Vikan


Vikan - 01.06.1939, Qupperneq 17

Vikan - 01.06.1939, Qupperneq 17
Nr. 22, 1939 VIKAN 17 að eru hvít góðviðrisský úti við sjón- deildarhringinn, langt úti, þar sem himinn og haf mætast. Og golan bærir birkikjarrið í hlíðunum, leikur sér við strá- in í mýrum og vallendi. Á lygnum voginum liggur mikill knörr. Honum hefir fyrir skömmu verið lagt frá landi, og í dag á hann að láta í háf. All- margt manna er á ferli uppi í lendingunni, og nokkrar búðir tjaldaðar á flötunum fyrir ofan voginn. Ýmsir eru þar í lit- klæðum, ungir höfðingjasynir, sem ætla að kanna ókunna stigu og fara utan í dag með Hallvarði austmanni. Feður þeirra ráða þeim síðustu hollráðin, áður en leiðir skiljast að sinni. Það glampar á vopn og skart á klæðum manna. Skildir blika við. sem barn og horft út yfir hið víða haf. Og þaðan hafði hann einnig séð skip vík- inganna nálgast. Hann mundi bardagann, og hvernig landar hans voru höggnir nið- ur eins og hráviður. Og þegar faðir hans féll, varð hann gripinn æði, svo að hann þreif hníf og hljóp inn í bardagann. En stór, gulskeggjaður víkingur hló hæðnis- lega að heift hans og sló hann. í svima, þegar hann ætlaði að fara að beita hnífn- um. Og þegar þessum minningum brá fyrir í huga hans uppi við kolagröfina, greip hann blikandi öxina, sem lá í grænu gras- inu. Hann mundi undrunina í augum Þor- valdar, þegar hann óð að honum, undr- unina miklu, sem hvarf í móðu dauðans. Nú fyrst, er hann lá hér á bak við barð- 1 i? m i n i ! inoi 1 O SMÁSAGA EFTIR JENS BENEDIKTSSON O I LGIUIII 1 i NILMII i Allt andar friði og kyrrð í voginum. Menn vinna af kappi við að flytja hið síðasta af farminum út í skipið. Enginn sér mann, sem við og við skýtur upp höfðinu úr þúfnaskorningum í ásnum fyrir ofan vog- inn. Hann er klæddur tötrum, sá, sem þarna liggur í grænu grasinu og starir við og við dökkum augunum út að skipinu og yfir voginn. En gegnum tötrana má greina fagurt og sterklegt vaxtarlag, andlitið er unglegt og frítt, hárið tinnusvart. Þegan hann sér, að mennirnir niðri í voginum líta ekki í áttina til hans, læðist hann nær og leggst svo aftur niður bak við annað barð og bíður færis á ný. Hann hefir breiða, blikandi exi í hendi, og það er einhver sorti fremst á skyggðu blaði hennar. Það er blóð — mannsblóð, sem þessi öxi úthellti í hendi hans þenna sama morgun. Hann sér það allt fyrir sér, er hann liggur í móunum fyrir ofan voginn, írski höfðingjasonurinn, sem fluttur var út til Islands sem þræll. Hann sér kolareykinn leggja með fram jörðinni í blænum, sér Þorvald húskarl gera að kolagröfinni, og öxi hans liggja á velhnum og man, hvernig hugsunin um Hallvarð austmann, sem í dag átti að láta frá landi, hafði gagntekið huga hans síðustu dagana. Og hann man, hvernig sýninni skaut upp í huga hans, er hann stóð við kola- gröfina og virti til skiptis fyrir sér breitt bak Þorvaldar húskarls, og hina breiðu öxi hans. Föðuríand hans, eyjan græna,' með öllum hennar þráðu dásemdum, stóð honum allt í einu fyrir hugskotssjónum; landið, þar sem hann hafði fæðzt og alizt upp, frjáls og óháður, borinn til vegs og mannvirðinga. Hann sá, sem í draumi, höfðann, þar sem hann hafði tíðum setið ið og horfði niður á voginn, sá hann, hversu óframkvæmanlegt áform hans var í raun og veru. Aldrei myndi hann fá far með knerrinum, hann hafði enginn farar- efni, og það leyndi sér ekki hver hann var. Og Austmennirnir voru löndum hans engu hlyntari en íslendingar. Honum hafði kom- ið í hug að synda um borð og leynast í skipinu, en slíkt var ekki hægt alla leiðina yfir hafið, og fyndist hann, yrði hann áreiðanlega drepinn. Og hann, þrællinn, hafði vegið mann, frjálsan mann, og við slíku var aðeins til ein hegning. En öllu ofar stóð myndin af heimahögum hans á hinni grænu ey, og þráin eftir að komast þangað. Til að fullnægja þessarri þörf hik- aði hann ekki við neitt. Aftur lítur hann niður í voginn, og enn skríður hann nokkuð áleiðis að takmarki sínu, knerrinum, sem breiður og sterkleg- ur vaggar ofurhægt á lognöldunum. Fram á ásbrúnina kemur maður á hvít- um hesti. Hann stöðvar gæðinginn, og lit- ast um. Hár er hann ogherðabreiður, dökk- ur á hár og skegg. Hann hefir hjálm á höfði, spjót í hendi og er girður sverði. Hvöss, grá augu hans hvarfla niður yfir voginn, athuga allt, rannsaka hvern blett. Ekkert dylst fyrir þessum manni. Hann er eins og persónugerður guð hefndarinnar, Hörður, fylgdarmaður og fóstbróðir Úlfs goða á Úlfsstöðum. Heimamenn höfðu fundið Þorvald hús- karl veginn við kolagröfina, og þrælinn allan á burtu með öxi hans. Og Úlfur goði hafði falið fóstbróður sínum að leita þræls- ins, færa sér hann lifandi, eða dauðan að öðrum kosti. Og haukfrán augu Harðar höfðu séð flóttamanninn, sem sífellt færði sig nær voginum. Líklega ætlaði hann að freista að synda út til skipsins. írinn var svo áfjáður í að komast sem næst ströndinni, að hann hafði ekki gætt þess að líta upp til landsins alllengi, en skreið eins og ormur frá barði til barðs. Nú hafði hann í hyggju að komast út í nesið vestan megin vogsins og freista sundsins þaðan. Hörður hleypti hesti sínum á stökk nið- ur ásinn, moldin rauk úr sporum gæðings- ins, fólkið niðri á ströndinni leit upp. Og írinn leit líka upp og sá manninn og þekkti hann. Hann stóð á fætur og tók á sprett vestur með voginum og stefndi út í nesið. Hörður beygði út af götuslóðanum og hélt á harðaspretti út móana á eftir flótta- manninum. Hann hóf spjót sitt til kasts, það þaut gegnum loftið. írinn heyrði hvin- inn og kastaði sér niður, en spjótið flaug fram yfir hann. Þá stökk hann á fætur aftur sem örskot, greip spjótið og snerist gegn Herði, sem hljóp af baki og brá sverði sínu. Þá skaut Irinn spjótinu. Hörð- ur sá ekki önnur fangaráð en að snarast bak við hestinn, sem fékk spjótið í síðuna og féll dauður niður. Hörður stökk yfir hestskrokkinn og hljóp að þrælnum, sem beið hans með reidda öxina. Irinn missti fyrsta höggsins og laut eftir því. Það var auðvelt tækifæri fyrir hinn vígvana Hörð. Sverðið þaut gegnum loft- ið með snöggum hvin og lét eftir gapandi sár í höfði írans. Aftur hóf hann þó öxina til höggs, en þá fór dauðinn um hann. Dökk augun störðu á Hörð, augnaráð þeirra var fjarlægt, eins og þau sæju í gegnum hann. Hörður vissi ekki, að þræll- inn leit föðurlandið langþráða í síðasta bliki brestandi augna sinna. Kvöldið hefir litað hvítu góðviðrisskýin rauð sem blóð, þar sem himinn og haf mætast. Og út f jörðinn rennur knörr Hall- varðar austmanns í golunni. En sá, sem heitast þráði far með þessu fleyi, varð fyrstur heim, þótt hann liggi nú hulinn torfi og grjóti í móunum fyrir ofan vog- inn. — — Ég hefi ágætt minni, sagði Grímur. Það er aðeins þrennt, sem ég get aldrei munað: Ég get ekki munað nöfn, ég get ekki munað andlit og ég get ekki munað, . . . hver þremillinn, ég hefi gleymt, hvað það þriðja er. * — Hr. gestgjafi, þér verðið að koma fljótt, konan mín ætlar að fleygja sér út um gluggann. — Hvað á ég að gera? spyr gestgjafinn. — Við getum ekki opnað gluggann, maður. # — Heyrðu er það satt, að Karl hafi ver- ið á drykkjumannahæli ? — Já, það er alveg áreiðanlegt, því að hann var blindfullur, þegar hann kom heim. Bjössi: Hversvegna er Siggi að gráta? Nonni: Af því að pabbi hans er dáinn, og það á að jarða hann á morgun, þegar það er hvort sem er frí.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.