Vikan


Vikan - 26.08.1943, Síða 1

Vikan - 26.08.1943, Síða 1
Nr. 34. 26. ágúst 1943. VIKAN Hvað lœra má af bömum Hvers vegna skyldum við ekki reyna að læra af börnunum, hvernig á að njóta ljóss og lita og unaðar af smámunun- um, sem fyrir okkur bera í líf- inu? Mikið hefir verið rætt og ritað um það, hvernig við ættum að ala upp börn vor. Við skulum vera hreinskilnir við sjálfa okkur. Hvað get- um við kennt þeim auk hins rykfallna kerfis hefðbundinna brellna: hæversku, stundvísi, hreinlæti o. s. frv. ? Þegar til þess á að taka, að fá sem mest út úr líf- inu, geta börnin, — og þá sérstaklega ung börn — kennt okkur meira, en við get- um kennt þeim. Ef við getum vaxið upp úr þeirri hugs- un, að við — fullorðna fólkið — séum eins og æðri kynflokkur, getum við fylgst með athöfnum barnanna hljóðir og með samskonar athygli og virðingu og við myndum sýna hvaða öðrum kennara, sem væri. Og þá getum við líka lært af þeim, því að þau vita ósjálfrátt, hvernig á að lifa. Þau eru í heiminn borin brynjuð gegn vandræðum, og undir það búin, að taka á móti hamingjunni. Athugið það fyrst, að þau eru smá-verur, sem eiga að umgangast risa, og eru al- gjörlega háð því, að þessi gömlu tröll sjái þeim fyrir fæðu og öðru viðurværi, þau verða að hlýða fyrirmælum þeirra og taka hirtingu fyrir óhlýðni, og fylgja allskonar venjum, sem þau álíta venjulega helberan hégóma. Þrátt fyrir þetta, hafa þau sinn persónuleika. Það er svo margt í þeirra veröld, sem getur glatt þau og verið þeim til gamans, að þau standa sig við að sam- þykkja möglunarlítið, það sem af þeim er heimtað. Fyrir þeirra sjónum er lífið furðu- legt, ægilegt og ákaflega ,,spennandi“. Öll þekkjum við þessar tilfinningar frá okkar eigin bernsku. En alltof mörgum verður það á, að vanrækja þær og glata Framhald á bls. 3. f/reln efííi’ f/eorge fffenL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.