Vikan - 27.08.1987, Blaðsíða 18
NAFN VIKUNNAR: GUNNAR RAGNARS
AKUREYRI
ERISÓKN
„Akureyri er komin upp úr lægðinni
og bærinn er nú i sókn. Þessari sókn
ætlum við að halda áfram,“ segir Gunn-
ar Ragnars, forseti bæjarstjórnar
Akureyrar. Gunnar er nafn Vikunnar
að þessu sinni, en Akureyri á 125 ára
afmæli laugardaginn 29. ágúst. Þá eru
liðin 125 ár frá því bærinn fékk kaup-
staðarréttindi.
Sjálfur er Gunnar 49 ára, fæddur 25.
apríl árið 1938. Hann er kvæntur Guð-
ríði Eiríksdóttur og eiga þau þrjá stráka.
Gunnars er forstjóri Slippstöðvarinnar
á Akureyri að aðalstarfi. Hann er odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn.
En viti menn, Gunnar er fæddur og
uppalinn á Siglufirði, en rætur hans
liggja samt til Akureyrar. „Faðir minn,
Olafur Ragnars, var Akureyringur sem
flutti til Siglufjarðar. Og afi, Ragnar
Ólafsson, bjó á Akureyri og var reynd-
ar bæjarfulltrúi um tíma.“
Um það hvort Akureyri sé ennþá í
þeirri efnahagslegu lægð sem bærinn
lenti í fyrir nokkrum árum segir Gunn-
ar: „Nei, síðustu tvö árin hefur bærinn
verið að koma upp aftur. Þessi lægð
orsakaðist af erfiðu árferði hjá land-
búnaðinum og sjávarútveginum en
iðnaðurinn í bænum byggist mjög á
þessum greinum. Við höfum aukið hlut-
deild okkar í sjávarútveginum undan-
farið, frá árinu 1984 hafa til dæmis íjórir
togarar bæst í flota bæjarins."
- En nú hefur íjöldi bæjarbúa staðið
í stað um nokkurn tíma?
„Það er rétt en núna er greinilegur
áhugi hjá mörgum á að flytja til Akur-
eyrar. En það eru ýmsar skammtíma
hindranir, sérstaklega vantar húsnæði
en það lagast með auknum ibúðabygg-
ingum sem þegar er byrjað á. Ennfremur
hefur hár hitunarkostnaður verið hemill
en það hefur tekist að lækka gjald hita-
veitunnar um tuttugu prósent. Hér er
þess vegna ekki lengur hæsti hitunar-
kostnaður á landinu. Akureyri er því í
greinilegri sókn og þeirri sókn ætlum
við að halda áfram, við höfum öll skil-
yrði til þess.“
- Er Akureyri tvimælalaust höfuð-
staður Norðurlands?
„Það er enginn vafi á því. Þjónusta
og verslun á Akureyri kemst af öllum
bæjum á landsbyggðinni næst því sem
gerist í Reykjavík. Bærinn er miðsvæðis
á Norðurlandi, það er stutt á fiskimiðin
og við búum við eitt besta veðurfar á
landinu. í sveitunum í kring eru blómleg
héruð þar sem hvað hagkvæmast er að
stunda landbúnað á íslandi. Þetta er
það svæði utan Reykjavíkur sem er best
til þess fallið að vera höfuðstaður.“
- Nú eru ýmsir Akureyringar sem
vildu hafa þetta frá þrjátíu til fjörutíu
þúsund íbúa í bænum. Hvað með þig?
„Ég held að við náum aldrei þeim
fjölda á næstunni en að sjálfsögðu væri
það hagkvæmara til að standa straum
af ýmsum sameiginlegum rekstri. Ég get
nefnt að fyrir menningarstarfsemina í
bænum væri það einnig mjög gott. Leik-
húsið, sem dæmi, er atvinnuleikhús en
markaður þess er of lítill til að endar
nái saman. Varðandi fólksfjölgun í bæn-
um vildi ég sjá hana þróast þannig að
við héldum hlutdeild okkar í fólksijölg-
un landsmanna."
- Nú ert þú oddviti sjálfstæðismanna
á Akureyri, hefur þér aldrei dottið í hug
að gerast sjálfur bæjarstjóri?
„Nei, ég hugsa ekki um það. Pólitíkin
á Akureyri er þannig að það hefur þurft
samstarf tveggja eða þriggja flokka til
að mynda meirihluta. En kæmist Sjálf-
stæðisflokkurinn í meirihluta í bænum
er ég ekki í vafa um að oddviti hans,
hver sem hann væri, yrði bæjarstjóri.“
- Er það eithvað sérstaklega sem
stendur bænum fyrir þrifum núna á 125
ára afmælinu?
„Ég tel okkur ekki eiga við nein stór-
vandræði að glima. Hitaveitan hefur
verið mesta vandamálið en nú höfum
við náð tökum á henni. Ég hef mestar
áhyggjur af þeirri búseturöskun sem á
sér stað á öllu landinu, fólksflóttanum
til Reykjavíkur. Mín skoðun er sú að í
framkvæmd ætti að vera byggðastefna
sem gengi út á að byggja upp stóra
kjarna úti á landsbyggðinni, þar sem
mér sýnist erfitt að halda öllum annesj-
um og dölum í byggð miðað við þær
kröfur sem ungt fólk gerir til lífsgæða í
nútímaþjóðfélagi. Akureyri er vel til
þess fallin að verða stór byggðakjarni
og bjóða upp á þá þjónustu sem fólk
vill hafa.“
18 VIKAN 35. TBL