Vikan - 06.12.1945, Blaðsíða 1
16 síður.
Verð 1.25.
Nr. 49, 6. desember 1945.
w*^l KAN
ELSA SIGFUSS
- „stulkan með silkimjúku röddina
Söngkonan er nýkomin heim
frá Danmörku, en þar hefir
hún dvalið undanfarih ár og
aflað sér mikilla vinsælda, sem
sjá má á hinum ágætu dómum,
er hún hef ir f engið í dönskum
blöðum. 'Hún syngur bæði sí-
gildar tónsmíðar og létt lög, og
hefir mikið sungið á plötur og
í útvarp. Hér heima hefir hún
þegar haldið nokkra hljóm-
leika við hinar ágætustu undir-
tektir.
TF^ótt nú sé skammdegi má á ýmsu sjá,
að það er farið að vora eftir hinn
mikla styrjaldarvetur. Hömlur ófriðarár-
anna eru smátt og smátt að hverfa og
gestir og heimafólk, sem dvalið hefir er-
lendis, meðan á stríðinu stóð, getur nú aft-
ur komið hingað til lengri eða skemmri
dvalar. Þessari „vorkomu" ber sannarlega
að fagna, enda er það gert.
Vikan birtir nú myndir af einum slíkum
„útlaga", sem er hvorttveggja í senn
aufúsugestur og heimamaður, íslenzkri
söngkonu, er verið hefir lengi erlendis og
ekki séð land sitt síðan ófriðurinn mikli
hófst — en sungið sér og Islandi til sóma.
Elsa Sigfúss er fædd í Reykjavík, dóttir
Framhald á bls. 3.
Elaa Sigfúss söngkone.