Vikan


Vikan - 16.03.1939, Qupperneq 19

Vikan - 16.03.1939, Qupperneq 19
Nr. 11, 1939 VIKAN 19 Liðnir lfiiksrar. Nútíð ©g lortíd. Framh. af bls. 11. og Hlaðgerði í Dansinum í Hruna eftir Indriða Einarsson. Þessi þrjú vandleiknu kvenn- hlutverk, öll upp á H., til minnis- auka, gefa einmitt góða hug- mynd um hæfileika leikkonunn- ar, sem féll vel að sýna hið særða stolt Hrafnhildar, mis- boðnu ást Hlaðgerðar og upp- reistaranda Höllu með tak- markalausri kvennlegri fómfýsi í baksýn. Frú Guðrún sýndi áhorfendum íslenzka kvenn- skapgerð, að vísu hvorki hina djúpauðgu né hörðu, hvorki Unni né Guðrúnu Ósvífursdótt- ur, en miklu frekar hina mjúku og viðkvæmu lund, sem harðnar eins og stál, þegar henni er mis- boðið eða hrekkur í sundur, springur af harmi eins og Hrefna sögunnar. Helgi Helgason lék í fyrsta skipti í Flensborgarskóla í Hafn- arfirði 1893. Það var einkenni- leg tilviljun að fyrstu leikritin, sem hann hafði hlutverk í, voru leikir Sigurðar Péturssonar sýslumanns. Þar lék hann Andrés í Hrólfi og Ólaf niður- setning í Narfa. Er hann ein- asti leikari síðari ára, sem nokkuð kemur við sögu, sem leikið hefir í þessum elztu ís- lenzku sjónleikjum. Með leikfé- laginu lék Helgi Helgason fyrst sama árið og frú Guðrún og síðast í Fjalla-Eyvindi 1923, réttum þrjátíu árum eftir að hann kom fyrst á leiksvið. Vildi þá svo slysalega til er Björn og Kári glímdu í þriðja þætti leiksins, að þumalfingur Helga fór úr liði, og batt það enda á sýningar Fjalla- Eyvinds að því sinni. Annars var Helgi Helgason einn hinn liðtækasti leikari hér í bæ á sínum tíma. Þó hann sé mönnum minnisstæðastur fyrir Kára í Fjalla-Eyvindi, sérstaklega í síðasta þætti, sem var með ágætum, þá verður það talið honum til mestu verðleika, að hann sýnir fyrstur með sannindum íslenzkan vinnumann á leiksviðinu og á það ekki illa við, þegar litið er til fyrstu hlutverkanna, sem hann lék. Það var Indriði vinnumaður í Bóndanum á Hrauni. Það hefir verið sagt um vinnumenn og vinnukonur í leikritum Jóhanns Sigurjónssonar, að það talaði allt „eins og lærðar persónur" — en hann var ekki sérlega lærður karlinn sá, sem kom út úr bænum með axlaböndin lafandi niður á hæla, rogandi undir skattholi og spurði, hvar það mætti standa, þegar allt var að hrynja í jarðskjálftaógninni. Það var að leika sitt eigið þjóðlíf. * Þá er komið að þeim leikurum, sem framar öllum öðrum tengja fortíð við nútíð á leiksviði voru. Það eru þau Gunn- þórunn Halldórsdóttir og Friðfinnur Guðjónsson. I nær hálfa öld hafa þau staðið á leiksviðinu og orðið þar samferða þremur leikarakynslóðum. Að vísu ákvað Friðfinnur fyrir þremur árum að hætta að leika og honum var haldin kveðjusýning í því til- Friðfinnur Guðjónsson sem Daníel vinnumaður. Friðfinnur Guðjónsson sem Argan í Imyndunarveikinni 1922 og 1931. efni, en til allrar lukku hefir hann birzt í tveimur nýjum hlut- verkum síðan og vafalaust tekst honum að halda upp á hálfr- araldar leikafmæli sitt á næsta ári. Hafi nokkur tregða verið á því, að höfuðstaðarbúar fengi tækifæri til að sjá Friðfinn í nýjum hlutverkum undanfarin ár, þá hefir hið gagnstæða orðið ofan á hvað frk. Gunnþórunni snertir, því það má einmitt segja, að síðari árin hafi hún tekið upp hvert hlutverkið eftir annað, og leikið eins og hún stæði í æskublóma, en ætti ekki 44 ára leikarastarf að baki. Hvorugt þeirra, Friðfinnur né frk. Gunnþórunn eru í tölu liðinna leikara, því þau standa enn á leiksviðinu, — ekki einasta sem fulltrúar fyrri leikarakynslóða, heldur sem raunhæfir þátttakendur í leiklistarstarfi nútíðar- innar og skapandi listamenn. Það er því ofur eðlilegt, að sam-. Vizkuspurningu þjóðlegrar leiklistar verði fyrst beint að þeim. Gunnþórunn Halldórsdóttir lék í fyrsta skipti 29. des. 1899 í Breiðfjörðsleikhúsi Sigríði frá Stuðlabergi í sjónleik Indriða Einarssonar, Systkinin frá Fremsta-Dal. Næsta hlutverk hennar var svo Guðrún í ,,sýnisleik“ Einars Benediktssonar, „Við höfn- ina“, sem var byggður á „þjóðlegum grundvelli, með frjáls- mannlegum og djarfmannlegum pólitískum blæ, er lítt eða alls ekki hefir borið á í íslenzkum leikritum“. Þessi sýnisleikur eða ,,revya“, sem nú er kallað, var undanfari þeirrar eldvígslu, sem leikkonan gekkst undir í haustrigningum spánskra nótta á ævi- hausti hennar sjálfrar, og stóðst með prýði fyrir fornar dyggðir. Það voru hinar glaðlyndu yngismeyjar, sem frk. Gunnþórunni féll bezt að leika á fyrstu leiksviðsárunum og svo sérkennileg kerlingarhlutverk eins og heyrnarlausu frk. From í „Ungu Friðfinnur Guðjónsson sem Klinke sinnepskaupmaður. hjónunum" og malaramaddöm- una í „Þrumuveðri“. En frk. Gunnþórunn var framgjörn leikkona og hún beið þess með óþreyju, að fá stærri viðfangs- efni, sem reyndu verulega á kraftana. Hún lék Hjördísi í „Víkingunum frá Hálogalandi“ og frú Alming í „Afturgöngum" Ibsens á fyrstu árunum eftir aldamótin. Það voru slík hlut- verk, sem hugur hennar girnd- ist, því hún fann, að þar var hún á réttri leið. En þegar verk- efnavalið var frekar að óskum annarra og ágreiningur varð milli hennar og stjórnenda Leik- félagsins, eftir fyrstu stjóm Þorvarðs Þorvarðssonar, sagði hún sig úr því félagi, þar sem hún hafði verið einn stofnand- inn, og hún gekk ekki í félagið aftur fyrr en 26 árum síðar. Maður fer nærri um það, að fé- lagið hafi beðið mikið tjón við það, að missa jafn fjölhæfa leikkonu úr leikendahópnum og frk. Gunnþórunn er, því áður en hún sagði sig úr félaginu hafði hún leikið liðlega 40 hlut- verk. Og þó er manni þetta enn þá ljósara, þegar litið er til þess, sem hún hefir afkastað eftir 1930, er hún gekk í félagið aft- ur, og var hún þó enganveginn iðjulaus á útlegðarárunum. Á þeim árum var hún ómissandi 1 öllum revyum Reykjavíkur- annáls og auk þess lék hún í ýmsum smáleikjum, þar á meðal „Sagt upp vistinni“ á móti Sig- urði Magnússyni og síðar Ólafi Ottesen, og náði hún þar álíka vinsældum og frú Stefanía með Kristjáni Þorgrímssyni í „Trínu í stofufangelsi“. Framh. á bls. 22.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.