Vikan - 09.03.1939, Page 12
12
VIKAN
Nr. 10, 1939
Á misskilningi byggt.
Gi'ssur gullrass: Ég er grútsyfjaður, en nú
fer ég á fætur! Rasmína skammar mig alltaf
fyrir það, hvað ég sef lengi. En gott er að
sofa í morgun mund!
Gissur gullrass: Heyrið þér, Fjóla, eruð þér
ekki komnar á fætur enn? Ég bíð eftir morg-
unmatnum!
Stúlkan (inni): Þá megið þér bíða<um stund!
Gissur gullrass: Bara að ég mætti nú ein-
hverjum kunnugum, svo að þeir geti séð, hvað
ég fer snemma á fætur! Starfsfólk mitt hefir
líká gott af að sjá það!
Gissur gullrass (hrýtur).
Lögregluþjónninn: Halló, maður! Hér megið
þér alls ekki sofa! Ef þér eigið ekkert heimili,
verðið þér að fara á Herinn!
Gissur gullrass (vaknar): Hvað er þetta?
Erla: Getur þú ekki haft ögn lægra, pabbi?
Eg þarf að sofa, því að ég kom seint heim í
gærkveldi!
Gissur gullrass: Seint í nótt, áttu við!
Gissur gullrass: Ég virðist þurfa að hlaupa
niður alla stiga þar að auki, því að lyftu-
strákurinn hugsar ekkert um það, sem hann á
að gera!
Mjólkurpósturinn: Jæja, gamli minn, þér
komið snemma heim núna! Smáskemmtun, er
það ekki?
G. g.: Nei, nú hefi ég aldrei - -! Þvílik frekja!
Gissur gullrass: Þetta er min skrifstofa!
Lögregluþjónninn: Þetta geta allir sagt!
Gissur gullrass: Ég er að bíða eftir því, að
það verði opnað!
Lögregluþjónninn: Einmitt það! Nei, nú
skuluð þér hætta! Það er sunnudagur í dag!
Gissur gullrass: Hún þykist fara á fætur kl.
6 á hverjum morgni! Mér datt í hug, að það
væri eitthvað saman við það. Það er verst, að
hún sefur! Hún ætti að sjá mig á fótum!
Gissur gullrass: Þarna sefur apakötturinn!
Hann skammast sín ekki mikið fyrir að sofa,
þegar gamlir menn eins og ég verða að fara
á fætur fyrir allar aldir til að vinna!
Gissur gullrass: Hvað? Það er ekki búið að
opna ennþá? Það er þá svona á skrifstofunni.
Og ég hefi engan lykil!
Gissur gullrass: Hér er ekki rúm fyrir fleiri
en einn, og ekki langar mig beint til að sofa
hjá honum! Að ég skyldi ekki muna eftir
sunnudeginum. Og nú þori ég ekki að fara
heim, því að Rasmína heldur, að ég hafi verið
í einhverju slarki!