Vikan


Vikan - 06.07.1939, Qupperneq 19

Vikan - 06.07.1939, Qupperneq 19
Nr. 27, 1939 VIKAN 19 STUNDVISI. - BARNASAGA. TP\óra litla hljóp upp tröppurnar heima hjá sér og hringdi dyrabjöllunni. — Mamma hennar lauk upp. — Dóra, sagði hún ásakandi. — Enn einu sinni kemur þú of seint. Pabbi þinn er bálreiður, — og við erum byrjuð að borða. — Ó, fyrirgefðu, mamma, sagði Dóra. — Ég fylgdi Grétu svolítið á leið. Ég vissi ekkert, hvað tímanum leið. — Jæja, seztu að borðinu, sagði mamma hennar. — Ég verð að hita upp matinn fyrir þig. Dóra lagði frá sér skólatöskuna og fór úr kápunni. Síðan fór hún inn í borðstof- una, þar sem faðir hennar sat. — Góðan dag, pabbi, sagði hún lágt. — Fyrirgefðu, hvað ég kem seint. Bjarnar fulltrúi horfði reiðilega á hana. — Þú kemur of seint á hverjum ein- asta degi, Dóra, sagði hann reiðilega. — Ég vil ekki hafa þessa óstundvísi. Varstu látin sitja eftir? — Nei, ég fylgdi vinkonu minni og gleymdi--------Dóra roðnaði. — Og gleymdi matmálstímanum, hróp- aði faðir hennar. — Það er fallegt! Móðir þín hefir orðið að bíða með matinn og verður nú að hita hann upp aftur, vegna þess að þú ert að slæpast úti í stað þess að koma beina leið heim. Þú mátt skamm- ast þín! Dóra leit niður fyrir sig. — En nú ætla ég að segja þér eitt, hélt pabbi hennar áfram, — komi þetta fyrir einu sinni enn að ástæðulausu, ferðu ekki eitt einasta fet í skólaferðina, sem þú hefir hlakkað svo til að fara í. Skilur þú mig? — Já, pabbi, tautaði Dóra. — Ég skal gæta mín. — Gerðu það þá, sagði' faðir hennar. Annars kemur það sjálfri þér í koll. Dóra gætti sín nú eins vel og hún gat. Hún flýtti sér alltaf beint heim úr skól- anum. Ef hún fengi nú ekki að fara í skólaferðina, sem allir hlökkuðu svo til að fara í. Nei, það mátti aldrei verða! Og í rauninni sá hún, að pabbi hennar hafði á réttu að standa. Það var það minnsta, sem hann gat af henni krafizt, að hún væri stundvís í matinn. Hann var alltaf svo stundvís sjálfur. Þess vegna hafði komið til tals, að hann yrði skrifstofustjóri í firmanu, sem hann vann í. En það var samt ekki áreiðanlegt. Sumir héldu, að einhver forstjóri fyrir einu útibúi fyrir- tækisins fengi stöðuna. Dag einn var Dóra að flýta sér heim. Hún hafði verið svo oheppin, að skoreim- in hennar slitnaði, þegar hún var að fara út úr skólanum. Þess vegna varð hún seinni fyrir en venjulega, en til allrar ham- ingju ekki seinni en það, að hún gat kom- ið heim á réttum tíma, ef hún flýtti sér. Það var ákaflega hvasst. — Þvílík heppni, að vindurinn skuli vera á eftir mér, hugsaði Dóra. Á undan henni gekk roskinn maður. Um leið og Dóra gekk fram hjá honum, fauk •— Ég þakka þér fyrir, stúlka mín, sagði hann vingjarnlega. -— Þetta var fallega gert. hatturinn skyndilega af honum og valt og valt. — Ég má alls ekki vera að því að elta hann, hugsaði Dóra. — Ef ég kem of seint heim, fæ ég ekki að fara í skólaferðina. Hatturinn valt enn og valt. Nei, aumingja gamli maðurinn, hugsaði Dóra. — Ég hlýt að hafa það af. Hún hljóp eins og fætur toguðu eftir götunni, beygði sig, tók hattinn upp, dust- aði af honum og rétti manninum hann. — Ég þakka þér fyrir, stúlka mín, sagði hann vingjarnlega. — Þetta var fallega gert. En heyrðu, ertu kunnug hér. — Já, svaraði Dóra og var óþolinmóð að komast leiðar sinnar. — Jæja, það er ágætt, sagði gamli mað- urinn. Þá veiztu, hvar Lundagata er. Ég sé svo illa götunöfnin. — Já, sjálfsagt, svaraði Dóra kurteis- lega. En hún hugsaði: — Þá kem ég of seint heim, og ekkert verður úr skólaferð- inni. Hún varð að ganga hægt og rólega. En loksins komu þau inn í götuna, og Dóra rauk af stað um leið og hún sagði: — Hér er hún. Verið þér sælir. Pabbi og mamma voru sezt að snæðingi, þegar hún kom inn. Bjarnar leit grimmi- lega á hana. — Ég get ekkert gert að því, þó að ég komi svo seint, stamaði Dóra . . . Ég þurfti að fylgja gömlum manni. — Einmitt, muldraði fulltrúinn. — Þurftir þú að vera svo lengi að því? — Nei, en fyrst slitnaði skóreimin mín, og maðurinn missti hattinn. í sama bili var dyrabjöllunni hringt. -— Farðu til dyra, skipaði faðir hennar. Dóra fór fram. Gamli maðurinn, sem hún hafði hjálpað, stóð fyrir utan. — Nei, en þetta er verndarengillinn minn, sagði hann undrandi. — Átt þú heima hér? — Já, svaraði Dóra. — Ertu kannske dóttir Bjarnars full- trúa? Dóra kinkaði kolli. — Einmitt það, einmitt það. Er pabbi þinn heima? — Já, gjörið þér svo vel, sagði Dóra og leiddi manninn inn í borðstofuna. Pabbi hennar spratt upp um leið og hann sá gamla manninn. — Herra framkvæmdarstjóri, sagði hann undrandi. — Hverju á ég að þakka heimsókn yðar? Má ekki bjóða yður sæti? — Takk, sagði gamli maðurinn og sett- ist. Þegar hann var seztur, hélt hann áf ram: — Þér vitið, að skrifstofustjórastaðan er laus? Ég hefi verið í miklum efa um, hverjum ég ætti að veita hana — yður eða Hólm. Þess vegna hefi ég heimsótt ykkur báða í dag og hefi nú tekið ákvörð- un. Maður, sem á eins kurteisa dóttur og þér, verður heldur tekinn. — En, en . . . stamaði faðir Dóru. — Já, sagði gamli maðurinn, — dóttur yðar lá mikið á heim, en samt gaf liún sér tíma til að elta hattinn minn og fylgja mér. Ég öfunda yður af dóttur yðar, herra skrifstofustjóri. — Ég þakka yður kærlega fyrir, stam- aði Bjarnar. En þegar framkvæmdarstjór- inn var farinn, tók hann dóttur sína upp og sveiflaði henni í kringum sig. — I dag hafðir þú ástæðu til þess að koma of seint heim, góða mín, sagði hann ánægjulega. — Þú átt sannarlega skilið að fara í skólaferðina. Bjössi litli: Mamma, strákurinn þarna sagði, að ég væri dóni. Má ég spýta á hann, mamma mín. * — Hvað ætli klukkan sé? — Ja — svona eitthvað á milli 3 og 5, svo að ég sé nákvæmur. Anna gamla: Getur maðurinn sagt mér, hvort sama er, hvern strætisvagninn ég tek vestur á Elliheimili. Björn: Já, mér er nákvæmlega sama. i

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.