Vikan - 17.08.1939, Síða 7
Nr. 33, 1329
V IK A N
7
.
Það vantar ekki viðskiptin á snyrtistofuna
Það er gert gys að því, hvað konur eyða miklum tíma í að snyrta sig
á kvöldin áður en þær fara út. En á daginn er öðru máli að gegna. Að
minnsta kosti er alltaf nóg að gera á snyrtistofunni, sem er nýtekin til
starfa í New York. Ungu stúlkurnar, sem vinna allan daginn og hafa
nauman tíma, koma þangað í matarhléinu eða eftir skrifstofutíma til þess
að láta laga sig til. Það er gengið beint af götunni inn í stofuna, setzt við
borð og þar eru svo borin á mann allskonar spayrsl og duft, lagaðar neglur
og augnabrýr og varir málaðar fljótt og vel.
Fegurðarkröfur kvenna halda uppi miklum iðnaði hvarvetna í veröldinni.
Eingöngu í Ameríku vinna 500.000 manns að þessum störfum, aðallega
konur. 85% af amerískum konum telja varalitun lífsnauðsyn og eyða 100
milljónum króna árlega í varalit. Andlitsduft er keypt fyrir 300 milljónir
króna, og smyrsli fyrir 400 milljónir.
: