Vikan - 26.06.1986, Side 14
„UNTITLED"
Þ»essi mynd birtist í kynning-
arbók frá listastofnun (Art
Institute of) San Francisco.
Arngunnur Gylfadóttir, 23 ára
gömul, stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands. Hún talar ein 6 tungumál
auk alheimstungu myndlistar-
innar. Hún stendur sig greini-
lega vel í framhaldsnámi við
listastofnun San Francisco-
borgar. Þar eru reyndar
nokkrir Islendingar við nám.
„Því miður höfum við engan slík-
an mann í Kína,“ sagði ungur
Shanghai-búi eftir að hafa séð
Rocky og Rambó sama kvöldið...
JACK LEMMON
Á ÞURRU
Jack Lemmon er einn af fáum Hollywood-
leikurum, yfir miðjum aldri, sem hafa haldið
vinsældum sínum stöðugum gegnum árin. Lík-
lega er það vegna þess að hann hefur aldrei
verið neinn sérstakur tískuleikari heldur um-
fram allt góður leikari. Hann er nú sextíu og
eins árs gamall og hefur lengi átt í baráttu við
áfengið og aukakílóin. En fyrir rúmu ári sagði
hann skilið við hvort tveggja og nú er það bara
golf og diet kók.
Ástæðan fyrir þessari hörku var uppáhalds-
samfestingurinn hans - hann var orðinn of
þröngur. Hann sá að ekki dugði annað en hætta
við ísinn og súkkulaðisósuna (sem honum
fannst þar að auki ekkert sérlega góð) og létt-
vínið sem hann elskaði. Fyrir tíu árum, er honum
tókst að minnka neyslu sína á sterkum drykkj-
um, féll hann gjörsamlega fyrir þeim léttu og
jókst magnið síðan dag frá degi. En nú er
Lemmon sem sé orðinn alveg þurr og líður eins
og nýslegnum túskildingi.
Hann hefur nýlega lokið við að leika í tveim-
ur kvikmyndum; sú fyrri heitir Maccaroni og
hin síðari Crisis. Ánægjulegasta hlutverk hans
hingað til er í Crisis, segir hann, og bætir við
að myndin sé sannkölluð fjölskyldumynd, því
ekki er nóg með að sonur hans leiki í henni
heldur líka mæðgurnar Julie Andrews og
Emma og Jennifer, dóttir leikstjórans, Blake
Edwards.
Jack Lemmon er einn þriggja leikara sem
hafa verið útnefndir til óskarsverðlauna oftar
en átta sinnum (hinir eru Laurence Olivier og
Spencer Tracy). En hann átti ekki sjö dagana
sæla í upphafi ferilsins, það var ekki fyrr en
eftir rúmlega fjögur hundruð sjónvarpsþætti
og fimm framhaldsseríur, sem stóðu yfir í sex
ár, að Hollywood kom auga á snillinginn. Nú
er hann einn dáðasti og virtasti leikarinn þar
og er skaparanum ákaflega þakklátur fyrir að
hann skuli aldrei hafa orðið þessi stórmyndar-
lega elskhugatýpa því þá hefði hann tæpast
fengið jafnbitastæð hlutverk um ævina.
14 VIKAN 26. TBL