Vikan - 11.02.1988, Page 24
Hljómsveitin Frakkamir er
nú komin aftur úr klæða-
skápnum eftir að hafa
hangið þar á herðatrjánum
sl. þrjú ár eða frá síðustu
tónleikum hennar sem
haldnir voru síðasta vetrar-
dag 1985. Hljómsveitin
hefúr sem sagt verið
endurvakin og heldur sína
fyrstu tónleika í Lækjar-
tungli 18. febrúar. Hljóm-
sveitina skipa þeir Björgvin
Gíslason, Þorleifúr Guð-
jónsson, Michael Pollock
og Gunnar Erlingsson.
Vikan heimsótti höíuðstöðvar
Frakkanna nýlega en þeir halda
til í ekta bílskúrsholu á Grettis-
götunni. í litlu herbergi þar sem
köld flúrbirtan lýsir upp ómúr-
aða veggi og óffágengið loft. Þar
verður vart þverfótað fýrir því
sem gengur undir nafhinu
græjur.
Um leið og fulltrúi Vikunnar
fer sér sæti í lúnum sófa lætur
Þorleifur þess getið að þótt
Frakkarnir hafi legið í dvaia síð-
ustu þrjú ár hafl þeir samt alltaf
verið að gutia við tónlistina og
Gunnar bætir því við að í raun
hafi þeir aldrei hætt.
Aðspurðir um lagavalið nú
segir Björgvin að þeir séu með
nýtt prógramm og sé tónlistin
þess eðlis að í samanburði verði
gömlu Frakkarnir hrein popp-
sveit. Fyrir utan tónleikana í
Lækjartungli er síðan ætlunin að
hljóðrita það efhi sem hljóm-
sveitin hefur með vorinu og
þeir segjast vona að þeir fái út-
gefanda að því.
Frakkarnir renna í gegnum
prógramm sitt í miðju viðtalinu
og það er vissulega hart rokk
sem þar er á ferðinni, nær yfir-
þyrmandi í þessu litla herbergi
en ætti að skila sér vel í góðum
sal.
Eftir á berst talið að hljóm-
sveitinni Þrír á palli sem Björg-
vin segir að hafi verið annað
dæmi eða nokkurs konar útíbú
ffá Frökkunum, skipuð honum,
Þorleifi og Gunnari.
„Við vorum eitt sinn að spila
fimm kvöld í röð á Abracadabra
meðan á sjávarútvegssýning-
unni stóð og fengum þá marga
af gestum sýningarinnar í heim-
sókn. Ég man að kona ein kom
að sviðinu til okkar og spurði
hvort okkur þætti þessi tónlist
viðeigandi á sjávarútvegssýn-
ingu ...“ segir Björgvin og Þor-
leifur bætir strax við: ,Já,þetta
var æðislega kúltíverað lið sem
kom maður og það fór allt á
nettan bömmer. Sennilega út af
hávaðanum. Vilhjálmur Svan,
eigandi staðarins, kom eitt
U2. Myndin verður ao ollum liK-
indum frumsýnd í sumar og
geta aðdáendur sveitarinnar þá
fýlgst með nokkrum uppákom-
um sveitarinnar bæði á sviði og
baksviðs. Einnig er orðrómur
um nýja hljómleikaplötu og
segja menn að þar sé á ferðinni
tvöfalt albúm.
■ Hljómsveitin Style Council
er nú að ljúka við breiðskífu
sem er ætíuð á markað í vor.
Ekki eru þeir Weller og Talbot
búnir að finna nafn á gripinn en
þeir verða örugglega ekki í
vandræðum með það. Hljóm-
sveitin er undir miklu álagi en
eins og aðdáendur hljómsveitar-
innar muna þá var síðustu plötu
sveitarinnar ekki mjög vel tekið
og því er mikilvægt að nú verði
gert betur eigi sveitin að halda
velli.
■ Hljómsveitin Clash er að
fara að senda frá sér nýja plötu.
Eins og við var að búast eru eng-
in ný lög á plötunni heldur er
þetta safh bestu laga hljómsveit-
arinnar í gegnum árin. Plötunni
hefur verið valið viðeigandi
nafn eða Revolution Rock.
■ Roger Taylor, trommuleik-
ari Queen, er um þessar mundir
að sinna annarri sveit sem ber
nafiiið Cross, en hljómsveitin
Queen er samt ekkert á því að
Queen
hætta. Nú hafa fengist staðfestar
fregnir af þvt að meðlimir Qu-
een eru komnir í lfljóðver og
vinna að nýrri breiðskífu.
Freddie Mercury hefur þó
ekki setið auðum höndum en
hefur nú nýlokið við plötu sem
hann hefur unnið í samvinnu
við óperusöngkonuna Monts-
errat. Brian May hefur líka ver-
ið iðinn við kolann en hann er
að leggja lokahönd á plötu sem
hann hefur unnið með söngkon-
unni Anitu Dobson.
■ í Bandaríkjunum er um
þessa mundir verið að auglýsa
upp nafn Terence Trent
D’Arby en hann hefur notið
Madonna
■ Hvíta tjaldið virðist hafa mik-
ið aðdráttarafl á poppara. Ma-
donna hefur þegar leikið í
nokkrum myndum og David
Bowie starfar svo til eingöngu
við kvikmyndaleik þessa dag-
ana. Nú er að ferast í vöxt að
hljómsveitir geri sínar eigin
kvikmyndir og iög sveitarinnar
séu ekki aðeins notuð til að
skreyta myndir annarra. Reynd-
ar er það ekki nýmæli þar sem
Bítlarnir gerðu nokkrar slíkar
myndir.
■ Önnur sveit sem er á íeið-
inni með mynd er stórsveitin
24 VIKAN