Vikan - 30.04.1987, Blaðsíða 36
nægilega fyrir sér og tekur þess vegna séns-
inn. En það er alltaf erfitt að skiljast við stað
þar sem manni og fjölskyldunni líður mjög
vel. Allt í lukkunnar velstandi. Svo þurfa allir
að rífa sig upp vegna þess að heimilisfaðirinn
fær tilboð um vinnu sem hann telur að sé
betri. Að vísu er starfið hérna skemmtilegra
heldur en starfið á Skagaströnd var en okkur
líkaði mjög vel að búa þar. Þau rúmlega tvö
ár, sem ég var sveitarstjóri á Skagaströnd, var
ég allt í öllu. Að því leytinu er gjörólíkt að
stýra stóru bæjarfélagi eða litlu. Hjá stóra
bæjarfélaginu hefur maður undirmenn og er
rneira í yfirstjórn. En það var góð þjálfun að
vera á Skagaströnd, þar lærði maður að vinna
verkin og átta sig á gangverki bæjarfélags.
Þetta er nefnilega starf sem ekki er hægt að
læra í skóla. Annars er mjög praktískt fyrir
bæjarstjóra að vera menntaður landfræðingur
enda er það æ algengara að bæjarstjórar séu
menntaðir landfræðingar."
Það er aldrei hœgt að
vita fyrirfram hvað
gerist í lífinu. Maður
þvœlist bara áfram.
Af orðum bæjarstjórans má ráða að það
hafi verið helber tilviljun að hann réð sig til
Akureyrar. Þegar ég ýja að því játar hann
og segir:
„Þetta var tilviljun, ég hefði allt eins getað
lent einhvers staðar annars staðar. Það er
aldrei hægt að vita fyrirfram hvað gerist í líf-
inu. Maður þvælist bara áfram. í bæjarstjóra-
stöður er ráðið eftir kosningar, einn, tveir og
þrír. í mig var til dæmis hringt á mánudegi
og ég átti að gefa svar tveimur eða þremur
dögum seinna, þetta er „take it or leave it“.
Svo er maður ráðinn í tjögur ár að þeim tíma
liðnum verður kosið aftur og þá veit maður
ekkert hvað gerist.“
- En er ekki kominn upp hópur manna sem
gengur á milli bæjarfélaga?
„Jú, jú, þeir sem standa sig vel og eru komn-
ir með reynslu í starfínu fá ef til vill vinnu í
næsta bæjarfélagi ef þeir hafa áhuga. En hvar?
Það er óvissan. Ef bæjarstjóri fer frá af póli-
tískum ástæðum eða út af úrslitum kosninga
þá getur hann bara farið á annan stað. Það
er dálítið um að menn fari á milli sveitarfé-
laga. En þó er það þannig að stóru sveitarfé-
lögin eru að sækja sér menn úr litlu sveitarfé-
lögunum. Þar ná þeir í menn með reynslu,
menn sem eru komnir með þjálfun og þekkja
allt kerfið. Eins og ég sagði áðan er ekki
hægt að læra þetta í skólum, menn verða að
fá þjálfun. Eftir síðustu kosningar var þó-
nokkuð um að menn færu frá litlu sveitarfé-
lögunum til þeirra stóru, stækkuðu við sig.
Það er líka nokkuð um að þeir sem hafa ver-
A bæjarstjórnarfunai.
36 VIKaN 16 TBL