Vikan - 30.04.1987, Blaðsíða 54
Gísli, Eiríkur, Helgi
myndi geta lagt ýmislegt til málanna.
Hann dró sig því í hlé og helgaði rann-
sóknunum alla krafta sína.“ .
„ Og þá er það bara Helgi sem er eft-
ir,“ sagði ég.
„Rétt er það,“ Appleby brosti. Ég get
ekki gert að því en mér fundust þessi
bros hans oft hálfgerður óþarfi.
„Helgi stundaði verðbréfasölu og í
sannleika sagt gekk honum ekki alltof
vel. Hann lifði ósköp hversdagslegu lífi
eins og faðir hans hafði gert. Það voru
samt í honum einhverjar taugar til ævin-
týra og svaðilfara eins og í Gísla. Hann
átti sér nefnilega dálítið sérkennilegt
áhugamál. Hann var hellafræðingur.“
„Hellafræðingur?"
„Já, hellar, neðanjarðarár og sprungur
í jarðskorpuna voru hans ær og kýr.
Þetta er í tísku þessa dagana og Helgi
var félagi í nokkrum klúbbum og félög-
um sem fengust við svonalagað. Hann
kunni þó best við að stunda hinar hættu-
legu hellaferðir sínar einn.
Helgi var einhleypur og öldruð ráðs-
kona sá um hann. Hann gat því stundað
myrkraverk sín neðanjarðar eins og
hann lysti. Þar kom loks að Helgi hvarf
að heiman í hellaferðir aðra hverja helgi.
Nú, hann var einmitt að setja niður far-
angur sinn fyrir einn slíkan leiðangur
þegar ráðskonan kom til hans með sím-
skeyti. Hann opnaði það og hnussaði
gremjulega: Bannsett vandræði. Villi-
maðurinn er kominn til Southampton.
Þar sem ráðskonan hafði ekki verið
nema skamman tíma í þjónustu Helga
skildi hún hvorki upp né niður í þessu.
Gísli bróðir er kominn til landsins, sagði
Helgi, og hann ætlar að koma og heim-
sækja mig. Nú jæja, hann verður að sjá
um sig sjálfur í nokkra daga. Þegar
hann kemur skaltu segja honum að ég
komi heim á mánudaginn. Helgi lauk
síðan við að setja niður og lét ráðskon-
una fá miða með heimilisfangi í York-
shire þar sem átti að vera hægt að ná
sambandi við hann.“
„Skildi hann alltaf eftir heimilisfang?"
„Já, svo virðist vera. Stundum kom
að vísu fyrir að hann fór á flakk og
ekki var hægt að ná til hans og svo
mikið er víst að það var ekkert óeðlilegt
við ferðir hans þessa helgi. Það sem
hann hafði sagt ráðskonunni bjó hana
undir það sem næst gerðist en það var
að skeggjaður náungi barði að dyrum
hjá henni aðeins nokkrum klukkustund-
um síðar. Ráðskonan sagði að húsbóndi
hennar hefði farið að heiman skömmu
eftir að hann fékk símskeytið og að
hann kæmi ekki heim aftur fyrr en eftir
þrjá til fjóra daga. Villimaðurinn virtist
ekki verða nema i meðallagi ánægður
með þetta en hypjaði sig samt í burtu
og kvaðst mundu hafa símasamband
við bróður sinn.“
Appleby hikaði eins og að hann væri
að ákveða hvernig hann ætti að haga
framhaldi sögunnar. „Nú jæja, Helgi
hitti nokkra félaga sína í Yorkshire eins
og ákveðið hafði verið og dvaldist með
þeim í tvo daga. Síðan hélt hann af stað
upp á eigin spýtur og minntist á það
við einhvern að hann ætlaði að skoða
Grendale Cleft.“
„Og hvað í veröldinni er það nú?“
„Það er inngangurinn í mjög djúpa
hella í Cumberland. Þú getur væntan-
lega giskað á hvað gerðist næst. Jú, alveg
rétt, Helgi týndist og að lokum var kall-
að á lögregluna.“
„Var kallað á þig?“
„Nei, það var náungi sem heitir How-
ley sem stjórnaði rannsókninni. Ráðs-
konu Helga fannst í fyrstu ekkert
óeðlilegt við hvarf hans og að lokum
var það villimaðurinn sem náði i lögregl-
una. Hann hafði hringt nokkrum
sinnum til að spyrjast fyrir um bróður
sinn. Þegar þrjár vikur voru liðnar frá
þvi að Helgi hvarf kom villimaðurinn í
eigin persónu niður á Scotland Yard
og krafðist þess að lögreglan rannsakaði
málið. Það var varla hægt að segja að
hann væri með óþarfa heimtufrekju.
Það var leitað að Helga en það eina sem
fannst voru leifar af bakpoka og reipis-
slitrur."
„Við Grendale Cleft?“
„Nei, við svipaðan hellisinngang, mun
afskekktari og hættulegri, sem heitir
Gimlet. Þetta þýddi að Helgi var horf-
inn um alla eilífð því að það var enginn
möguleiki á því að hann kæmi lifandi
upp úr þessu ginnungagapi.
Aframhaldið var eins og lög gera ráð
fyrir. Lögmaður fjölskyldunnar tók
málið í sínar hendur og skeggjaði villi-
maðurinn settist að í íbúð Helga til að
ganga frá málunum. Það var einmitt
þar sem Brian Howley lögregluforingi
átti sitt síðasta samtal við hann. Villi-
maðurinn hafði heitið þeim manni
verðlaunum sem gæti gefið upplýsingar
um afdrif bróður síns og lögregluforing-
inn vildi bara tilkynna honum að
lögreglan væri búin að þvi og því myndi
enginn sækjast eftir verðlaununum.
Þetta samtal tók nákvæmlega fimm
mínútur og það hefði bara tekið fjórar
ef síminn hefði ekki hringt og villimað-
urinn svarað.
Halló, sagði hann í tólið, þetta er Gísli
sem talar. Hann endurtók þetta og lagði
síðan á. Skrýtið, sagði hann við Howley
með sínum kanadíska framburði, þetta
var langlínusamtal en náunginn hinum
megin lagði bara á.“
Appleby gerði hlé á máli sínu. „How-
ley gat ekki séð að þetta símtal tengdist
á nokkurn hátt hvarfi Helga en aðeins
nokkrun klukkustundum síðar var villi-
maðurinn bak við lás og slá.“
Ég varð undrandi: „Hafði hann drepið
Helga?“
„En kæri vinur, þetta var Helgi, það
ætti að vera hverjum manni ljóst. Það
er ekki nóg að ganga um með gervi-
skegg,“ útskýrði Appleby. „Það dugar
kannski einu sinni og þá í skamman
tíma. Helgi var með gerviskegg þegar
hann talaði fyrst við ráðskonuna sína,
rétt eftir að hann hafði sent sjálfum sér
skeytið. Því næst fór hann til Yorkshire
og dvaldist þar með félögum sínum og
að þvi búnu lagðist hann út og safnaði
skeggi, hringdi til ráðskonunnar öðru
hverju og gekk frá málum við Gimlet.
Þegar honum var vaxið nógu mikið
skegg taldi hann óhætt að láta sér skjóta
upp aftur, sem Gísli.“
„En hvað átti þetta allt saman að
þýða?“
„Helgi hafði fengið fréttir frá Kanada
af andláti Gísla en kringumstæður voru
allar svo óljósar að víst var að aldrei
myndi fréttast neitt um málið heim til
Englands. Með því að látast vera Gísli
færi hann fram fyrir Eirík í erfðaröðinni
eftir föður þeirra. En þetta mistókst því
að upp um hann komst.“
„En hvers vegna komst upp um hann,
minn kæri Appleby?“
„Heyrn Eiríks. Helgi gekk út frá þeirri
staðreynd að Eiríkur væri blindur en
hann vissi ekki hversu góða heyrn hann
hafði. Það var einmitt Eiríkur sem
hringdi og hann þekkti strax rödd Helga
þótt hann talaði með kanadískum
hreim. Um leið og farið var að kafa
ofan í mál villimannsins kom hið sanna
í ljós.“
54 VIKAN 18. TBL