Vikan - 17.08.1939, Side 24
Ríki, nízki frændi: Hvað segirðu, ef
ég gef þér fimm aura?
Addi: Ekkert. Mamma segir, að ég
megi ekki blóta.
— 1 veiðiferðinni í gær flaug kúla beint yfir
hausnum á mér, — hefði hún farið sentimetra
lægra en hún fór, væruð þér að tala við lík núna.
dæmi upp á málvenju,
sem er ósamkvæm sjálfri sér?
Pétur: Já, hnefaleikamaður.
Kennarinn: Hvað áttu við?
Pétur: Jú, til þess að slá sér upp, verður
hann að slá einhvem niður.
Frúin: Hvemig gátuð þér látið sótarann
kyssa yður, Maria?
María: Ég skil það ekki, en allt í einu
sortnaði mér fyrir augum.
Prófessorsfrúin: Kemur þú með í
brúðkaup Figaros?
Prófessorinn: Erum við boðin þang-
að? Ég man alls ekki eftir því,
— Ég hefi fengið síma.
— Jæja, hvaða númer hefurðu?
— Kortér í tólf.
— Hvað áttu við ?
— 1145, maður.
— Og þegar við erum gift, Soffía, ætlum
við aldrei að munnhöggvast.
— Nei, aðeins þegar við . . . kyssumst.