Vikan - 12.01.1989, Side 36
Bláberja skyrterta
Eftirréttur
Fyrir 6-8
Áætlaður vinnutími: 40 mín.
Höfundur: Bjarki I Hilmarsson
INNKAUP:
ADFERD:
Botn og hliðar:
5 eggjarauður
170 gr sykur
125 gr hveiti
5 eggjahvítur
nokkrir vanilludropar
Fylling:
1,2 kg skyr
3 egg
400 gr sykur
1/2 dl mjólk
15 blöð matarlím
200 gr bláber
Bláberjahlaup:
1 dl bláberjasaft
1 blað matarlím
HELSTU ÁHÖLD: Skál, hrærivél,
gormaform 24 cm þvermál, pottur.
Ódýr □ Erfiður □ Heitur □
Kaldur a Má frysta □ Annað:
■ Botn: Eggjarauöum, sykri og vanilludropum slegið saman. Hveiti bland-
að saman við.
■ Eggjahvítur stífþeyttar og blandað varlega saman við eggjarauðu-
massann.
■ Deigið breitt út á plötu með smjörpappírá, bakað við 180°C í 8-10 mín-
útur. Kælt.
■ Úr botninum er skorinn 22 cm hringur, afgangur er smurður með blá-
berjasultu og skorinn í 4 cm breiðar sneiðar, raðað upp í lagköku. Skorið
í sneiðar. Raðað með hliðunum á 24 cm hringlaga gormaformi, smjörpapp-
ír á botninum. Hringurinn settur í botninn.
■ Fylling: Mjólkin hituð, matarlím bleytt upp í köldu vatni, síðan sett út í
heita mjólkina.
■ Látið kólna.
■ Skyr, sykri, eggjum og mjólk (volgri) blandað vel saman, bláberjum bætt
út í, sett í formið með kökubotninum. Kælt.
■ Þá er bláberjahlaupið sett ofan á.
MVND: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Rjúpur með ávöxtum
og madeira
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími: 20 mín.
Eldun: 10 mín.
Hófundur: Bjarki i Hilmarsson
Fugl
INNKAUP:
4 hamflettar rjúpur
4 plómur
12 stk blá vínber
12 stk græn vínber
150 gr sveppir, ferskir
1 dl madeira
1 dl kjötsoð
salt, pipar
HELSTU ÁHÖLD: Panna, ofnfast fat,
dl mál.
Ódýr □ Erfiður □ Heitur ®
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
AÐFERÐ:
■ Rjúpan er brúnuð á pönnu, krydduð með salti og pipar.
■ Rjúpan er sett á fat og inn í ofn. Bökuð við 160° C í 5-8 mín.
■ Ávextirnir eru steinhreinsaðir, settir á pönnuna ásamt sveppum, krydd-
að með salti og pipar.
■ Madeira bætt út á ásamt kjötsoðinu og sósan bragðbætt með salti og
pipar eftir smekk.
MYND: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON