Vikan - 05.04.1939, Page 5
Nr. 14, 1939
VIKAN
5
Ein klikkislnii i hiinaríki.
D eint af augum, mót rísandi sól og heið-
um himni, beint af augum upp í
kristaltært allsleysið, sem skilur himin-
blámann og jörðina, beint af augum þang-
að, sem fuglarnir fljúga og ljós og myrkur
hverfur yfir heiminn. Hægt og hægt nær
himninum.
Góðan daginn, guð á himnum!
#
— — Þannig hófst hún þessi himna-
ríkisferð með „TF Örn“ og Agnari Kofoed-
Hansen við sjómvölinn.
Við vorum í þrjú þúsund og þrjú
hundmð feta hæð yfir miðju Álfta-
nesi, girtu grárri reim af smásteinum
— það var fjöruborðið. Við, fátæk börn
hversdagsleikans og lífsbaráttunnar, eigum
því ekki að venjast að líta niður á hrafn-
ana, þegar þeir þenja vængina og taka
dýfur í heiðloftunum. En þetta var hrafn.
Þarna velti hann sér nokkram sinnum og
lét sig falla, og þarna sveigði
hann yfir silfurskygndan Skerja-
fjörð eins og svoíítið sótfjúk, og
hvarf inn í gráa Öskjuhlíðina.
Gráskjótt þúst á miðju nesinu!
Bessastaðir — hið fornfræga
mennta- og valdasetur.
Tugir og hundruð ungra Islend-
inga eru læstir inni ámm saman
til að læra utanbókar mikið mál
um Bessastaðavaldið. Gat svo
lítill staður átt svo merka sögðu,
að það gæti svarað kostnaði, —
þessi gráa þúst.
Og Örninn sveigir hægt til
austurs og flýgur norður yfir
Digraneshálsinn. Búnaðarfél. Is-
lands gaf höfuðborgarbúum kost
á að nema land í Digraneshálsi á síðast-
liðnu hausti, og fengu þar færri landskika
en vildu. Ötulir menn og ósérplægnir hafa
brotið þar land í vetur, sprengt grjót, borið
í hrúgur, reist sér geymsluskúra og nokkr-
ir reist sumarhús. Hvergi í þessu landi
myndi mönnum detta í hug að brjóta svo
illt land og hrjóstmgt. En þeir, sem elska
Flugmynd af Laugarnesi, Viðey og Sundunum.
Fyrsta grein af þremur um
hringflug yfir Reykjavík og
nærsveitir Reykjavíkur.
Eftir S. B.
i
jörðina, vinna kraftaverk. Og kraftaverk '
er það, ef Digraneshálsinn á fyrir að ,
verða að blómlendum og akurreinum. En -
dálitlar ójöfnur, og verk hinna ötulu
manna, grjóthrúgurnar, sem þeir tíndu, og
kofarnir, sem þeir reistu, barnalegir smá-
munir og fánýtt, sviplaust glingur.
Sunnan í Öskjuhlíðinni greinir sig fer-
hymt svæði frá öðm róti mannanna í
landið. Þessi herhymingur minnir á
smækkaða mynd af barnaleikvelli með ótal
sandkössum á víð og dreif. Þetta er kirkju-
garður hinna dauðu. Og Shell-geymarnir í
Skerjafirði, þessi bákn, sem við horfum
upp til og erum langan tíma að ganga í
kring um, eru nú eins og skilvindukollur
á hvolfi. Allt stórt verður lítið, og veldi
hins jarðneska hrikaleiks rennur út í blá-
tært loftið, sem á sér engin endamörk —
nema niður á við.
Fram undan er Reykjavík, þyrping af
mismunandi löguðum hlutum, höfuðborg
hins íslenzka ríkis — og þarna réttir hún
biðjandi, biksvarta armana út í hafið. Það
eru hafnargarðarnir. Lítill bátur með
langri kjölrák rennir inn í þetta mikla
fang. Örfirisey, Engey og Viðey eru svo-
lithr haustbleikir hólmar, og Tjömin er
móbrúnt foræði. Ekki vatn, heldur leðja
og óhreinindi.
Stórhýsin miklu, Þjóðleikhúsið, Landa-
kotskirkjan og Listasafnið í Skólavörðu-
holtinu em næsta smá og minna á mann-
virkin, sem börnin klippa út úr Famillie-
Journal og geyma í leikfangakössunum
sínum.
Bláfjöll séð úr lofti.
Esjan, stórt fjall og snævi þakið. Við
stefnum í áttina að stóra f jallinu og lítum
niður á fannhvítar brúnirnar. Bláf jöllin em
kollóttar mishæðir. Það virðist ekki ýkja
mikil mannraun að khfa slík fjöll. Lang-
jökull, Hofsjökull og Hekla em þama
framundan, það er stutt þangað.--------
Örninn sveiflar sér austur og lit-
ast um, yfir fjöll og haf og him-
inn — og ekkert á alla vegu. Hér
undir er mikil, grá flatneskja í
svörtum ramma hrauna og f jaUa.
Það er Þingvallavatn. Og suð-
austur í silfurgliti sólarinnar og
hafsins rísa mórauðir hólar úr
hvítu þokubelti hins f jarsta sjón-
baugs. Það eru Vestmannaeyjar.
Suður. Nú horfum við niður í
paradís skíðafólksins, Hveradali,
Kolviðarhól. Lítill stígur eftir
ávalri hlíð og fáeinir svartir díl-
ar á sífelldu kviki. Það er skíða-
brautin í Flengingarbrekku. —
Skíðakappinn Birgir Ruud er
farinn, en skíðaæska lands-
ins bíður enn. — Fjögur þúsund og átta
hundruð feta hæð — og Agnar Kofoed-
Hansen stöðvar Örninn, gefur honum
fyrirskipun um að nema staðar. Og hann
hnykkist andartak í blátæru loftinu — og
stöðvast. Flugmaðurinn opnar gluggann
og tekur myndir. Hann er að handsama
augnabliksmyndir þessara litlu fjalla og
ætlar að eiga þær, þegar hann kemur aft-
ur niður á jörðina.
Leiðin frá Kambabrún til Reykjavíkur
er nú svo stutt, að það er blátt áfram
hlægilegt, að menn skyldu verða úti á svo
skömmum vegi. Þessi litli spölur! Hve
mennirnir þurfa lítið til að villast og frjósa
í hel!
Vestur yfir Sandskeiðið og Svínahraun-
ið, í áttina til hafs- og Reykjavíkur.
Fyrir viku fór maður á skíðum suður
með Bláfjölum, og er hann hafði gengið á
móts við Helgafell, tók hann þá ákvörðun
Framh. á bls. 20.
TF-öm skilar póstpokum á Akureyri. Agnar situr á vængnum.