Vikan - 18.11.1943, Síða 13
VIKAN, nr. 46, 1943
13
Þjóðminjastifnid.
Framhald af bls. 3.
mjög og tala gesta jókst að sama skapi.
Nú var og veitt meira fé til skápa og
skrifstofugagna og til að launa gæzlu-
mönnum og fjárveiting til gripakaupa
hækkuð að mun.
Gamli vefstóllinn, sem tíðkaðist hér á landi
fram á siðustu öld. Upp í hann er sett, og ofið
að nokkru leyti, einskeptubrekán, og gerði
það Gunnar Hinriksson vefari, eftir gamalla
manna fyrirsögn. Beggja vegna við vefstólinn
©ru gamlir skotrokkar; frábrugðnir þeim
rokkum, er nú tíðkast, að því leyti, að
snældu-umbúningurinn er vinstra megin við
hjólið á sérstökum stól, en ekki uppi yfir því.
Annar rokkurinn er smíðaður af Snorra
presti Björnssyni á Húsafelli (d. 1803).
Sigurður fornfríeðingur Vigfússon. —
Hann var, 17. janúar 1878, kvaddur til
að vera umsjónarmaður Forngripa-
safnsins, vegna þekkingar á íslenzkum
fomgripum „og vilja til að efla fram-
farir hins íslenzka Forngripasafns.“
Nú hefir verið lítillega lýst stofnun og
þróun einnar merkustu stofnunar, sem Is-
lendingar eiga. Rúmsins vegna er hér
ekki hægt að segja mikið meira um hana
og hið stórmerka starf þjóðminjavarðar.
Undir hans eftirliti er hið svokallaða
»,Húsasafn,“ það eru eftirtaldar bygging-
ar; Víðimýrarkirkja, Grafarkirkja, Glaum-
bær, Grenjaðarstaður, Burstafell og Keld-
ur 4 Rángárvöllum. Hann sér um skrá-
Setning og rannsókn flestra fornleifa um
Framhald á bls. 15.
Pálmi yfirkennari Pálsson. Hann var
umsjónamaður safnsins frá 1892 til 1.
okt. 1896.
^mimiHimMiumiirinriimuiiMiiiiiiiitiniumrmiimmmmmimmummmir,,,
í Dægrastytting |
'r mimrmiiimniitniimiiiiimiiii vmiiimiimiimimmmmumuiM^
Örðaþraut.
L JÓÐ
ÆRIÐ
N AÐS
HUN A
ÆG J A
LINA
ÆSIR
R ATI
LIN A
E’yrir framan hvert þessara orða skal setja
einn staf þannig, að séu þeir stafir lesnir ofan
írú og niður eftir, myndast nýtt orð, og er það
orð, sem notað er yfir sérstaka gerð farartækja.
„Ekki er gaman að guðspjöllunum.“
„Ekki er gaman að guðspjöllunum, enginn er í
þeim bardaginn," sagði kerlingin. ,,Og verri eru
Framhald á bls. 14.
Jón landsbókavörður Jakobsson. (Sjá
um hann í 36. tbl. Vikunnar). Hann var
umsjónarmaður safnsins frá því í októ-
ber 1896 til 1. janúar 1908.
Oblátudósir frá Bessastöðum. Þær eru úr safni því,
sem Jón konsúll Vídalín og kona hans gáfu safninu
1907. Dósirnar eru úr silfri, gyltar, smíðaðar 1774
af Sigurði Þorsteinssyni gullsmið í Kaupmannahöfn,
gefnar Bessastaðakirkju af Ólafi stiftamtmanni
• Stefánssyni.
Þessi hluti af salakynnum Þjóðminjasafnsins er kall-
aður „fornöldin."
tír „Skrúðhúsi" Þjóðminjasafnsins, gamlir kirkjugripir.