Vikan


Vikan - 06.12.1945, Blaðsíða 3

Vikan - 06.12.1945, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 49, 1945 3 ELSA SIGFUSS (Framhald af forsiðn). Sigfúsar Einarssonar tónskálds og konu hans, Valborgar Einarsson, söngkonu og píanóleikara. Hún sækir því hljómlistargáf- urnar í báðar ættir, en eins og alþjóð mun kunnugt var faðir hennar dómkirkjuorgan- leikari, tónskáld og söngstjóri og vann mikið að eflingu sönglífsins í landinu. Eins og við mátti búast lærði Elsa Sigfúss þegar í æsku á hljóðfæri og áðwr en hún sigldi hafði hún fengið sérstakan áhuga á hnéfiðlu- Ieik (Cello) og byrjaði að stunda nám í hon- um hér heima. 1928 fór hún utan og til Danmerkur, ásamt Einari, bróður sínum (hann spilar á fiðlu í hljómsveit í Árósum og er kennari við Tónlistarskólann þar). Elsa fór í Tónlistarskólann í Kaupmanna- höfn og stundaði þar nám í hnéfiðluleik, en frú Dóra Sigurðsson, er kenndi henni söng, fékk því til vegar komið, að sönghæfileikar Elsu voru reyndir. Sjálfri hafði henni ekki dottið söngnám í hug. Það fór samt svo, að söngur varð aukanámsgrein hennar í skólan- nm og næsta ár eftir þetta er söngui;inn orðinn aðalnámsgrein hennar. í Tónlistar- skólanum tekur nárnið venjulega þrjú ár, en Elsu var boðið að vera þar fjórða árið ókeypis. Að námi loknu fékk hún ferðastyrk frá skólanum og fór þá til Dresden i Þýzka- landi og var þar þrjá mánuði við nám. Eftir að til Kaupmannahafnar kom aftur, hélt hún þar hljómleika og var mjög vel tekið. Upp frá þvi tók hún að syngja á opinberum hljómleikum og við kirkjuhljómleika og hef- ir sungið í Noregi, Svíþjóð og Þýzkalandi, auk Danmerkur og íslands. Ekki leið á löngu þangað til hún fór að syngja í útvarp og hefir hún náð miklum vinsældum fyrir þann söng og sem dæmi um það má í gamni geta þess, að hún hefir fengið margskonar þakk- lætiskveðjur frá hlustendum sínum í Dan- mörku; þeir sendu henni sígarettur, súkku- laði, ísaumaða dúka og eitt sinn fékk hún pakka frá konu úti á landi, sem sagðist alltaf Elsa Sigfúss með kjördóttur sinni, Eddu, sem \ arð fimm ára. núna i desember. Telpan var aðeins fimm daga gömul, þegar söngkonan tók hana að sér. Edda kom með moöur sinm hingaö til lands. hlusta á söng hennar, en í pakkanum var, ásamt mjög vin- samlegu bréfi, 12 egg, J/_> kg. smjör, 30 kg. kartöflur, epli og annað góðgæti! Þetta var vel til fundin kveðja, eins og tímarnir voru þá í Danmörku. Frú Dóra Sigurðsson stakk upp á því við Elsu, að hún reyndi líka að syngja létt, nýtízku lög. Henni leizt ekki á það í fyrstu og þótti lítið varið í það, en síðar komst hún að raun um, að hægt var að finna skemmtileg lög á þessu sviði. Þessi söngur hennar varð og mjög vinsæll. Elsa Sigfúss hefir oft sungið á grammófónplötur. Fyrsta platan, sem hún söng fyrir „Polyphon“, seldist ágætlega og þá var upptekningunni haldið áfram. Mörg undanfarin ár hefir Elsa aungið á plötur fyrir „His Masters Voice“. Elsa Sigfúss kom hingað 11. nóvember og hefir sungið þrisvar í Gamla Bíó og haldið kirkjuhljómleika bæði í Hafn- arfirði og Reykjavík. Hún veit enn ekki, hve lengi hún kem- ur til að dvelja hér að þessu sinni, en henni þykir ákaflega gaman að vera hér heima, enda kom hún alltaf hingað á Elsa Sigfúss við hljóðnemann. Að þessu sinni er hún að lesa en ekki syngja. Hún sumrin, áður en Ófriðurinn braust Út. hefir sungið mikið í útvarp og hlotið almennar vinsældir fyrir sönginn.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.