Vikan


Vikan - 14.12.1939, Page 3

Vikan - 14.12.1939, Page 3
Nr. 50, 1939 V IK A N 3 Emil Bjömsson. — œvintýraland — Margir útlendingar hafa fundið betur en íslendingar sjáif- ir, hve landið er í raun réttri mikið ævintýraland. Einkum eru það þeir, sem ferðast hafa um óbyggðirnar, er hafa kynnzt hinum sýnilega ævintýraheim landslagsins, andstæðunum, hrikaleiknum, blíðleikanum, segir greinarhöfundur r dag er 8. desember 1939. A þessu ári hafa undur gerzt. Heilar þjóðir og lönd hafa týnzt úr landafræði Vestur- álfunnar; stóru ,,menningarþjóðirnar“ berjast fyrir friðnum, óðari en nokkru sinni áður; „móti fasisma og stríði“ sést ekki framar í Þjóðviljanum; en meginjörð Evrópu er búin djöfullegum drápsvélum, vötnin og höfin endalaus ógnaheimur og loftið leikvöllur viðurstyggðarinnar, berg- mál harmkvælanna og aðsetur eitursins. Það væri því engin undur, þótt smæstu smáþjóðinni féllust hendur í vargöld þess- ari. En svo er þó ekki. Vaxandi sameining einkennir stjórnmálalífið í heild, hugsandi og leiðandi menn þjóðarinnar tengjast böndum, alþýða manna tekur þrengingum tímans með skynsamlegri ró. Allra augu, sem áður beindust út, beinast nú inn á við, til landsins, til möguleika þess, til vandamála þjóðlífsins, til úrlausnar þeirra og til nýrra tíma frjálsrar, framleiðandi þjóðar, í frjálsu, góðu landi. Þjóðarandinn er á heimleið, ef svo mætti segja, ógnaröldin úti hefir þjappað saman þessari smáu, en sundurlyndu þjóð, og mætti þó mun betur. Það er æskan, sem á öllum tímum gef- ur rúm eða stemmir stigu straumanna nýju í þjóðlífinu. Um alllangt skeið hafa borizt hingað óþjóðlegir straumar og yfirborðskenndir á öllum sviðum þjóðlífsins. Þjóðin hefir lifað síðustu áratugina eins og áhrifagjarn unglingur gegnt hinum mikla heimi. En hún hefir heldur ekki allt- af kunnað skil á að tileinka sér það eitt, sem á hér við. En hér koma tímamót. Þjóðin er orðin fulltíða. Með hugalli alvöru og festu stíg- ur hún síðasta sporið til sjálfstæðis síns með trúnni á landið að vopni, þrátt fyfir allt, sem er að gerast. Daglega les Reykjavíkuræskan um Is- land veruleikans, atvinnuháttanna, mögu- leikanna, framfaranna, Island í dag, Island í verki. Þessi fræðsla er nauðsynleg aldrei fremur en nú. Hún glæðir trúna á landið. En ísland — ævintýraland er sjaldgæf fyrirsögn. Þó er Island að líkindum eitt hið allra auðugasta ævintýraland heims- ins. Þótt skömm sé að, þá hafa útlending- ar margir fundið þetta betur en íslending- ar sjálfir, því að glöggt er gests augað. Einkum eru það þeir, sem hafa ferðazt um óbyggðirnar, en þeir þekkja aðeins hinn sýnilega ævintýraheim landslagsins, and- stæðurnar, hrikaleikann, blíðleikann, gróð- urlautirnar og grátt hraunið, hina enda- lausu fjölbreytni, litbrigði og líf. En Islendingarnir sjálfir, sem alast upp í ævintýraheimi landsins og lita þar ímynd- unarafl sitt, hafa öldum saman verið að skapa þann ósýnilega ævintýraheim, sem birtist í þjóðsagnaauði okkar og fáir út- lendingar hafa fengið að kynnast. I þjóðsögunum tvinnast saman veruleiki og óveruleiki, æfintýraheimar hugans og augans, í dásamlega auðugum og einstæð- um skáldskap. Megin þorri æskunnar í landinu þekkir lítt til landsins á þessum mótum tveggja heima. Ástæðan er sú, að þeim fækkar stöðugt, sem fæðast og alast upp út í ís- lenzkri náttúru, ef svo mætti segja. En í hinni ungu þjóðarsál vakir þó stöðugt óljós þrá inn að hjarta landsins. Með batnandi samgöngum og vaknandi vitund um ævintýraheim byggða og óbyggða hefir æska Reykjavíkur sýnt á undanförnum árum, að hún er börn þeirra feðra, sem eftir erfiðan dag fundu hvíld og nautn í að yrkja um ævintýraleik lands- ins og óveruleik. Þessi æska, sem á nú að erfa landið, vill sízt sjá af ævintýraljóma þess, aðalmarkinu sjálfu. Hún minnist ljóða og litbrigða fossanna við ljósorku þeirra, hún er ef til vill fyrst hagsýn, en ANNAÐ EFNI BLAÐSINS: Hinn nýi foringi „Rauðstakkanna" í Kanada. Minning, smásaga eftir I»orl. Ben. Þorgrímsson. Tyrkneska varðsveitin eftir Henry Petersen. Bókafregnir. Síðasta tilraunin bennar, smásaga eftir Marguerite Comert. Bamasaga. Orð í tima töluð — o. fl. Emil Björnsson. hún leynir aldrei, né vill leyna, einkenni íslenzkrar þjóðar, skapandi ímyndunarafli og ævintýraþrá. Ævintýralandið er ekki eingöngu jörðin, heldur og vatnið, eldurinn og loftið. Eng- in jörð er líkari til að leysa úr læðingi mannlegt ímyndunarafl en íslenzk jörð. Það kemur í fyrsta lagi fram sem skáld- skapur, en ekki sem sjúklegur heilaspuni. Þjóðin eignaðist snemma ósýnilega kunn- ingja út um landið. Einkum var það huldu- fólkið. Þó fór kunningskapur þessi æði oft út um þúfur, er álfarnir skiptu börnum sínum fyrir mennsk börn eða ástir brugð- ust milli álfheima og mannheima, og fleira mætti telja. Og þá gerðust sögurnar. En þær bera svo viðkunnanlegan og eðlilegan blæ af mennskum uppruna, að þær lenda aldrei á galeiðum gráustu geminganna. Líf þeirra líktist svo mannlífinu. Huldu- fólkið býr í hömrum og klettum, álfarnir í hólum, giljum, ásum og klöppum, jafn- vel öllum mishæðum. Grásteinar og Grett- istök urðu hin dásamlegustu hýbýli og i „hvolnum kvað við samhljómur klukkn- anna á kvöldin.“ Það var allajafna eitt- hvað tígulegt við þetta fólk, og söngvið var það og seiðfullt, ásthneigt, hefnigjarnt og stundum undirförult. Glæsileikur álf- anna stendur óefað í sambandi við veru- staði þeirra, og vart á nokkur auðþjóð heimsins stórfenglegri byggingar en ís- lenzku hamraborgirnar og kastalana, —- stuðlaberg og strandberg. Það er því engin furða, þótt höfðingjaþjóð byggði hallirn- ar, í ímyndun sinni, tígulegum og ævintýra- legum verum. Frá hamraborgunum er skammt niður til hellanna. Þessir myrkrageimar eru í senn bæði hrikalegir og hræðilegir, enda er tröllum og óvættum ætlaður þar staður í þjóðtrúnni. Samræmið er auðsætt. Þá koma útilegumennimir, sem lifa líkast lífi byggðafólksins. öldum saman hafa ís- lenzku smalamir þekkt útilegumannadal- inn. Hve oft herma ekki sögumar, að halli undan fæti, og sögumaðurinn kemur nið- ur í djúpan dal, þar sem úir og grúir af feitum kvikfénaði, og fagrar hlíðar og

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.