Vikan


Vikan - 14.08.1947, Blaðsíða 10

Vikan - 14.08.1947, Blaðsíða 10
10 VIKAN, nr. 33, 1947 r—■ 9 HEIAIILIÐ Verið grönn og ungleg. Matseðillinn Fisk- og spínatgratin. % kg. fiskflök, fisksoðið (eða vatn. og salt), % kg. spínat, 1 —2 matsk. smjörlíki, 2—4mat- sk. rjómi, salt. 1 sósu og ann- að: 1 y2 matsk. smjörlíki, 2 matsk. hveiti, 1%—2 bollar fisksoð, (4 bolli mjólk, salt, pipar, brauðmylsna, (1 matsk. rifinn ostur), 2—3 matsk. bráð- ið smjör. Sjóðið fiskflökin vel í fisksoði eða lítilsháttar söltuðu vatni. Takið þau síðan upp úr pottinum með gata- skeið, látið fiskinn siðan í vel smurt eldfast mót. Sjóðið spinatið, sem áð- ur er þvegið vel, í 6—8 mínútur, bæt- ið síðan smjöri og rjóma út í og látið sjóða enn í nokkrar mínútur. Saltið spínatið eftir smekk og leggið ofan á fiskinn. Bræðið saman smjörlíki og hveiti í sósuna, bætið fisksoðinu og mjólk- inni út i, svo að úr þvi verði þykk sósa. Bætið út í salti og pipar og hellið henni síðan yfir spínatið. — Stráið brauðmylsnu og rifnum osti ofan á og dálitlu af bræddu smjöri. Bakið síðan búðinginn í ofni. Norskur eggjagrautur. 1(4 1. nýmjólk, 2 egg, 2 mat- sk. sykur, 1 matsk. kartöflu- mjöl, 1 matsk. hveiti. Hveitinu og kartöflumjölinu er blandað saman og hrært út i kaldri mjólk. Eggjarauðurnar eru hrærðar vel og sykur látinn saman við þær. Felumyrnd Hér er dansarinn, hvar er spilarinn? Hvíturnar eru stífþeyttar og (4 te- skeið af salti látin út í. Það sem eftir er af mjólkinni, er látið sjóða, og dálitið af henni látið saman við hveitijafninginn. Siðan er öllu bland- að saman, hrært vel í og látið sjóða. Hvitumar em settar í síðast. Borið fram með sætum sítrónusafa. Húsráð. Ef þér ætlið að „femísera“ slitna borðplötu eða annan tréflöt, þá skul- uð þér nudda flötin vandlega með finum sandpappír fyrst, til að hreinsa burtu öll óhreinindi og bletti. Gleymið ekki að þýða ískápinn áð- ur en íslagið í frystihólfinu er orðið hálfur sentimetri á þykkt. Tizkumynd Sérkennilegur kjóll úr svörtu tafti og hvítri blúndu. Uppeldisvandamál. Eftir dr. G. C. Myers. Við foreldrar erum eins og annað fólk, við látum" oft stjórnast af til- finningum í framkomu okkar við börnin. Og börnin eru ekki orðin margra mánaða, þegar þau uppgötva þessa veiku hlið okkar og taka að notfæra sér hana. Okkur verður á einu sinni að rugga anganum litla í svefn eða svæfa hann i fanginu. Eða við leggjumst hjá honum þangað til hann sofnar. Við tökum hann upp í rúmið til okkar, Fylgist þér með í megrunaræfingum okkar? Það borgar sig, því að þér munuð fljótt komast að raun um, að með því að iðka þær nákvæmlega, þá losnið þér við nokkur óþarfa þund. Ef til vill á ein af æfingunum í blaðinu í dag einmitt við yður. — Byrjið þvi strax. 9. Efri hluti líkmans. Leggist á vinstra hné, og teygið hægri fót fram, eins og þér sjáið á myndinni. Réttið handleggina fram, og beygið yður fram á við i þessum stellingum, eins og þér getið, og réttið yður því næst upp aftur. Ef þessi æfing er rétt gerð, verkar hún mjög megrandi á efra hluta iíkam- ans, en það verður að gera hana hægt og vandlega. 10. Neöri hluti líkamans. Setjist á gólfið. Spennið greipar aftur fyrir hnakkann. Réttið vel úr fót- unum, og lyftið vinstra fæti, en gætið þess að vera beinar i baki. Látið fót- inn svo síga niður, og lyftið þeim hægri á sama hátt. Þegar þér hafið fengið nokkra æfingu í þessu, er báðum fótum lyft samtímis. Þessi æfing grennir neðri hluta líkamans og örfar einnig meltinguna. en bara í þetta eina sinn. En þetta eina skipti vill endurtaka sig, og í hvert skipti segjum við sjálf okkur, að héðan í frá skuli þetta ekki ske oftar. Ég þarf ekki að rekja þessa sögu lengra. Þið þekkið hana öll. Þessi einstöku fyrirbrigði eru orðin að föst- um vana áður en varir. Jafnvel þó að ónauðsynleg umhyggja sé ekki sýnd nema einu sinni, getur hún orðið baminu svo ánægjurík, að það búist alltaf við henni upp frá því. Þess- vegna eigum við aldrei að gera það fyrir barnið, sem við viljum ekki endurtaka. Við verðum sífellt að vera á verði, ef við viljum komast hjá ónauðsynlegum erfiðleikum fyrir okkur og börnin. En reynslan er því miður gagn- stæð. Við endurtökum þennan óvana dag eftir dag og viku eftir viku, áður en við gerum okkur ljóst að hér er um alvarlega misfellu að ræða. Þá ákveðum við að bæta ráð okkar og taka fyrir þetta. En andstaða barns- ins er þá svo einbeitt og sterk, að við höfum ekki hjarta í okkur til að halda málinu til streitu. Svo líður æðilangur tími áður’ en við tökum aftur ákvörðun um að hætta óvan- anum. En auðvitað er andstaða barnsins þá enn sterkari en í fyrra sinnið. En hvað eigum við þá að gera? Eitt er víst, að því lengur sem við drögum að láta til skarar skríða, því meiri mótstöðu þarf að yfirvinna hjá baminu. Það er því ekki annað betra ráð en að taka málið föstum tökum strax, gera sér ljóst, hvað frekari töf muni kosta og meta möguleika okkar til sigurs. Svo látum við til skarar skríða, og vonandi vinnum við! Á eftir, þegar við hugleiðum sig- ur okkar, furðar okkur mest á því að við skyldum ekki hafa haft kjark til að hefjast handa fyrr! I

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.