-
verkunum sitja á hakanum hvenær
sem þú kemur því við með góðu
móti. Þegar lengra líður gætirðu
átt erfiðara með að njóta sumarsins
og það bíður ekki eftir þér.
BOGMAÐURINN 24. nóv. - 21. des.
Vikan verður skemmtileg og eftir-
minnileg. Því valda óvæntir at-
burðir og fólk sem þú hefur
vanmetið sýnir nú á sér alveg nýja
hlið. Þú verður upptekinn af mál-
efni sem þú hefur hingað til talið
utan þíns áhugasviðs.
VATNSBERINN 21. jan. -19. febr.
Brjóttu odd af oflæti þínu og stígðu
fyrsta skrefíð til sátta við mann-
eskju sem þú hefur ekki talað við
lengi en metur í raun og veru mik-
ils. Henni léttir áreiðanlega ekki
síður en þér eftir að höggvið hefur
verið á hnútinn.
NAUTIÐ 21. apríl - 21. maí
Ljáðu þeim eyra sem af einlægni
vilja miðla þér af reynslu sinni.
Þótt þú takir öllu vel geturðu
seinna og í ró og næði íhugað hvað
af þessari lífsvisku getur komið þér
að notum. Það er meira en þú held-
ur í fyrstu.
KRABBINN 22. júní 23. júlí
Hafðu góða gát á fjárhagnum og
láttu ekki hlunnfara þig í viðskipt-
um. Margur heldur auð í annars
garði og einhver gengur með þá
meinloku að þú sért fjáðari en
venjulega. Sá hinn sami hugsar sér
greinilega gott til glóðarinnar.
MEYJAN 24. ágúst - 23. sept.
Áhugamálin taka hug þinn allan
og ekki nema gott eitt um það að
segja svo lengi sem þú rækir skyld-
urnar. Þú færð lof fyrir góða
frammistöðu og skalt njóta þess án
þess að vera að velta fyrir þér hvort
þú eigir það skilið.
SPORÐDREKINN 24. okt, - 23. nóv.
Leggðu al!t kapp á að koma í lag
því sem þú hefur trassað að undan-
förnu. Það er ósiður að láta verk,
sem maður kemst hvort sem er ekki
hjá að sinna, hlaðast upp og að því
kemur að þetta fer að valda þér
óþægindum.
STEINGEITIN 22. des. - 20. jan.
Lengi má manninn reyna og það
sannast á þér í næstu viku. Þú
kemst að því að einhver sem þú
taldir meðal vina þinna er ekki all-
ur þar sem hann er séður. Við þessu
er ekki margt að gera en þú kemst
fljótt að því hver þetta er.
FISKARNIR 20. febr. - 20. mars
Vertu ekkert að reyna að gera öðr-
um til geðs, það er hvort sem er
undir hælinn lagt hvernig til tekst.
Einbeittu þér þess í stað að því að
láta þér líða vel og mundu að stund-
um getur verið bráðnauðsynlegt að
gera hreint ekki neitt.
Nú er tími krabbans og í tilefni af því birtum við
mynd af vel þekktum krabba. George Michael í Wham!
verður tuttugu og þriggja ára 25. júní.
Krabbar eru miklar tilfinningaverur og getur það jafnt
orðið þeim til framdráttar og trafala. Þeir eru gjarnan
hörkutól á yfirborðinu en skelin er ekki þykk og und-
ir henni er hrifnæm og auðsærð sál. Þeir eru áhyggju-
seggir hinir mestu og finna sér tilefni jafnharðan og
úr rætist fyrir þeim. Leiklist höfðar mjög til krabbans
og á leiksviði eða í störfum tengdum leiklist er fleiri
að finna úr krabbamerkinu en öðrum stjörnumerkjum.
56 VIKAN 26. TBL