Vikan


Vikan - 14.08.1947, Blaðsíða 2

Vikan - 14.08.1947, Blaðsíða 2
2 VIKAN, nr. 33, 1947 PÓSTURINN • Kæra Vika! Viltu vera mér svo góð að segja mér, hvað ég á að vera þungur. Ég er 12 ára. Feitabolla. Svar: Hæðin er ekki tilgreind, svo að við getum ekki sagt um þyngdina. Kæra Vika! Mig langar til að biðja þig bónar, ég er laglaus, en mig langar ákaflega mikið til að spila á hljóðfæri, helzt á munnhörpu eða harmóniku. Getur þú ekki sagt mér, hvemig ég á að fara að því? Sendu mér svar ef þú getur. Með fyrirfram þökk. Þinn laglaus. Svar: Þó að þú sért laglaus, er ekki þar með sagt, að þú getir ekki lært að spila. Reyndu að ná þér í harmo- niku eða munnhörpu, og þá muntu fljótt komast að því, hvort þú hefir hæfileika til að spila á hljóðfæri. Ef þú getur ekki lært það af sjálfum þér, þá fáðu leiðbeiningar hjá ein- hverjum, sem kann að spila. Kæra Vika! Ég hefi skrifað þér áður, en ekki fengið svar og vona ég, að núna lendi bréf mitt ekki í bréfakörfunni. Geturðu ekki sagt mér eitthvað um Cornel Wilde og Jeannie Crain. — Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Þín vonlausa Inga. Svar: Cornel Wilde er fæddur 13. október 1915 í New York og stund- aði skylmingar áður en hann gerð- ist leikari. Kona hans heitir Pat Knight og eiga þau eitt barn. Jeanne Crain er fædd 25. mai 1925 í Barstow í Kalifomíu, hefir græn augu og brúnt hár og klæðist oft ýmis konar búningum, sem sveita- stúlkur nota. Hún er gift Kay Morley og eiga þau ekkert barn. Síðustu myndir hennar eru: „Johnny Comes Flying Home“, „Behind Green Lights" og „Capt. Eddie". Hún ber stöðugt hring nokkurn, sem hún held- ur að fylgi einhver gæfa. Kæra Vika! Þú sem leysir úr svo mörgum vandamálum, viltu nú ekki vera svo góð og hjálpa mér í vandræðum minum. Mig langar mjög mikið til Brunabótafélag \ Islands vátryggir allt Iausafé (nema verzlunarbirgðir). [ Upplýsingar í aðalskrif- \ stofu, Alþýðuhúsi (sími í 4915) og hjá umboðsmönn- i um, sem eru í hverjum i hreppi og kaupstað. þess að skrifast á við jafnaldra mína í Englandi, Noregi og Danmörku, en ég veit ekki í hvaða blöðum ég á að auglýsa eftir bréfasamböndum. Ekki viltu nú gera svo vel og gefa mér upp utanáskrift á þvi blaði í hverju landi fyrir sig, sem þú álítur heppilegast til slíkrar auglýsingar. Mér er þetta mjög mikið áhuga- mál, þar sem ég er að læra mál, og vonast ég því eftir svari bráðlega. Málanemi. Svar: Norrænafélagið, Garðastræti 6, hefir nöfn og heimilisföng skóla- unglinga á Norðurlöndum, sem kom- ast vilja í bréfasamband við jafn- aldra sína á Islandi. Kæra Vika! Getur þú sagt mér hverrar þjóð- ar Claude Raines er, sem lék í kvik- myndinni Mr. Skeffington. Hvað lest þú úr skriftinni? Stína. Svar: Claude Rains er fæddur í London 10. nov. 1890. Við lesum ekki úr skrift. Kæra Vika! Þú gætir ekki gert svo vel, að gefa mér einhverjar upplýsingar um hina undurfallegu leikkonu, MarshaHunt? Þinn „Spenntur." Svar: Marsha Hunt er fædd 17. okt. 1917 í Chicago. Hún er bláeygð, með brúnt hár og er gift Robt Resnell. Áður en hún gerðist kvikmyndaleik- kona sat hún fyrir hjá listamönnum og hið rétta nafn hennar er Marcia Hunt. Síðustu kvikmyndir hennar eru: „Letter for Eire," „Music for Millions," „Bride by Mistake," „Carnegie Hall." Marsha Hunt er mjög gefin fyrir hljómlist. Bréfasambönd Birting á nafni, aldri og heimilis- fangi kostar 5 krónur. 0 Hér fara á eftir nöfn þeirra, sem óska að komast í bréfasamband: Guðlaug Pálsdóttir (15—18 ára), Refsstað, Vopnafirði, N.-Múlasýslu. Ásta Jósepsdóttir (13—15 ára), Páls- húsum, við Hafnarfjörð. Edda Margeirsdóttir (16—18 ára), Fagurhlíð, Sandgerði. Tækifærisgjafir í fjölbreyttu úrvali Gottsveinn Oddsson I úrsmiður. - Laugavegi 10. f (Gengið inn frá Bergstaðastr.) | ........................ Steinunn Jónsdóttir (16—18 ára), Skagabraut 25, Akranesi. Hulda Axelsdóttir (18—20 ára), Nautabúi, Lýtingsstaðahrepp, Skagafirði. Gyða Valdimarsdóttir (16—18 ára), Kirkjubæjarklaustri, Síðu, V.- Skaftafellssýslu. Maggý Björnsdóttir (19—25 ára), Kaupfélagi Skagstrendinga, Skaga- strönd. Erla Haraldsdóttir (16—18 ára), Skólaveg 27, Vestmannaeyjum. Gíja Kristinsdóttir (16—20 ára), Kaupfélagi Skagstrendinga, Skaga- strönd. Þessi mynd er frá þorpskirkjunni í Lacock. Kirkjan er snar þáttur í lifi þorpsbúa. Presturinn skírir, giftir og jarðar og tekur mikinn þátt í félags- llfi þeirra. Bréfaskipti - frímerkjaskipti Gangið í einn bezta bréfaskipta- og frímerkjaklúbb 1 Evrópu. Meðlimir um allan heim. Hefur þegar marga meðhmi á Islandi. Gefur út meðlimalista þýddan á 15 tungumál. Árlegt meðlimagjald 6,50, sem borgist í ónotuðum íslenzkum frímerkjum. Allar upplýsingar veitir G. Vailhen, 55 Rue de Coulmiers, Nantes (L/ I.), France. (Skrifið á dönsku, ensku, þýzku eða frönsku). Útgefandi VTKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundeson, Tjarnargðtu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.