Vikan


Vikan - 28.09.1939, Síða 14

Vikan - 28.09.1939, Síða 14
14 VIK AN Nr. 39, 1939 Fyrsta fegurðarcSrottning Islands var kjörin ungfrú Lóló Jónsdóttir, Ritstjóni VIKUNNAR er það mikil og fróandi ánægja að geta í dag birt úrslit í fyrstu fegurðarsamkeppni, sem efnt hefir verið til meðal ísleii/kra kvenna, á þann hátt, sem títt er erlendis. — UNGFRtJ UÓLÓ JÓNSDTTIR hefir verið kjörin íegurðardrottning Islands fyrir yfirstandandi ár, og hlýtur hún til fullrar eignar silfurbikar þann, sem blaðið gaf til að keppa um. Hlaut hún langflest atkvæði í báðum kosningunum, bæði í tillögukosningunni og úrslitakosningunni. Samtal við fegurðardrottninguna. — Jæja, hvað segið þér nú um það að vera orðin fegurðardrottning Islands? — Æ, blessaðir, segið þér ekki fegurð- ardrottning! Það er svo stórt orð, allt of stórt. Auk þess hefi ég ekkert um eða við því að segja. — Finnst yður ekki heiður að því að vera kjörin sem laglegasta stúlka landsins með svona yfirgnæfandi meiri hluta at- kvæða? — Hvorugt. — Og hvað segið þér um fallega, stóra silfurbikarinn, sem þér fáið? — Allt gott. Mikil ósköp, bikarinn er svo sem ákaflega fallegur, það vantar ekki. Og ég er viss um, að eftir svona 40—50 ár þykir mér gaman að sýna barnabörnun- um mínum hann og segja: — Sú var tíðin o. s. frv.----- — Og svo eitthvað, sem þér hafið upp- lifað eða afhafzt, — einskonar æfisögu. — Tja, æfisögu ? Það gæti nú orðið tals- vert langt mál, því að ég verð hálffertug Fegurðardrottningin í íslen/.kum búningi. í næsta mánuði! sagði Ungfrú ísland 1939 og hló. — Já, ég verð tvítug 12. október næstkomandi. Æfisögu? Bíðið þér nú við. Ég er fædd á sunnudagsmorgni kl. 11, 12. okt. 1919. Foreldrar mínir eru Jón Ólafs- son, bankastjóri, og Þóra Halldórsdóttir, kona hans. Þegar ég var tveggja mánaða Almynd af fegurðardrottningunni. gömul-----------------nei, þetta verður allt of langt mál. Nú hlaupum við yfir allt þangað til ég var fimmtán ára. Þá fór ég fótgangandi með tveimur skólasystrum mínum frá Hornafirði norður um land til Reykjavík- ur. Ágætis ferð það, en nokkuð erfið á köflum, eins og gefur að skilja. Nú, nú. Þegar ég var sautján ára, lauk ég stúdents- %\iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>^ MYNDIRNAR TÓK | VIGFÚS SIGURGEIRSSON Glllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllð' prófi úr Menntaskólanum, vorið 1937, og -----ha? einkunn? svona sæmileg fyrsta. Haustið eftir fór ég til Kaupmannahafnar á teikniskóla, en lagði þó aðallega fyrir mig keramik-mótun. í vetur, sem leið, var ég á Kunstakademíinu í Miinchen við fram- haldsnám í sama fagi. Þegar skólinn var búinn í vor, fór ég í einskonar kynningar- Fegurðardrottningin í þungum þönkum. ferð með skólanum til ítalíu, og ferðuð- umst við um mikinn hluta landsins í tvo mánuði, og lærðum mikið af því að skoða og rannsaka hin ódauðlegu listaverk, sem þar getur víða að líta. Nú, síðan sneri ég nefinu heimleiðis, en fór mér að engu óðs- lega, því að ég átti marga kunningja, bæði í Munchen og Berlín, og ættingja og vini í Höfn. Og svo kom ég heim með Gullfossi í júlílok — og hana nú. — En hvaða áhugamál hafið þér svo utan námsins? — Ja, mér þykir gaman að lesa góðar bækur og hlusta á góða músik, auk þess sem mér þykir gaman að dansa eins og flestum ungum stúlkum, iðka ýmsar íþróttir og spila á píanó. Ekki svo að skilja, að ég sé neinn íþróttagarpur, né heldur er ég neinn píanósnillingur, öðru nær. En þrátt fyrir það er ekkert því til fyrirstöðu, að mér geti þótt gaman að því. — Já, rétt er nú það. En hvernig finnst yður nú að koma aftur heim til gamla Fróns ? — Ágætt auðvitað. Hollt er heima hvað, stendur þar. Kannske meira hollt en skemmtilegt. Þegar maður er utanlands, hefir maður stöðugt heimþrá, en--------en ég er nú samt hálfleið yfir því að komast ekki út aftur til þess að halda áfram námi mínu, vegna stríðsins. — Já, hvað segið þér um stríðið? — Hana nú. Ekkert. Auðvitað er það Framh. á bls. 22.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.