Vikan - 20.01.1944, Blaðsíða 10
^iimmimiiiiiitMiitniiiiritiiHiimnimHmirmtmiuiitiiiimmimmmniii
10
VIKAN, nr. 3, 1944
i „urimn mn
I n b i m ■ l i w
s
Húsmóðirin parf að eiga frístundir
■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Matseðillinn.
Makkarónur.
100 gr. makkarónur, tómat-
mauk, 20 gr. smjörlíki, salt,
pipar.
Makkarónumar eru brotnar og
soðnar í miklu vatni með salti í 15—
20 mín. Vatninu hellt af þeim, skom-
ar í ca. 3 cm. langa búta, settar í
pottinn aftur ásamt smjörlíkinu og
tómatmauki eftir smekk.
Ávaxtasúpa.
100 gr. þurrkaðir ávextir, iy2
1. vatn, 75 gr. sykur, 1 mat-
skeið kartöflumjöl, 1 dl. kalt
vatn, tvíbökur.
Það má nota hvaða þurrkaða
ávexti sem em. Þeir em þvegnir og
látnir í kalt vatn yfir nótttna með
sykri. Soðnir í sykurvatninu, þar til
þeir em meyrir. Nuddað síðan gegn-
um gatasigtL Sett yfir eldinn aftur,
og þegar sýður er jafnað með
kartöflumjölsjafningnum. — Súpan
borðuð með tvíbökum.
Það má sleppa þvi að sía súpuna.
Séu ávextimir súrir, verður að hafa
meiri sykur.
Húsráð.
Það œtti ekki að þurfa að bóna
eða pólera húsgögn meira en tvisvar
á ári. En það þarf að þurrka oft af
þeim og nudda með hreinum klúti.
Tízkumynd.
Efst á myndinni er hattur eða
kolla úr svörtum flóka, því næst er
hvitur hanzki, í hann er dregin svört
bönd, neðst er taska úr hárauðu
skinni.
Þegar spil eru orðin óhrein er
fljótlegast og bezt að hreinsa þau
með steinolíu; á þann hátt, að mað-
ur vefur dálítilli bómull um vísifing-
urinn og bleytir hana aðeins með
steinolíu og nuggar spilið lauslega.
Því næst er þurrkað með hreinum
og þurrum bómullarklúti. • Þegar
spilin hafa verið hreinsuð báðum
megin er gott að nudda þau með
„talkúm" þá verða þau hál. Síðan
skal breiða úr spilunum til þess að
steinolíulyktin hverfi.
Heimili með nokkrum bömum og
húsbónda tekur mikið af tíma hús-
móðurinnar, en það þarf ekki að taka
hann allan. Með heppilegri dagskrá
og áætlun um tíma og peninga er
hægt að gera lífið ánægjulegra fyrir
alla fjölskylduna.
Setjum svo, að þér eigið fjögur
böm, sem eru fimm, níu, tólf og
fjórtán ára. Á meðan þau voru lítil
höfðuð þér svo mikið að hugsa um
að vera góð móðir, að þér höfðuð
lítinn tíma til nokkurs annars.
Bömin þörfnuðust yðar og voru
yður háð að svo miklu leyti. En nú
virðast þau aðeins þarfnast matar,
klæða og húsnæðis.
Þegar svona er komið, ættuð þér
að beita öllu hugmyndaflugi yðar.
Fjögur sterk og hraust böm geta
verið til mikillar hjálpar. 1 meira en
tíu ár, hafið þér hugsað lítið um
yður sjálfa. Á liðnum árum hefir allt
snúist um alla aðra í fjölskyldunni
en yður, það er því kominn tími til
að á þessu verði einhver breyting.
Við skulum fyrst taka útlitið til
athugunar. Þér hafið alltaf hugsað
um bömin hingað til, og álitið þeirra
kröfur rétthærri en yðar. En setjum
svo að það séu til peningar fyrir
einu „permanenti", þá eruð það vitan-
lega þér, sem eigið að fá það. Þetta
er ekki eigingirni heldur réttlæti. Ef
þér sparið of mikið við sjálfa yður,
þá búast bömin við og krefjast meira
heldur en þeim í rauninni ber.
Næsta sporið er, að hafa einhvern
frítíma. Þér getið ef til vill sparað
dálítið, svo að þér gætuð sent þvott-
inn i þvottahús.
Svo er nú líka gott að ákveða all-
an mat fyrir heila viku, það sparai'
mikinn tíma og heilabrot. Ef þér
leitið í matreiðslubókum og blaðaúr-
klippum og búið til matseðilinn fyrir
heila viku í einu, þá mun það vera
yður til mikillar skemmtunar.
Það er yfirleitt í alla staði mjög
hentugt að gera áætlanir yfir það,
sem þarf að gera, það mun spara
mikinn tíma og tíminn verður miklu
drýgri, þ. e. a. s., ef farið er eftir
áætlunum.
Hvað gerið þér svo við þennan
tima, sem þér hafið afgangs?
Skemmtið yður með fjölskyldunni.
Náið í skíði yðar og skauta og stund-
ið íþróttir með bömum yðar. Þér
eruð ekki of gamlar. Eyðið ekki öll-
um laugardagskvöldum og sunnu-
dögum í boðum hjá öðrum fjölskyld-
um. Þér verðið að hafa tíma til aö
skemmta yður með eiginmanni yðar
og börnum, eða hafa rólegar stundir
við hannyrðir eða lestur góðra bóka.
Ef þér hafið tima til þess að stunda
hugðarefni yðar, þá er lífið ein-
hvers virði.
Tízkumynd.
Létt og þægileg undirföt, hentug
undir ballkjól.
^UIIIIIIIIl 1111111111111111111111II illll IIIIIII 111111111111111111111111»^ rmmm^—mmmmmmmm
NOTIÐ eingöngu
Minnstu ávallt
mildu sápunnar j
S
iiiimmiimimimmiiimiimmmmiiimmiiiiimiiiiiv'?’
STÍFELSI
Heildsölubirgðir:
GUÐMUNDUP ÓLAFSSON 1CO.
Austurstræti 14. — Sími 5904.
MILO
rr Á" '4'”
nitftlOuinun Itm jömnoH. etisum. •
Öruggasta og —
bezta handþvottaefnið.