Vikan


Vikan - 12.10.1939, Page 17

Vikan - 12.10.1939, Page 17
Nr. 41, 1939 V IK A N 17 Eigingjörn Emile Gausette hafði alltaf staðið stuggur af hjónabandinu. Hann var aðeins 27 ára gamall, en hafði þó náð sér í góða stöðu í stóru fyrirtæki. Hann hafði 15,000 franka árslaun — það hefði auðvitað nægt handa tveimur, en . . . maður varð þá að neita sér um svo margt. Hann kunni vel við sig í litlu, þægilegu, fallegu íbúðinni sinni, þar sem hann gat látið eins og hann vildi. Hann gat farið í dýr veitingahús, borðað góðan mat og drukkið góð vín. Á sunnudögum og í frístundum sínum iðkaði hann tennis. Hann var ekkert gefinn fyrir bækur, leit satt að segja aldrei í bók, en las dagblöðin. Emile var ánægður. Hann hafði allt, sem hann óskaði sér. En í hverri paradís er slanga og hjá Emile voru þær fleiri en ein. Það voru vinir hans, sem voru kvæntir. Þeir, sem voru hamingjusamir, vildu, að Emile væri það líka, en þeir, sem voru óhamingjusamir, öfunduðu hann af frels- inu. Niðurstaðan varð því sú, að allir reyndu að koma honum í hið heilaga hjónaband. Emile hló aðeins að þeim og svaraði: — Já, vinir mínir, ef þið komið með konu við mitt hæfi, skal ég þóknast ykkur, en fyrr ekki. Vinirnir leituðu og leituðu, og loksins fundu þeir hana. Hún hét mademoiselle Roberte Macotin. Hún var fögur, rík, skynsöm og hafði áhuga á listum og bókmenntum. Hún vann fyrir sér sjálf með því að skrifa greinar í blöð, og nú var hún að vinna að annarri skáldsögu sinni. — Ja, hver skollinn, hrópaði Emile. — Þetta er fyrirmyndareiginkona. Hún er aðeins allt of vitur. — Hvers vegna segir þú þetta? Værir þú ekki hreykinn af því að eiga fræga konu, sem allir dást að? Vinimir ákváðu að halda veizlu til þess að Emile tæki ákvörðun. Allt gekk eins og í sögu. Emile varð strax hrifinn af Roberte. Hún var grann- vaxin, hafði stór, svört augu og dökkt, liðað hár. Viku síðar opinberuðu þau trú- lofun sína. Ég hitti Emile, þegar hann var að koma úr brúðkaupsferðinni. Hann sá mig ekki, fyrr en ég kallaði til hans, vegna þess að hann var svo annars hugar. Hann virtist alls ekki vera ánægður. — Halló, kallaði ég. — Hvað er að þér, maður? Þú ættir sannarlega að vera ham- ingjusamur. — Haming jusamur ? endurtók hann, utan við sig. — Ertu það ekki? —Jú-ú. — Það er ég í raun og veru. um of — ^lllll■llllll■ll■■llll■■lll■■llllll■l■llll■■ll■■llllllIIIIII11111111111111111111111111 .,f | • Smásaga. • | iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*iiiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>:' — Þú virðist ekki vera neitt hrifinn? — Hrifinn? Jú, víst er ég hrifinn. Ég er ákaflega hrifinn. — Heyrðu, sagði ég. — Það er eitthvað að þér. Segðu mér það. — Jæja, svaraði hann, þegar hann hafði hugsað sig lítið eitt um. — Þér get ég sagt, að ég er hamingjusamur án þess að vera það, ef þú skilur, hvað ég á við. — Hvað áttu við? — Roberte er yndisleg, dásamleg, þó að ég verði ekki mikið var við það. Ég er blátt áfram óhamingjusamlega ástfanginn af konu minni. En hún sér mig alls ekki . . . ekki eins og ég vil. Ég er eins og einka- ritari hennar, sem verð að skrifa fyrir — Mér datt í hug, hvort við hefðurn lýst augum drengsins nógu vel. hana og hún talar við um ýms atriði, sem koma fyrir í þessari bölvaðri skáldsögu, sem hún er að skrifa. Það er hryllilegt. Ef ég vil njóta náttúrunnar með henni, biður hún mig að skrifa eftir fyrirlestri, hvaða áhrif hún hefir á hana. En hún hugsar ekki um mig. Það er eins og ísköldu vatni sé hellt yfir höfuðið á mér í hvert skipti, sem ég ætla að kyssa hana, því að hún hrópar alltaf: — Ó, heldurðu ekki, að José . . . eða hvern f jandann hann heitir þarna í bókinni, hefði gert þetta? Segðu það aftur, svo að ég muni það, og skrif- aðu það fyrir mig. — Hugsaði hún svona mikið um vinnu sína í brúðkaupsferðinni7 — Guði sé lof. Það vantaði nú bara. Var gaman í brúðkaupsferðinni ? Sástu Neapel og Róm? — Já, og Venesíu, Flórens, Mílanó og allt það.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.