Vikan


Vikan - 12.01.1989, Page 68

Vikan - 12.01.1989, Page 68
SU LETTARI STJÖRNUSPÁIN Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Pú hefur slegið svolítið slöku við á vinnustað að undan- förnu og ættir að bæta úr því. I einkalífinu er hins vegar allt með blóma og enn bjartari tíð fram- undan. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Taktu það rólega næstu vikuna, hún er ekki hagstæð til framkvæmda, hvorki í einkalíf- inu né því opinbera. Þó ætti ekki að saka að lyfta sér svolítið upp um helgina. Vogin 23. sept. - 23. okt. Rómantíkin, sem alltaf blundar í undirmeðvitund þinni, verður fyrir alvarlegu áfalli. Þú ættir að reyna að helga þig óskiptur starfi þínu á næstunni. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Þú ert fremur niðurdreg- inn þessa dagana, þú þyrftir að létta þér upp. Stutt ferðalag eða önnur tilbreyting mundi gera þér gott. Heillatala 4. Nautið 20. apríl - 20. maí Þeir sem eiga í ástar- sambandi eru svolítið óöruggir þessa dagana um hinn aðilann. Á þvi verður breyting á næstu dögum, málin skýrast og and- rúmsloftið hreinsast. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Þú lendir í dramatískri reynslu með ástvini þínum, sem verður til þess að þið öðlist nýtt viðhorf hvort til annars. Það verð- ur ykkur til góðs. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Þú kemst að raun um að það er alls ekki nóg að halda bara í horfinu, það þarf tilbreytni og nýjungar til þess að starfið verði ekki bara vinna. Vatnsberinn 20. janúar - 18. febrúar Þú krefst mikils af öðrum en gleymdu ekki að gera sömu kröfur til sjálfs þín. Nú virðist góður tími til framkvæmda ef farið er skipulega að öllu. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Þú ert ekki sem ánægð- astur þessa dagana yfir vel meint- um ráðleggingum vina þinna. Þér kæmi þó betur að hlusta á þessar ráðleggingar - og fara eftir þeim. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Þú kemst að raun um að svölun framagirni þinnar hefur einnig sínar dökku hliðar og þér væri fyrir bestu að taka allar að- stæður til endurskoðunar. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Milli þín og vinar er ein- hver skuggi, en nú er rétti tíminn til að eyða honum. Talaðu hreint út um hlutina og sýndu honum fyllstu sanngirni, þá fer allt vel. Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars Þú þarft fljótlega að taka mikilsverða ákvörðun. Þú tekur hana einn en það er þér fyrir bestu að hlusta á annarra ráð. Helgin verður skemmtileg. 66 VIKAN 1. TBL. 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.