Vikan - 30.04.1987, Blaðsíða 42
Draumar
FLUGVEL HRAPAR
Kæri draumráðandi.
Ég ætla að biðja þig að ráða draum fyrir mig.
Mig dreymdi að mér fannst ég vera í flug-
vél ásamt föður mínum og einhverju öðru
fólki sem ég veit engin deili á. Allt í einu var
flugvélin að hrapa og allir reyndu að hraða
sér út um eitt gat. Svo vorum við komin í lít-
inn bát og þá var hann að sökkva en þá sáum
við (pabbi og ég) að einn maðurinn var dauð-
ur svo við hentum honum útbyrðis og við það
léttist báturinn. Skyndilega vorum við á flugi
en þá í loftbelg eða einhverju þvíumlíku, nema
ég hékk fyrir utan hann (hlýtur að hafa verið
i bandi því ég þurfti ekki að halda mér) og
öskraði og veinaði að pabba að hann mætti
ekki sleppa (hann hlýtur að hafa haldið í
bandið). Þá spurði hann mig hvað ég héldi
að hann væri. Þá róaðist ég.
Skyndilega var jörðin komin mjög nálægt
svo ég spurði hvort við ættum ekki að lenda.
Nei, sagði pabbi og sagði að ég sæi ástæðuna
rétt bráðum. Og það sá ég því skyndilega kom
mörg hundruð metra brött hlíð og fullt af
fólki og vélum að vinna þar fyrir neðan. Ég
man að ég hugsaði: Svona lítur þá Hraun-
eyjafossvirkjun út, þó svo að ég vissi að þetta
væri ekki hún. En þá var fólkið niðri búið
að taka eftir okkur og hljóp allt í eina átt eða
þar sem fjallið var lægst því loftbelgurinn var
á leiðinni þangað. Ég vil taka það fram hvað
mér fannst það stórkostlegt útsýni að horfa
niður þar sem ég hékk. Þegar niður var kom-
ið var klappað og veifað, allir svo ánægðir
því við höfðum verið týnd lengi. Það var allt-
af fleira fólk en ég og pabbi, en ég man ekki
hverjir. Eftir þetta ferðalag vorum við pabbi
að skoða landakort og tala um hvað við hefðum
farið langt á ekki lengri tíma. Ég man ekki
eftir svona korti í raunveruleikanum en ég
held að leiðin sé frá Islandi upp í íshaf og lent
í Síberíu í Rússlandi þó svo að það væru ís-
lendingar sem tóku á móti okkur er við lentum.
Með von um birtingu.
2M.
Þessi drauniur er ekkert einfaldur að merk-
ingu en allskýr. Greinilegt er að fram undan
er viðburðaríkur kafli œvi þinnar, miklar svipt-
ingar og úluetta sem þú tekur og vœntir mikils
af en leiðir þig á ótrúlegustu slóðir mannlegs
lífs, þannig aó hófsemi í lífi og starfi er bráð-
nauðsynlegt veganesti ef þú átt að komast
tiltölulega skakkafallalaust fram úr þessum
tíma. Sennilega verða alvarlegar breytingar á
einkalifi þinu, að sumu leyti til góðs en þó erfið-
ar og álag mikið á þér. Hvencer þetta verður
er ekki Ijóst en ekki langt þangað til. Þú tekur
einhverja áhcettu og átt sennilega eftir að velkj-
ast í vafa um Itvort þú hafir breytt rétt. En þú
munt verða reynslunni rikari aó þessum tima
liðnum og það eina sem draumráðandi getur
gefið þér sem ráð er að þú reynir aó halda still-
ingu þinni, ekkert voóalegt mun gerast, en þú
þarft að búa þig undir að standast erfiðan en
að vissu leyti skemmtilegan tíma og að honum
loknum mun líf þitt vera gjórbreytt.
ÞRÍBURAR
OG FLEIRA
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig
draum sem mig hefur dreymt tvisvar með
stuttu millibili.
Fyrst dreymdi mig að ég hefði eignast þrí-
bura (þrjár stelpur). Þegar þær voru orðnar
nokkurra vikna fannst mér ég vera ólétt aftur
og gengi með tvíbura. Mér fannst ég vera allt-
af svo veik þegar ég gekk með þá.
Eftir þrjá daga dreymdi mig svipaðan
draum. Þá var ég búin að eignast strák og
þegar strákurinn var nokkurra vikna fannst
mér ég vera orðin ólétt aftur og alltaf svo
veik. Börnin, sem mér hefur fundist ég eiga í
draumunum, hafa alltaf verið stór og heil-
brigð.
Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
Ein af Norðurlandi.
Draumarnir eru nokkuð svipaórar merkingar
þó sá seinni sé i rauninni betri merkingar.
Draumarnir merkja óvœntar og snöggar breyt-
ingar á lífi þínu sem ef til vill byrja vegna
einhverra óvœntra tíðinda sem þér berast. Auk
þess muntu endurskoóa mat þitt á ýmsu sem
þér hefur hingað til þótt sjálfgefið, ekki síst í
veraldlegum efnum, og vera tná að ýmis ýerald-
leg gaði verói þér ekki eins mikils virði á eftir
þótt ekki bendi neitt til afturfarar á efnahag
þínum, frekar hið gagnstaða.
LJÚFUR
DRAUMUR
Kæri draumráðandi.
Mig langar að fá einn draum ráðinn. Mig
dreymdi hann í nótt og líður svo vel yfir hon-
um að ég er í sæluskýi. Mér fannst ég nefnilega
vera í einhverjum skíðaskála með hópi af fólki
og verða svona rosalega ástfangin, upp fyrir
haus, af einhverjum manni sem ég þekki ekk-
ert í raunveruleikanum. Við vorum eitthvað
saman og mér leið svo vel með honurn, hann
var svo blíður og góður.
Mér fannst maðurinn minn stundum vera
þarna, stundum ekki, en allavega gekk þetta
allt án þess að neinn yrði leiður.
Ég tek það fram að ég hef verið hamingju-
samlega gift í mörg ár, fer aldrei í skíðaskála
og hef aldrei haldið framhjá. Þess vegna finnst
mér draumurinn svo undarlegur, en einhvern
veginn leið mér einkennilega vel þegar ég
vaknaði, hálfpartinn með bros á vör.
Hvað merkir þetta, draumamaður góður?
Með fyrirfram þökk fyrir góða ráðningu.
Skíðalaus.
Draumur þessi er einfaldlega vísbending um
ágceta tíma fram undan. Þú kynnist mörgu in-
dœlu fólki en vertu samt á varðbergi gegn því
að gefa þig allci að þvífyrst í stað, þvi þú veist
best sjálf að ekki er öllum jafnvel treystandi.
Annars veit þessi draumur á frekar gott og
skemmtilegt fyrir þig og ætti engan veginn aó
vera fyrirboðiþess að neitt af þessu tagi gerist.
MANNSNAFN
Kæri draumráðandi.
Mig langar bara að spyrja þig um merkingu
ákveðins mannsnafns í draumi, en ég ætla að
biðja þig að misvirða það ekki við mig þótt
ég vilji ekki gefa nafnið upp. Það er karl-
mannsnafnið X.
Með fyrirfram þökk.
Hrifin.
Sennilega hefur þig dreymt þennan mann ein-
faldlega af því þú ert hrifin af honum, en ef
þú attir uó fara að leggja táknrœna merkingu
í nafnið í draumnum þá er þetta ákajlega gott
draumanafn og boðar hamingju og jarsœld að
öllu leyti. Vonandi að þetta liaji verið tákn-
draumur hjá þér en ekki bara venjulegt skot.
42 VIKAN ia TBL