Vikan - 12.01.1989, Síða 49
Ásdís: Undrið? Hvað áttu við?
Pétur: Ég var ekki fyrr búinn
að óska mér þess að ég væri
kominn til félaga minna en ég
var kominn þangað.
Ásdís: Kominn þangað?
Hannes: Ég skil.
Pétur: En það var til lítils. Þeir
hvorki sáu mig né heyrðu.
Sumir þeirra gengu bókstaf-
lega í gegnum mig. Þetta er
eitt hið óhugnanlegasta sem ég
hef upplifað. Ég gafst fljótt upp
á því að reyna að gera vart við
mig og settist hjá einum kunn-
ingja mínum. Þeir voru með
einhverjar pillur. Ég reyndi að
taka eina sem lá á borðinu. En
það fór eins og með hurðina
heima: hendur mínar fóru í
gegn um borðið. En þrátt fyrir
þetta var eins og ég gæti
drukkið í mig eitthað af áhrif-
unum, svo ég róaðist og fór
brátt að slappa af og verða
kærulaus eins og fyrrum.
Hannes: Og hvað gerðist svo?
Pétur: Partíið endaði, ég varð
einn eftir, og áður en ég vissi
var ég aftur kominn útí þok-
una einhversstaðar.
Ásdís: En hvert fórstu svo?
Pétur: Ég gat ekkert farið og
mér fór aftur að líða illa. Ég
fann einhvern veginn á mér að
þessi leið væri ekki til neins.
Flótti minn hafði allur verið til
einskis. Ég féll saman og grét.
Ég bað til guðs að einhver
kæmi mér til hjálpar. Ég var al-
gjörlega örvinlaður. Mér
fannst ég vera gersamlega yfir-
geflnn af öilum og auk þess
villtur. Ég veit ekki hve lengi
ég lá þarna og grét og bað. Allt
tímaskyn var mér einhvern
veginn horfið. En eftir það sem
mér fannst vera eilífðartími fór
ég að grilla í eitthvað í þok-
unni. Það stækkaði og færðist
nær. Það var einhver maður,
og hann ávarpaði mig. Hann
huggaði mig og kom mér ein-
hvem veginn heim til sín í lítið
og notalegt hús þar sem hann
lét mig sofa, og byggði mig
smátt og smátt upp andlega.
Ég var alveg ruglaður í tíman-
um, en þó fannst mér ég vera
hjá honum í marga daga. Hann
var mér ólýsanlega góður. Svo
var það einn daginn þegar ég
var farinn að hressast verulega
að hann sagðist ætla að sýna
mér dálítið. Og hann fór með
mig inní herbergi sem ég hafði
aldrei séð áður. Hann kom
mér þar fýrir í góðum stól og
sagði mér að horfa á einn
vegginn sem var hvítur. Síðan
gerði hann sig líklegan til að
fara útúr herberginu, svo ég
spurði hann hvort hann ætlaði
ekki að sitja hjá mér og hrofa á
með mér. En hann sagði að
þessi sýning væri mér einum
ætluð og svo fór hann fram.
Ásdís: Sýning? Var þetta kvik-
mynd eða hvað?
Pétur: Já, ég held að ekki sé úr
vegi að líkja því við eitthvað
slíkt.
Ásdís: Og um hvað fjallaði'
hún? Var hún falleg?
Pétur: Hún var ekki sem verst
svona ffaman af, en svo tók að
syrta í álinn, og hún endaði
hörmulega.
Ásdís: Af hverju var hann að
sýna þér svona leiðinlega
mynd?
Pétur: Ég varð að sjá hana.
Ásdís: Varðst að sjá hana? Um
hvað var hún?
Pétur: Um mig.
Ásdís: Um þig?
Pétur: Já, það var ævisaga mín
frá upphafi til enda.
Ásdís: Nei, þú ert að skrökva.
Pétur: Það er satt. Þetta var líf
mitt og hvernig ég hafði farið
með það. Það var annað en
gaman.
Ásdís: Varstu honum ekki
reiður? Hvers vegna var hann
að kvelja þig með þessu?
Hannes: Hann réð þessu
ekki, góða mín. Þetta verða all-
ir að sætta sig við þegar þeir
eru komnir hingað. Þú verður
að kynnast sjálfum þér eins og
þú ert í raun og veru í stað
þeirrar gervimyndar sem þú
hefúr gert þér af sjálfúm þér.
Pétur: Ég er honum mjög
þakklátur. Mér er orðið ljóst
að það er ekki hægt að taka
neinum ffamförum fýrr en
maður veit hvað maður er.
Maður verður að byrja á blá-
köldum sannleikanum. Þess
vegna varð ég að koma til ykk-
ar og segja ykkur þessa hörm-
ungarsögu. Fyrirgefðu mamma
mín, ég veit að þetta var erfitt
fýrir þig, en hjá því varð ekki
komist. En nú verð ég að
kveðja ykkur, því starf mitt
bíður og það er ekki hér.
Ásdís: (hrædd). Já, en kem-
urðu ekki aftur?
Pétur: Jú, mamma, ég fæ
sennilega að heimsækja ykkur
aftur, en ég veit ekki hvenær.
Ásdís: Af hverju veistu það
ekki?
Pétur: Það fer eftir því hve
miklum ffamförum ég tek.
Þetta er ekki mitt svið — ekki
enn að minnsta kosti.
Hannes: Andartak drengur
minn. Þú varst að tala um starf
þitt. Hvað er það?
Pétur: Vinur minn er að
kenna mér að hjálpa öðrum.
Ásdís: Öðrum hverjum?
Pétur: Þeim sem hafa orðið
svo ráðvilltir að svipta sjálfa
sig lífi. Ég ætti að skilja þá. Ver-
ið þið sæl.
VIKAN OG HÚS & HÍBÝLI
Tvö á toppnum
Um leið og SAM-útgáfan
óskar lesendum sínum gleðilegs árs þakkar
útgáfan þær frábæru móttökur á árinu 1988
sem komu Húsum & híbýlum og Vikunni í
toppsæti nýafstaðinnar lesendakönnunar
sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands
framkvæmdi fyrir Verslunarráð íslands.
SAM-útgáfan
í.tbi. 1989 VIKAN 47