Vikan - 20.05.1943, Blaðsíða 1
Nr. 20, 20. maí 1943.
Miklir leikarar
auka menning þjóðarinnar
Soffía Guðlaugsdóttir
leikkona hefir nú í rúman
aldarfjórðung farið með
fjölda hlutverka á íslenzk-
um leiksviðum. Hún hefir
aldrei hlíft sér, litið stórt
á list sína, ekki hræðzt
mikil verkefni og vaxið
með peim.
Það er nú mikið talað og skrifað um
verndun íslenzkra verðmæta, nauð-
syn þess, að ekkert af því bezta, sem þjóð-
in á, glatist í hafróti þeirra hörmunga, er
flæða yfir heiminn. Margir óttast, að ís-
lenzk tunga spillist í of náinni og lausungs-
legri sambúð við erlenda menn og ef
tungan skemmist eða týnist, þá sé lokið
tilveru vorri sem sjálfstæðrar þjóðar.
Ótti þessi er eðlilegur, en sterk öfl, rótgró-
in og máttug, vinna af alefli gegn upplausn-
inni og tortímingunni, landvættir Islands
eru enn til, margar og góðar, og eru vel á
verði til að bægja burt læpuskap og ó-
dyggðum, sem vafra að landi voru.
Þessar hugsanir komu fyrst í hugann,
þegar skrifa þurfti nokkrar línur um
Soffíu Guðlaugsdóttur leikkonu. Það er
öllu óhætt meðan þjóðin getur teflt fram
á leiksviðum sínum fólki, sem ber í brjósti
menningararf hénnar og kraft til þess að
halda honum uppi með sóma. Fagurt ís-
lenzkt mal, borið fram af skilningi og festu
á leiksviði, í útvarpi og á mannamótum
Pramhald á bls. 3.
Prú Soffía Guðlaugsdóttir leikkona.