Vikan


Vikan - 18.04.1940, Side 15

Vikan - 18.04.1940, Side 15
VIKAN, nr. 16, 1940 1 Laugum er oftast eins mikið gras eins og á bezta túni. Nú hafði Lárus verið þar í tvær nætur með fjölda af hestum, svo að dálítið hafði verið krukkað í túnið, en samt höfðu okkar hestar nægan haga. Okkar fyrsta verk — eftir að hafa heft hestana í hólma, sem var umluktur heitu vatni og reyk, svo þeir reyndu síður að Ur Landmannalaugum. strjúka — var að búa til kaffi, en það er hægur vandi, því ekki er annað en ausa sjóðheitu vatni á ketilinn eða könnuna. í fjallferð hefi ég soðið hangikjöt í Laugun- um á stuttum tíma. Eftir kvöldverð fórum við að athuga sæluhús leitarmannanna. Meðan ég var leitarmaður var bjargast við kofa úr torfi og grjóti eingöngu, nú var komið allmyndarlegt hún með járnþaki og lofti. Er neðri ,,hæðin“ ætluð fyrir hesta, — eftirleitarmanna — en loftið fyrir svefn- herbergi. Náttúrlega er það ekki beinlínis vistlegt. Ekkert höfðum við í kringum okkur eða ofan á okkur. Við lögðumst á bert trégólfið, og þótti heldur hart undir hnútu, og vöfðum um höfuðið gæruskinn- um, sem þeir Hannes á Núpstað og Stefán á Kálfafelli höfðu gefið okkur. Um kl. þrjú vaknaði ég við það, að mig sárverkjaði í skrokkinn, og var nærri farinn að skjálfa. Þegar ég reis upp, sá ég að Gísli á Búlandi var horfinn frá okkur og þótti mér kyn- legt. Ég hugleiddi um stund hvernig á því gæti staðið — en var jafnær. Ég skreidd- ist fyrst á fjórar fætur og barði mér, og síðan upp á endann, og ætlaði að fara fyrst niður á neðri ,,tasíuna“ að leita að Gísla og síðan út, því albjart var orðið, en í dyrunum mætti ég honum. Sé ég, að hann er með mikinn og fagran kíki í hendinni. Mundi ég nú eftir því, að einn í hóp Lárus- ar sagðist hafa týnt kíki í Laugahrauninu upp af sæluhúsinu og beiddi okkur að svipast eftir honum. Gísli hafði lítið getað sofið, og strax og birti fór hann út að leita að dýrgripnum — og var búinn að finna hann. Hvort hann fékk nokkur fund- arlaun veit ég ekki, en við Högni tókum við kíkinum og komum honum til eiganda. Þessi morgunn er einn af þeim fegurstu og dýrðlegustu, sem ég man eftir. Það blaktaði ekki hár á höfði. Geislar sólar- innar voru svo heitir, að við fórum ekki í nema sem allra minnst af fötum. Hvergi sást skýjadrag. Allt var tært, loft og láð, og brosti við geislum sólarinnar. Fegurri útsýn og svipmeiri en ég sá þennan morgun í Laugun- um, hefi ég séð aðeins einu sinni á Þórsmörk, sem ég tel fegursta og tilkomu- mesta blettinn á Islandi — og eru þó margir fagrir. Við fórum okkur hægt að ferðbúast. Tókum okk- ur fyrst bað í laugalækn- um, sem náttúran hefir blandað sjálf alveg hæfi- lega til slíkrar notkunar; rökuðum okkur vel og vandlega,,úr heitu“,bjugg- um til kaffi o. s. frv. Um kl. tíu var svo lagt af stað. Gísli fylgdi okkur út yfir Jökulgilskvíslina, sem var í talsverðum vexti vegna hitans. Torfa- jökull og Reykjafjöll lögðu til nóg efni í vöxt hennar, en hún rennur eftir Jökulgili, sem er mjög langt, — yfir tveggja stunda ferð, — einkennilegt og stórfenglegt. Mig minnir, að átján sinn- um þurfi að fara yfir kvíslina úr Laugunum og inn í Hattver. 1 Jökulgilskvíslina falla smærri kvíslar úrþver- giljum Jökulgilsins — Sveinsgili, Brandsgili o. fl. En Tungnaá gleypir hana sjálfa að síðustu, og Tungnaá hirðir svo Þjórsá langt fyrir innan Búrfell í Þjórsárdal. Hamfarir sínar sýna þær fyrst sameinaðar, er þær falla fram af brúnum Tröllkonuhlaups, móts við Búrfell, en Tröll- konuhlaup heitir foss- inn af því, að þjóðsög- ur segja að í fyrndinni hafi tröllkona búið í Búrfelli, og systir hennar í Tröllkonugili í Næfurholtsfjöllum, beint á móti, sunnan við ytri Rangá. Þegar þær heimsóttu hvor aðra, þurftu þær að fara yfir Þjórsá. Heldur þótti þeim um of að hlaupa yfir hana í einu hlaupi, svo þær tóku það ráð að kasta tveimur myndarlegum hnullung- 15 FERÐAMINNINGAR ÚR SKAFTAFELLSSÝSLU og að FJALLABAKI eftir A. J. Johnson, bankaféhirðir. Niðurlag. um í fossbrúnina — sem vitanlega standa þar enn — og hlupu svo eftir þeim yfir ána! — Norðan við Jökulgilskvíslina kvödd- um við okkar ágæta fylgdar- og leiðsögu- mann, Gísla á Búlandi. Hafði hann í öllu reynzt okkur prýðisvel, svo sem vænta mátti, og sanngjam í viðskiptum. Héldum við nú sem leið liggur upp á Frostastaða- háls, sem er á milli tveggja f jalla, er heita Norður- og Suður-Námur. Af hálsinum er góð útsýn til suðaustursogsuðurs, Kýlinga, Kirkjufells og mynni Jökulgilsins (Barms). I árdegissólinni var þetta undrafögur sjón. Er norður á hálsinn kemur sér yfir Frostastaðavatn. — Munnmæli herma, að nálægt því hafi bærinn Frostastaðir staðið einhvern tíma á fyrri öldum, og á hann að hafa verið efsti og austasti bær í Landssveit. Líklega er þetta hugarburð- Úr Jökulgili. ■ ur einn. I vatninu er hólmi, og hefir komið fyrir að fé hefir synt út í hann, sem leitar- menn hafa átt mjög erfitt með að ná það- an, fyrr en ís var kominn á vatnið, því bátur er þar enginn. Þegar niður af Frostastaðahálsi kemur,

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.