Vikan - 12.01.1989, Blaðsíða 68
SU LETTARI
STJÖRNUSPÁIN
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Pú hefur slegið svolítið
slöku við á vinnustað að undan-
förnu og ættir að bæta úr því. I
einkalífinu er hins vegar allt með
blóma og enn bjartari tíð fram-
undan.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Taktu það rólega næstu
vikuna, hún er ekki hagstæð til
framkvæmda, hvorki í einkalíf-
inu né því opinbera. Þó ætti ekki
að saka að lyfta sér svolítið upp
um helgina.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Rómantíkin, sem alltaf
blundar í undirmeðvitund þinni,
verður fyrir alvarlegu áfalli. Þú
ættir að reyna að helga þig
óskiptur starfi þínu á næstunni.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú ert fremur niðurdreg-
inn þessa dagana, þú þyrftir að
létta þér upp. Stutt ferðalag eða
önnur tilbreyting mundi gera þér
gott. Heillatala 4.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Þeir sem eiga í ástar-
sambandi eru svolítið óöruggir
þessa dagana um hinn aðilann. Á
þvi verður breyting á næstu
dögum, málin skýrast og and-
rúmsloftið hreinsast.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Þú lendir í dramatískri
reynslu með ástvini þínum, sem
verður til þess að þið öðlist nýtt
viðhorf hvort til annars. Það verð-
ur ykkur til góðs.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þú kemst að raun um að
það er alls ekki nóg að halda bara
í horfinu, það þarf tilbreytni og
nýjungar til þess að starfið verði
ekki bara vinna.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þú krefst mikils af öðrum
en gleymdu ekki að gera sömu
kröfur til sjálfs þín. Nú virðist
góður tími til framkvæmda ef
farið er skipulega að öllu.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú ert ekki sem ánægð-
astur þessa dagana yfir vel meint-
um ráðleggingum vina þinna. Þér
kæmi þó betur að hlusta á þessar
ráðleggingar - og fara eftir þeim.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Þú kemst að raun um að
svölun framagirni þinnar hefur
einnig sínar dökku hliðar og þér
væri fyrir bestu að taka allar að-
stæður til endurskoðunar.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Milli þín og vinar er ein-
hver skuggi, en nú er rétti tíminn
til að eyða honum. Talaðu hreint
út um hlutina og sýndu honum
fyllstu sanngirni, þá fer allt vel.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Þú þarft fljótlega að taka
mikilsverða ákvörðun. Þú tekur
hana einn en það er þér fyrir
bestu að hlusta á annarra ráð.
Helgin verður skemmtileg.
66 VIKAN 1. TBL. 1989