Vikan - 30.04.1987, Page 38
vegna þess að ýmsir hálaunahópar í þjónustu-
greinum eru hér fámennir. Til Reykjavíkur
sogast gífurlegt fjármagn því velflestar opin-
berar stofnanir og hálfopinberar stofnanir á
borð við landssamtök og ýmiss konar félaga-
samtök eru staðsettar þar. Einnig blómstra
þar ýmis þjónustufyrirtæki svo sem tölvufyrir-
tæki, fjármálafyrirtæki, ráðgjafarfyrirtæki,
skipafélög, flugfélög og þess háttar. Svona
starfsemi er í mjög smáum stíl á Akureyri.
En það hefur orðið mikil tekjuaukning í
þjóðfélaginu og hennar gætir einnig hér. Þetta
var allt í lágmarki hér fyrir tveimur árum en
nú eru menn orðnir bjartsýnni." Það er auð-
heyrt að þessi mál brenna á Sigfúsi því hann
færist allur í aukana þegar hann fer að ræða
þau.
„Að fá háskóla í bæinn, bara að fá gáfað
og menntað fólk sem myndi tengjast háskól-
anum, myndi ílendast hér, smitaði út frá sér
í atvinnulífinu. Þegar talað er um háskóla hér
á Akureyri er verið að tala um þrjú hundruð
manna skóla en það yrði samt sem áður mik-
il lyftistöng fyrir bæjarfélagið."
- Eru einhverjar greinar sem þú vildir láta
kenna hér öðrum fremur?
„Það hafa komið fram tillögur um að hér
yrði kennd sjávarútvegsfræði, iðnrekstrar-
fræði og rekstrarhagfræði. Þetta eru greinar
sem mér finnast mjög áhugaverðar og yrðu
praktískar fyrir okkur. Ég sé fyrir mér að hér
yrðu kenndar einhverjar nýjar greinar sem
ekki eru kenndar í Reykjavík. En ég hefði
alveg eins viljað fá hingað Tækniskólann eða
Kennaraháskólann. Ég hefði talið það alveg
jafnskynsamlegt.“
- Nú er mikill skortur á leiguhúsnæði í
bænum. Getið þið með góðu móti tekið á
móti þrjú hundruð námsmönnum?
„Það er rétt, það er mikill skortur á leigu-
húsnæði.“
- Er hægt að bjóða fólki að koma hingað
til nokkurra ára skóladvalar án þess að hafa
tryggt að nægt húsnæði sé fyrir hendi?
„Það er nú kannski flöskuhálsinn í þessu,
það þyrfti að byggja hér stúdentagarða. En
það er þessi íslenska aðferð að byrja á því
að djöfla hlutunum af stað, láta vandamálin
verða til og svo að leysa þau. Það er ekki til
nein fyrirhyggja á íslandi, sama hvað gert er.
Bara að djöfla hlutunum af stað, það er ís-
lenski hugsunarhátturinn, til dæmis við
húsbyggingar og stofnun fyrirtækja. Ég held
að húsnæðismálin leysist en þau verða samt
sem áður vandamál til að byrja með.
Ég óttast hins vegar meira ef það yrði settur
upp háskóli hér á Akureyri að þetta yrði ríkis-
háskóli og kennurum skólans yrði boðið upp
á sömu skítalaunin og í háskólanum fyrir
sunnan og með því móti fáum við ekkert al-
mennilegt fólk. Þess vegna hef ég verið með
þær hugmyndir að skólinn yrði sjálfseignar-
stofnun sem yrði fjármögnuð að einhverju
leyti með fyrirtækjastyrkjum og skólagjöldum
nemenda. Min von er sú að við reynum að
hafa þetta á örlítið hærra plani heldur en í
Reykjavík.
í háskóla ættu að vera inntökupróf í al-
mennum greinum, til dæmis eftir fyrsta
misserið. Þá hefðu allir jöfn tækifæri til að
spreyta sig. Það á ekki að halda fólki í há-
skóla árum saman án þess að það geri
nokkurn skapaðan hlut. Háskólanám á að
vera erfitt. Það á ekki að útskrifa fólk úr
háskólum sem er varla læst eða skrifandi en
slíkt og þvílíkt hefur gerst. Það á heldur ekki
að leyfa að fólk sé allt upp undir áratug að
ljúka prófi, fallandi aftur og aftur. Á endanum
eru allri farnir að vorkenna viðkomandi svo
að hann fær nokkurs konar samúðarútskrift."
Háskólinn yrdi sjálfs-
eignarstofnun sem
yrðifjármögnuð að
einhverju leyti með
fyrirtœkjastyrkjum og
skólagjöldum nem-
enda.
- Nú finnst manni þegar maður fylgist með
fréttum héðan frá Akureyri að héðan komi
oft á tíðum mikið af neikvæðum fréttum, þó
aðallega sprengjufréttum?
„Þú meinar þegar við rekum hitaveitustjór-
ann, fræðslustjórinn er rekinn og Stefán
Valgeirsson fór í sérframboð,“ segir Sigfús
snöggur upp á lagið.
- Af þessum fréttaflutningi gæti maður
fengið þær hugmyndir að hér gengi mikið á.
„Það er ekki einungis vandamál hvað mikið
af neikvæðum fréttum birtist í sunnlenskum
fjölmiðlum heldur er það líka vandamál hvað
Dagur birtir mikið af neikvæðum fréttum.
Hann er alltof bundinn flokkslínunni. Dagur
er flokksmálgagn og gerður út til að auka
fylgi Framsóknarflokksins, en ég held að ef
eitthvað er þá skemmi blaðið frekar fyrir
flokknum en hitt. Fólk er orðið svo upplýst
í dag og það lætur ekki bjóða sér hvað sem
er. Við höfum svæðisútvarp hér, sem er nokk-
uð gott, og svo Morgunblaðið með Akur-
eyrarsíðu og fleiri íjölmiðla, svo fólk veit
nákvæmlega um hvað málin snúast. Það er
orðið vant því að í stærri málum sé leitað
álits fleiri en eins stjórnmálaflokks. Umfjöllun
Dags missir nokkuð marks því þeir leita bara
álits sinna flokksmanna. Ef ég tek Morgun-
blaðið, sem líka er flokksmálgagn, þá finnst
mér það miklu víðsýnna en Dagur. En ég
óttast að fréttaumfjöllun hans hafi áhrif á
fréttirnar fyrir sunnan því þetta fjölmiðlalið
þar les Dag. Framsóknarflokkurinn er í
minnihluta í bæjarstjórninni, því takmarkast
hlutverk Dagsmanna nokkuð af því að gagn-
rýna bæjarstjórnina. Annars spekúlera ég ekki
mikið í þeim fréttum sem berast héðan, ég
hef einfaldlega ekki tíma til þess. Ég má þakka
fyrir ef ég hef tíma til að lesa Moggann þegar
ég kem heim á kvöldin svo mikið af þessum
fréttum fer fram hjá manni. En ég er sann-
færður um að snjallir og víðsýnir blaðamenn,
sem kæmu hingað, gætu búið til góðar og
skemmtilegar fréttir héðan. Sumir heimamenn
eru verstu fjölmiðlamennirnir hérna á Akur-
eyri því þeim hættir til að vera alltof lokaðir.
Hingað er gott að fá blaðamenn annars stað-
ar af landinu sem hafa annað sjónarhorn og
gætu því séð hlutina á ferskan hátt.
Akureyrskir blaðamenn sjá lítið út fyrir
Akureyri. Þegar ég var á Skagaströnd sá ég
nánast aldrei norðlenska blaðamenn þar. Þar
er nefnilega heilmikið að gerast, svo sem víð-
ar á Norðurlandi. Það sem þeir gera venju-
lega, þessir blaðamenn hérna, er að taka
fundargerðir bæjarstjórnar og fletta þeim og
skrifa síðan einhverjar einskis verðar fréttir
um til dæmis bensínstöðvar, lóðaúthlutanir
og ráðningar á húsvörðum.“
- Pólitík. Þú hefur lýst því yfir að menn,
sem starfa í landsmálapólitík, séu meira og
minna óvirkir.
„Það er hálfgert skítajobb að sitja á Al-
þingi. í fyrsta lagi er þetta illa borguð vinna
og þess vegna fást ekki í þetta toppmenn nema
í undantekningum. í öðru lagi er aldrei tekið
á stóru málunum því stjórnmál byggjast á því
að leysa minni háttar vandamál. Alþingi er
apparat þar sem deiluaðilar koma saman og
deila um málefni. Það er alltaf verið að rífast
um eitthvað sem leiðir til þess að þegar stór
frumvörp koma fram eru þau orðin svo út-
þynnt og lapþunn, þegar Álþingi er búið að
afgreiða þau, að þau flækja málin frekar en
leysa þau þegar þau eru í höfn. Þetta er ekki
samstilltur hópur sextíu gáfumanna sem sitja
á þingi og eru að leysa málin fyrir hönd þjóð-
arinnar heldur er þetta ósamstilltur hópur
deiluaðila sem hver um sig er með sínar eigin
kröfugerðir fyrir sitt kjördæmi og sinn flokk.
Ég held að það sé ömurlegt hlutskipti fyrir
víðsýna menn, sem vilja sjá framfarir í
landinu, að taka þátt í þessu kerfi. Ég er ekki
að kenna einstaklingunum sem slíkum, sem
sitja á Alþingi, um hvernig málin þróast held-
ur kerfinu. Fyrirkomulagið er ekki virkt,
vinnustaðurinn er óvirkur. Menn eru kannski
að rífast í heila viku um það þegar Sverrir
Hermannson rak einn embættismann. Hvern
djöfulinn er Alþingi að eyða dýrmætum tíma
í svoleiðis nokkuð. Alþingi á að setja lög um
lífeyrissjóði, staðgreiðslukerfi skatta, fram-
haldsskóla og vinna að alls konar framfara-
málum. Það er alveg merkilegur andskoti að
þingmenn skuli ekki afkasta meiru miðað við
allan þann tíma sem aumingja mennirnir sitja
yfir þessu.
í þessu kjördæmi buðu átta flokkar fram
til síðustu Álþingiskosninga auk sérframboðs
Stefáns Valgeirssonar. I sjálfu sér finnst mér
stjórnmálaflokkar skipta afskaplega litlu máli,
meiru skiptir að það séu hæfir einstaklingar
sem veljast til þessara starfa. En allir þessir
smáflokkar þýða einungis enn meiri útþynn-
38 VIKAN 18. TBL